Segir Arion hafa rekið svínabú af vanþekkingu 5. ágúst 2010 05:30 Stór hluti af viðskiptum búanna tveggja í gegnum árin hefur verið við Stjörnurgís.Fréttablaðið/gva
Arion banki hefur selt Stjörnugrís rekstur gjaldþrota svínabúanna Brautarholts á Kjalarnesi og Hýrumels í Borgarfirði. Bankinn tók svínabúin yfir fyrr á árinu vegna skuldavandræða. Búin voru boðin út en ekkert tilboð barst nema frá Stjörnugrís. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í gær að á meðan bankinn hafi rekið búin hafi hann þurft að greiða á annað hundrað krónur með hverju kílói sem framleitt var á búunum. Geir Gunnar Geirsson, framkvæmdastjóri Stjörnugríss, segir svínabúin hafa verið rekin af vanþekkingu af Arion banka og það skýri tapið. „Þetta var mjög illa rekið á öllum sviðum enda er kannski ekki eðlilegt að banki starfræki svínabú frekar en önnur fyrirtæki,“ segir hann. Slíkur rekstur krefjist mikillar sérþekkingar og bankann hafi skort hana. „Þetta er okkar fag og þess vegna sjáum við tækifæri í hluta af þessu þótt þeir hafi tapað gríðarlega.“ Fyrir hafi stór hluti af viðskiptum búanna verið við Stjörnugrís. Geir Gunnar segir að mikil offramleiðsla hafi verið á svínakjöti hérlendis að undanförnu og fyrirséð sé að minnka þurfi búin. Hann segir aðspurður að búin hafi ekki fengist á gjafverði. „Nei, langt því frá. Þetta var keypt á mjög sanngjörnu verði.“ - sh
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Eldur í Stykkishólmi Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Sjá meira