Innlent

Faldi sig í trjám á Klambratúni

Ölvaður ökumaður var handtekinn aðfaranótt miðvikudags.

Maðurinn velti bíl sínum á Miklubraut til móts við Rauðarárstíg rétt fyrir þrjú um nóttina. Bílnum var ekið í austurátt en hann hafnaði á hvolfi á ak­rein í vesturátt, eftir að hafa farið í gegnum girðingu.

Ökumaðurinn hafði flúið af vettvangi og fannst í trjágróðri á Klambratúni, þar sem hann faldi sig. Hann var handtekinn og sviptur ökuréttindum. Eftir skoðun á slysadeild var hann látinn gista fangageymslur. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×