Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Ég vona bara að unga fólkið skapi betri heim“ Fordómar mega aldrei stjórna fólki. Það er mikilvægasta lexían sem mannkynið getur dregið af helförinni. Þetta segir maður sem ungur að árum slapp lifandi úr útrýmingarbúðunum í Auschwitz. Hann hélt í vikunni fyrirlestur í Háskóla Íslands þar sem hann deildi reynslu sinni með gestum og afkomendum sem hann á hér á landi. 3.7.2010 19:44
Hungur og vonleysi Hungur og vonleysi bíður fjölskyldna sem hafa þurft að reiða sig á matargjafir en hjálparsamtök sem gefa slíkar gjafir eru komin í sumarfrí. Þetta segir öryrki sem nær ekki endum saman á bótunum sem hún fær frá hinu opinbera. 3.7.2010 19:41
Fellibylurinn Alex: Sex fórust í Mexíkó Að minnsta kosti sex manns létust í flóðum af völdum fellibylsins Alex sem fór yfir Mexíkó í gær. Mest voru flóðin í nágrenni við borgina Monterrey. Miklar rigningar urðu til þess að Santa Catarina áin flæddi yfir bakka sína. Brýr eyðilögðust, vegir fóru í sundur og rafmagnsstaurar gáfu sig. Fyrr í vikunni hafði fellibyrlurinn Alex valdið tjóni í Gvatemala og í El Salvador en hann fjaraði svo út á fimmtudag. 3.7.2010 19:35
Guðbergur sýnir áróður Guðbergur Bergsson rithöfundur hefur opnað áróðurssýningu í Saltfisksetrinu í Grindavík og sýnir gömul áróðursveggspjöld frá einræðisherrum og stjórnmálaforingjum. Þetta er ekki fyrsta áróðurssýningin sem Guðbergur heldur. Hann var með sambærilega sýningu fyrir 35 árum í Súmmsalnum í Reykjavík. 3.7.2010 19:11
Bílaleigur skila bílum Bílaleigufyrirtækið Hertz neyddist til að skila hundrað af tæplega fjögur hundruð bifreiðum sem félagið keypti af Toyota umboðinu á Íslandi, vegna samdráttar á bílaleigumarkaði. Pantanir hafa dregist saman um fimmtung miðað við árið í fyrra. 3.7.2010 19:03
Níu langreyðar skotnar á tæpri viku Níu langreyðar hafa nú verið skotnar á þeirri tæpri viku sem liðin er frá því að stórhvalaveiðar hófust í ár. Hvalbátarnir tveir, Hvalur átta og níu, komu með fyrstu þrjá hvalina að landi í Hvalfirði á þriðjudagskvöld. Á fimmtudag komu þeir með tvo hvali hvor, áttundi hvalurinn var svo dreginn upp í hvalstöðina í dag og von er á þeim níunda í nótt. Heimilt er að veiða 175 langreyðar í ár. 3.7.2010 18:45
Bílvelta á Hellisheiði Bifreið valt út af veginum um Hellisheiði skömmu eftir klukkan fimm í dag. Slysið varð rétt vestan við Kambana, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Selfossi. Ökumaðurinn er ekki talinn mikið slasaður en bifreiðinn er mikið skemmd. Ökumaðurinn verður að öllum líkindum fluttur á slysadeild í Reykjavík til aðhlynningar. 3.7.2010 17:35
Tungulækur í Landbroti flæðir yfir bakka sína Tungulækur í Landbroti sunnan Kirkjubæjarklausturs flæðir nú yfir bakka sína og Grenlækur er bakkafullur, að sögn Björgvins Harðarsonar, bónda á Hunkubökkum. Ástæðuna má rekja til hlaupsins í Skaftá, sem náði hámarki fyrr í vikunni, en það veldur nú flóðum í ám og vötnum sem renna undan Eldhrauni. 3.7.2010 17:26
Hlýindi í uppsveitum Suðurlands Hlýindi hafa verið í uppsveitum Suðurlands í dag og hiti víða mælst um 20 gráður, eins og á Hjarðarlandi í Biskupstungum, í Þjórsárdal og í Landssveit. Á sama tíma hefur verið svalt fyrir norðan og austan og hitastig við ströndina aðeins náð átta til níu gráðum, eins og á Siglufirði og í Neskaupstað. 3.7.2010 17:24
Myrti mann fáeinum klukkustundum eftir að hafa öðlast frelsi Víðtæk leit fer nú fram í norðausturhluta Bretlands af karlmanni sem talinn er hafa myrt mann og sært konu lífshættulega í bænum Gateshead í nótt. Maðurinn heitir Raoul Thomas Moat sat í fangelsi allt þar til í gær þegar hann öðlaðist frelsi. Hann er fyrrverandi kærasti konunnar. 3.7.2010 17:12
Veltu bílnum á Bláfellshálsi Erlend hjón veltu bílaleigubíl á veginum um Bláfellsháls við Bláfell á Kjalvegi skömmu eftir hádegi í dag. Fólkið slasaðist ekki, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Hjónin fengu far með ferðamönnum sem höfðu ekið um Kjöl á Gullfosskaffi við Gullfoss til að bíða eftir nýjum bílaleigubíl svo þau gætu haldið ferðalaginu áfram. 3.7.2010 16:40
Bílvelta skammt frá Galtalæk Fólksbifreið valt á veginum milli Landvegamóta og Galtalækjar á þriðja tímanum í dag. Enginn slys urðu á fólki, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Lögreglan áætlar að í Galtalæk séu á bilinu þrjú til fimm þúsund manns á útihátíð en erfitt sé að meta fjöldann í kjarrinu. 3.7.2010 16:21
Makrílveiðar ganga vel Makrílveiðar íslenskra skipa innan íslensku fiskveiðilögsögunnar ganga vel þessa dagana. Um tíu skip eru að veiðum í dag eða á leið á miðin eða á landleið með afla. 3.7.2010 15:21
Á þriðja hundrað látnir í Kongó Óttast er að allt að 270 manns hafi látist þegar olíuflutningabíll sprakk í litlu þorpi í Kongó í nótt. Mikið eldhaf myndaðist þegar eldsneyti lak úr bílnum. Olíubíllinn var á leið með eldsneyti frá Tansaníu en fór út af veginum í þorpinu Sange, sem er skammt frá landamærunum að Rúanda. Eldsneyti flæddi úr bílnum þegar hann valt og kveiknaði í olíunni þegar hún hafði lekið um hluta þorpsins. Margir þeirra þorpsbúa sem fórust höfðu safnast saman þar sem olían lak í nótt og reynt að verða sér úti um eldsneyti. 3.7.2010 15:20
Ísland hafnaði í fjórða sæti Íslendingar höfnuðu í fjórða sæti á Evrópumótinu í bridds sem lauk fyrir stundu í Belgíu. Íslendingar spiluðu sinn síðasta leik við Rússa og unnu þá 19-11. Ítalir urðu Evrópumeistarar að þessu sinni, Pólverjar lentu í öðru sæti og Íraelar í því þriðja. 3.7.2010 15:07
Kátur kanslari Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er meðal þeirra fyrirmenna sem fylgjast með leik Þjóðverja og Argentínumanna í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Merkel er annálaður knattspyrnuáhugamaður og eins og sést á meðfylgjandi mynd fagnaði hún innilega þegar Thomas Müller kom Þjóðverjum yfir strax á annarri mínútu. 3.7.2010 15:04
Nýr bæjarstjóri á Akureyri kynntur til leiks á næstu dögum Oddur Helgi Halldórsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, vonast til að þess að hægt verði að tilkynna um ráðningu nýs bæjarstjóra á Akureyri fyrir næstu helgi. 3.7.2010 14:16
Þyrlan lent með sjómanninn Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli klukkan rúmlega hálf tvö í dag með alvarlega veikan sjómann. Gæslunni barst fyrir hádegi aðstoðarbeiðni frá skipinu Jóhönnu Gísladóttur sem var statt um 120 sjómílur vestnorðvestur af Garðskaga. Sjómaðurinn var fluttur með hraði á spítala með sjúkrabifreið, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. 3.7.2010 13:40
Fyrrverandi sendiherra: RÚV sýnir okkur fyrirlitningu „Sjónvarp íslenska ríkisins sýnir viðskiptavinum sínum meiri fyrirlitningu en nokkur önnur sjónvarpsstöð,“ segir Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra og ráðherra. 3.7.2010 13:14
Þingmaður hyggst mótmæla við Stjórnarráðið Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hvetur til mótmæla við Stjórnarráðið á bloggsíðu sinni. Um er að ræða mótmæli vegna tilmæla Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna dóms Hæstaréttar um ólögmæti gengislána. „Ég ætla að mæta,“ segir Birgitta. 3.7.2010 12:52
Parhús á Þingeyri selt á 75 þúsund krónur Ísafjarðarbær hyggst selja 130 fermetra parhús á Þingeyri fyrir 75 þúsund krónur. Bærinn eignaðist húsið á uppboði, auglýsti svo í vor eftir kauptilboðum og samþykkti bæjarráð fyrr í vikunni að leggja til við bæjarstjórn að eina tilboðinu sem barst, upp á 75 þúsund krónur, yrði tekið. Samkvæmt lýsingu er húsið Fjarðargata 35a steypt parhús, byggt árið 1923. Fasteignamat hljóðar upp á 3,8 milljónir króna en brunabótamat hússins er 18,4 milljónir króna. Þorleifur Pálsson, bæjarritari Ísafjarðarbæjar, skýrir þetta lága verð með því að húsið sé í hörmulegu ástandi og þarfnist viðgerða upp á milljónir króna. 3.7.2010 12:45
Veðrið setur strik í reikninginn á Humarhátíðinni á Höfn Óvíst er með dagskrá Humarhátíðar á Höfn í dag en leiðinlegt veður er í bænum. Nokkrir gestir tjaldsvæðisins þurftu á aðstoð að halda í nótt vegna vatnsveðurs. 3.7.2010 12:25
Heilbrigðiseftirlitið krefst úrbóta: Sundlaugin í Þjórsárdal lokuð Ein óvenjulegasta ferðamannasundlaug landsins, sundlaugin í Þjórsárdal, verður ekki opnuð í sumar. Að sögn Sunnlenska, fréttavef Sunnlendinga, er ástæðan sú að Heilbrigðiseftirlitið krefst úrbóta á lauginni. Laugin er við hverasvæði í afar sérstöku umhverfi innarlega í Þjórsárdal en starfsmenn sem unnu við Búrfellsvirkjun gerðu laugina fyrir meira en 40 árum. 3.7.2010 12:12
Þyrla sækir alvarlega veikan sjómann Þyrla landhelgisgæslunnar fór í loftið klukkan 11:20 eftir að tilkynning barst um að sjóðmaður um borð í íslensku fiskiskipi væri alvarlega veikur. Skipið er 120 sjómílur vestnorðvestur af Garðskaga og verður þyrlan, TF Gná, komin að skipinu klukkan 12:20. 3.7.2010 11:51
Tilkynnt um nýjan framkvæmdastjóra í næstu viku Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur ekki gengið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra sjóðsins. Gunnar S. Björnsson, varaformaður stjórnar, segir að ákvörðun um nýjan framkvæmdastjóra verði að öllum líkindum tekin á stjórnarfundi í næstu viku. Í framhaldinu verði tilkynnt um eftirmann Guðmundar Bjarnasonar sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri á fimmtudaginn. Guðmundur hefur stýrt sjóðnum allt frá því að hann hætti í stjórnumálum fyrir rúmum áratug. 3.7.2010 11:34
Umferðareftirlit úr lofti Lögreglan stundar umferðareftirlit úr lofti með þyrlu stærstu ferðahelgar sumarsins og fram yfir Verslunarmannahelgina. Auk þess sem hægt er fylgjast vel með umferðinni úr þyrlunni og grípa þá ökumenn sem aka of hratt þá hefur hún einnig forvarnargildi. Þá vita ökumenn að lögreglan er að fylgjast með. 3.7.2010 10:26
Sumarsæla í Skagafirði Yfirlitssýning á kynbótahrossum er að hófst klukkan tíu á Vindheimamelum í Skagafirði. Ef ekki hefði komið til hrossasóttin í vor stæði þar nú yfir landsmót hestamanna en eftir að því var aflýst ákváðu Skagfirðinga engu að síður að blása til hátíðar í héraðinu þessa vikuna undir heitinu Skagfirsk sumarsæla. 3.7.2010 10:20
Ánægð með tilmæli talsmanns neytenda Hagsmunasamtök heimilanna lýsa yfir ánægju með tilmæli talsmanns neytenda til fjármálafyrirtækja um að lægri föst krónutala verði innheimt til bráðabirgða af lánum sem vafi leikur á hvort falli undir fordæmisáhrif nýlegra gengisdóma Hæstaréttar. 3.7.2010 10:18
Allt að 200 látnir í Kongó Óttast er að allt að 200 manns hafi látið lífið þegar olíuflutningabíll sprakk í litlu þorpi í Kongó í nótt. Bíllin var á leið með eldsneyti frá Tansaníu og fór út af veginum þegar inn í þorpið var komið, með fyrrgreindum afleiðingum. 3.7.2010 10:13
Meirihlutinn í Reykjavík nýtur mikils stuðnings Borgarstjórnarmeirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar nýtur stuðnings 71% borgarbúa samkvæmt nýrri könnun sem Miðlun gerði fyrir Morgunblaðið og blaðið greinir frá í dag. Flokkarnir hlutu samanlagt tæp 54% atkvæða í borgarstjórnarkosningunum þann 29. maí síðastliðinn. 3.7.2010 10:03
Þingmaður VG: Mistök að draga umsókn til baka Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna og formaður utanríkismálanefndar, telur að það væru mistök að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka. Þetta segir hann í grein í Fréttablaðinu í dag. 3.7.2010 09:58
Fjórir gistu fangageymslur á Akranesi Talsverð ölvun var í Galtalæk í nótt en þar fer fram útihátíð um helgina og telur lögreglan á Hvolsvelli að þar sé á bilinu 3000-5000 manns. Lögregla stöðvaði tvo ökumenn á svæðinu sem grunaðir voru um ölvunarakstur. 3.7.2010 09:52
Bjargað úr eldsvoða á Mýrargötu Konu var bjargað úr húsi á Mýrargötu í Reykjavík í morgun eftir að eldur kviknaði í í geymslu í kjallara hússins. Þegar slökkvilið kom á staðinn var mikill reykur í stigaganginum en þá hafði lögreglan aðstoðað þrjá íbúa á fyrstu hæð hússins út um glugga sem lögreglumenn brutu. Konan var á annarri hæð og aðstoðuðu slökkviliðsmenn hana með svokölluðum björgunarmaska sem settur var yfir andlit hennar vegna reyksins. Vel gekk að slökkva eldinn en slökkviliðsmenn eru enn á staðnum, að sögn varðstjóra. Tilkynnt var eldinn skömmu fyrir klukkan níu. 3.7.2010 09:27
Minna menntuð en við héldum Íslendingar guma gjarnan af menntun þjóðarinnar og bent var á hana sem eitt af úrræðunum út úr kreppunni. Vissulega er fjöldi fólks vel menntaður, en rannsóknir sýna að íslensk ungmenni eru minna menntuð en jafnaldrar þeirra í samanburðarlöndunum. 3.7.2010 06:00
Gripin með 26 kíló af smygluðu glingri Fjórir Rúmenar, tveir karlar og tvær konur, voru látin greiða rúmlega 50 þúsund krónur í sekt eftir að þau höfðu verið gripin með um 26 kíló af smygluðum skartgripum í fyrradag. Tollgæslan á Seyðisfirði hafði afskipti af fjórmenningunum sem komu með Norrænu til landsins frá Danmörku. Góssið hafði verið vandlega falið í frambrettum tíu ára gamallar Benz-bifreiðar, að sögn Árna Elíssonar, yfirmanns tollgæslunnar á Seyðisfirði. 3.7.2010 05:00
Erfitt að fá menn að borðinu „Það hefur gengið mjög erfiðlega að koma þessum viðræðum aftur í gang eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í mars. En það er jákvætt að menn eru nú tilbúnir til að fara í þessa vinnu aftur,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. 3.7.2010 04:30
Eldgos yfirvarp rána í Svíþjóð Þjófar hafa komist inn í hús eldra fólks í Lundi í Svíþjóð með því að segjast vera að rannsaka hvernig eldgosið á Íslandi hefur áhrif á eldra fólk. 3.7.2010 03:00
Myrt ásamt manni sínum á leið heim úr afmælisveislu Forsprakki eiturlyfjahrings í Mexíkó hefur lýst því verki á hendur sér að fyrirskipa morð á bandarískum ræðismanni, Lesley Enriquez, og eiginmanni hennar sökum þess að hún hafi veitt andstæðingum hans vegabréf í landamæraborginni Ciudad Juarez. 3.7.2010 02:00
Kattafár á Kársnesi: Heimilisfaðir handsamar villikött Villiköttur braust inn á heimili fjölskyldu í Kópavoginum, áreytti heimilisköttinn og skemmdi innanstokksmuni. Engar reglur eru um kattahald í Kópavoginum og þurfti fjölskyldan sjálf að handsama köttinn og koma á dýraspítala. 2.7.2010 21:04
Stjörnuskandall á HM: Paris Hilton handtekin fyrir að reykja gras Lögreglan í Suður Afríku er sögð hafa handtekið Paris Hilton fyrir að reykja maríúana eða gras. Paris Hilton er nú stödd í Suður Afríku til að horfa á úrslitakeppnina í HM í fótbolta. Hún var á leik Hollands og Brasilíu þegar lögreglan fylgdi henni út af Nelson Mandela vellinum í Port Elizabeth. 2.7.2010 22:37
Þyrla Landhelgisgæslunnar í umferðareftirliti Nú fyrir skömmu lenti þyrla Landhelgisgæslunnar í Húsadal. Samkvæmt Hrafnhildi Brynju Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, er ekki um útkall að ræða - þyrlan sinni umferðareftirliti með lögreglunni. 2.7.2010 22:07
Bobby grafinn upp eftir helgi Stefnt er að því að grafa lík Bobbys Fisher upp í næstu viku samkvæmt heimildum Vísis. Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður sagðist, í samtali við Vísi, ekki geta staðfest það en hann býst við því að málin skýrist fljótlega eftir helgina. 2.7.2010 22:05
Ætlar að berjast fyrir reglum um kattahald „Nú er bara að bretta upp ermarnar og keyra þetta mál í gegn," segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Guðríður hefur í mörg ár barist fyrir reglum um kattahald í bænum og segir nú vera tíma til aðgerða. 2.7.2010 21:27
Hagmunasamtök heimilana ánægð með Gísla Í fréttatilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilana er lýst ánægju með tilmæli Gísla Tryggvasonar, umboðsmann neytenda. Samtökin telja að í tilmælum Gísla felist að neytendur séu látnir njóta vafans. 2.7.2010 19:51
Uppboð á köttum á morgun Dýravinir geta bjargað tugum dýra frá svefninum langa á morgun - þegar uppboð á köttum, hundum og kanínum verður í Dýraríkinu. Dýrahjálp Íslands segir neyðina mikla - bæði vegna kreppu og sumarleyfa. 2.7.2010 19:46