Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu marijúana og peninga í íbúð í Vestmannaeyjum Í gærkvöldi gerði lögreglan í Vestmannaeyjum húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í bænum. Við leit í íbúðinni fundust um 55 grömm af marijúana og nokkur grömm af hassi. Húsráðandinn var handtekinn og færður í fangageymslu þar sem hann gisti síðastliðna nótt. Hann viðurkenndi að eiga efnin og sagði þau til eigin nota og neitaði að efnin væru ætluð til sölu. 2.7.2010 15:16
Þorleifur vill að fátækir fái sumarbónus Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í velferðarráði hefur óskað eftir því að ráðið verði kallað saman til aukafundar sem fyrst. Þetta gerir Þorleifur í ljósi þess að hjálparstofnanir hafa lokað fyrir matargjafir í sumar að því er fram kemur í tilkynningu frá flokknum. Þorleifur hefur einnig óskað eftir upplýsingum um hvað það kosti borgina að veita 15 þúsund króna sumarbónus til þeirra einstaklinga sem njóta fjárhagsaðstoðar frá borginni auk fimm þúsund króna vegna barns. 2.7.2010 14:19
Endurheimtu húsið úr höndum Arion banka Eftir gengislánadóma Hæstaréttar hefur 6 manna fjölskylda í Hafnarfirði endurheimt húsið sitt úr höndum Arion banka - sem keypti það á nauðungarsölu í vor. Uppboðið var ógilt nú í vikunni. 2.7.2010 18:26
Talskona Stígamóta: Ánægð með skilning laganna Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segist vera ánægð með þann skilning laganna að kaup á vændi sé í raun ofbeldi. En karlmaður var dæmdur í morgun til að greiða 80 þúsund krónur í sekt fyrir að kaupa vændi fyrir 15 þúsund krónur. Hún segir í samtali við fréttastofu að aðalatriðið sé að dæmt sé í þessum málum og lögunum sé fylgt eftir og tekin alvarlega. 2.7.2010 15:03
Amfetamínsmygl: Íslenskir lögreglumenn í Þýskalandi Konurnar tvær sem voru handteknar á Seyðisfirði þann 17. júní síðastliðinn með 20 lítra af amfetamínbasa, hafa verið úrskurðaðar í áframhaldandi gæsluvarðhald, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 2.7.2010 13:24
Fékk 80 þúsund króna sekt fyrir að kaupa vændi Héraðsdómur dæmdi í morgun karlmann til að greiða 80 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa greitt 15 þúsund krónur fyrir vændi. Þá var annar karlmaður dæmdur til að greiða 40 þúsund krónur fyrir tilraun til að vændiskaupa. Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari segir að verið sé að fara yfir það hvort að dómunum verði áfrýjað en vegna þess hve upphæðin er lág í hvoru tilviki fyrir sig, þarf sérstakt áfrýjunarleyfi frá Hæstarétti. 2.7.2010 11:57
Jaycee Dugard fær milljarða í bætur Yfirvöld í Kalíforníu hafa fallist á að greiða hinni þrítugu Jaycee Dugard, sem haldið var í kynlífsþrælkun í átján ár af Philip Garrido um tvo og hálfa milljarða í bætur. Dugard ól Garrido tvær dætur en Garrido var á reynslulausn vegna nauðgunardóms og áttu yfirvöld að fylgjast grannt með honum. 2.7.2010 14:41
Hlaupið kemur fram neðan Eldhrauns Vatnsrennsli í Grenlæk í Landbroti hefur fimmfaldast á síðustu dögum. Ástæðan er hlaupið í Skaftá en hluti þess rann út á Eldhraun og Grenlækur rennur undan suðaustanverðu hrauninu, sunnan Kirkjubæjarklausturs. Vatnavextirnir þar koma því fram þremur til fjórum sólarhringum eftir að Skaftárhlaupið náði hámarki í byggð. 2.7.2010 13:28
Ragna fundar með kollegum í Finnlandi Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra sat í dag árlegan fund með norrænum ráðherrum útlendingamála í Borgå í Finnlandi. 2.7.2010 13:24
Dómsmáli vegna Urriðafossvirkjunar vísað frá Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómsmáli sem Flóahreppur höfðaði gegn Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, fyrir að neita að staðfesta aðalskipulag hreppsins sem gerði ráð fyrir Urriðafossvirkjun. Dómari vísaði málinu frá á þeirri forsendu að skipulagsferlið væri hafið að nýju og því ekki lögvarðir hagsmunir af úrlausn máls fyrir dómi. Flóahreppur hefur þegar ákveðið að bera frávísunina undir Hæstarétt, að sögn Margrétar Sigurðardóttur sveitarstjóra. Umhverfisráðherra neitaði að staðfesta aðalskipulagið þar sem Landsvirkjun hafði greitt fyrir skipulagsvinnu. Flóahreppur telur það hins vegar hafa verulega almenna þýðingu að fá úr því skorið hvort lagatúlkun ráðherrans standist. 2.7.2010 13:07
Vilja rýmka heimildir varðandi brot á virðisaukaskattskilum Nýverið var fallið frá kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Jóns Sigurðssonar og Hannesar Smárasonar eftir að Hæstiréttur felldi úr gildi kyrrsetningu á eignum fjórða mannsins, Skarphéðins Bergs Steinarssonar. 2.7.2010 13:00
Stokkhólmur: Lögregla réðst til atlögu við bankaræningja Lögreglan í Stokkhólmi réðst í dag inn í banka á Östermalmstorgi en þar hafði bankaræningi tekið starfsmenn og viðskiptavini bankans í gíslingu. Umsátursástand skapaðist í stutta stund áður en lögreglan ákvað að ráðast með alvæpni inn í bankann. 2.7.2010 12:50
Rannsókn á banaslysi: Beðið eftir að ofninn kólni Rannsókn á því hvað olli banaslysinu í járnblendiverksmiðjunni í Grundartanga fyrr í vikunni er enn ólokið. Sprenging var í einum ofna verksmiðjunnar en ekki er hægt að hefja rannsókn fyrr en ofninn kólnar. 2.7.2010 12:37
Aftur fundað um Icesave Samninganefnd íslenskra stjórnvalda hefur í gær og í dag fundað með fulltrúum breskra og hollenskra stjórnvalda í Reykjavík um Icesave málið. 2.7.2010 12:28
Gengistrygging: Prófmál þingfest í héraði Prófmál um uppgjör gengistryggðra lánasamninga var þingfest fyrir héraðsdómi í gær. Rati málið fyrir hæstarétt mun dómur réttarins að öllum líkindum eyða óvissu um hvort samningsvextir lánanna standi eða ekki. 2.7.2010 12:21
Veittust að veitingamanni og hótuðu honum lífláti Davíð Steingrímsson veitingamaður sem áður var kenndur við Vegas á Laugavegi lenti í því í morgun að tveir menn veittust að honum og hótuðu honum lífláti. Vegas hefur nú verið lokað í kjölfar banns við nektarsýningum og er Davíð nú í óðaönn við að standsetja nýjan stað í sama húsnæði sem á að heita"Ob-La-Di, Ob-La-Da" en á staðnum verður bítlatónlist í fyrirrúmi. 2.7.2010 11:42
Heimskir bræður Tveir breskir bræður hafa verið dæmdir fyrir að nota bíl til þess að brjóta glugga á bensínstöð og stela þaðan tóbaki fyrir tíuþúsund sterlingspund. 2.7.2010 11:37
Tæplega 500 fjölskyldur í Kópavogi fengu fjárhagsaðstoð Alls fengu 495 fjölskyldur í Kópavogi fjárhagsaðstoð hjá Félagsþjónustu Kópavogs á árinu 2009 samanborið við 396 fjölskyldur árið á undan. Jafngildir það 25% aukningu. Þetta kemur fram í ársskýrslu Félagsþjónustu Kópavogs fyrir árið 2009. Þar segir að eftirspurn eftir félagslegri ráðgjöf og fjárhagsaðstoð hafi aukist í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi í október 2008. 2.7.2010 11:21
Hitamet slegið í Hólminum Aldrei hefur meðalhiti í júnímánuði verið jafn mikill Í Stykkishólmi frá upphafi athugana 1845. Meðalhitinn þar var 10,8°C. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á heimasíðu sinni. 2.7.2010 10:41
Þingnefndir funda um ólöglegu lánin Sameiginlegur fundur viðskiptanefndar Alþingis og efnahags- og skattanefndar hefur verið boðaður á mánudaginn kemur, 5. júní. Aðalumræðuefnið eru tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vegna lánasamninga sem innihalda gengisviðmið gagnvart erlendri mynt. Á heimasíðu Alþingis er þess getið að gestir hafi verið boðaðir á fundinn en þess ekki getið hverja er um að ræða. 2.7.2010 10:37
Rosalega dýr sólgleraugu Dönsk kona fékk einnar komma sex milljóna króna sekt á Ítalíu fyrir að kaupa ódýra eftirlíkingu af Dolce&Gabbana sólgleraugum í sumarfríinu. 2.7.2010 10:29
Amfetamínsmygl: Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir konunum tveim sem voru handteknar 17. júní síðastliðinn, en gæsluvarðhald rennur út í dag. Í bíl sem þær komu í með Norrænu voru 20 lítrar af amfetamín-basa faldir í bensíntanki bifreiðarinnar. Hægt er að framleiða 264 kíló af amfetamíni úr vökvanum, en þetta er stærsti amfetamínfundur á Íslandi til þessa. 2.7.2010 09:47
Aurskriða féll í Búlandsdal -vatnslaust á Djúpavogi Aurskriða féll í nótt á vatnsveitumannvirki í Búlandsdal þannig að nú er vatnslaust á Djúpavogi. Starfsmenn hreppsins eru á vettvangi og vinna að lagfæringum. Búist er við að það taki allan daginn, en nú er verið að tengja leilðslu framhjá miðlunarmannvirkjunum þannig að vatn fer að berast til bæjarins, en þó aðeins til brýnustu nauðsynja. 2.7.2010 09:26
42 prósent styðja ríkisstjórnina Stuðningur almennings við ríkisstjórnina mældist 42 prósent í könnun, sem Miðlun gerði í nýliðnum mánuði fyrir Morgunblaðið. Þetta er hlutfall meðal þeirra sem tóku afstöðu. 2.7.2010 09:24
Laxveiðimaður gistir í risaskútu á Blönduósi Þýski auðkýfingurinn Ottó Happel, sem er á lista Forbes yfir ríkustu menn heims, kom hingað til lands með flugi í gær til að renna fyrir lax í Blöndu. 2.7.2010 08:43
Tugir féllu í skotbardaga við landamæri Mexíkós og Arizona Á þessari stundu er ekki vitað um orsök þessa skotbardaga en talið er að þarna hafi tekist á liðsmenn eiturlyfjabaróna og smyglara sem hafa að atvinnu að smygla óolöglegum innflytjendum til Bandaríkjanna. 2.7.2010 08:07
Danski skattmann ygglir sig Eitt stærsta fjársvikamál sem um getur í Danmörku er nú til rannsóknar hjá skattayfirvöldum að sögn þarlendra fjölmiðla. 2.7.2010 07:10
Bjóða þúsund menn í skiptum fyrir einn Gilad Shalit var nítján ára gamall ísraelskur hermaður þegar Hamas samtökin náðu honum á sitt vald fyrir fjórum árum. 2.7.2010 06:58
Nágrannar sætti sig við tvöföldun á húsi Kæru eigenda fjögurra húsa í Mávanesi vegna byggingar tæplega 800 fermetra einbýlishúss við götuna hefur verið vísað frá úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála. 2.7.2010 06:30
Bótasjóði breskra togarasjómanna lokað Breska ríkisstjórnin hefur lokið bótagreiðslum til breskra togarasjómanna sem misstu atvinnuna í kjölfar þorskastríðanna við Íslendinga á áttunda áratugnum. Heildargreiðslur til hundraða sjómanna frá Aberdeen, Grimsby og Hull nema um 60 milljónum punda, eða rúmlega ellefu milljörðum króna. 2.7.2010 06:00
Intersport segir starfsfólk sitt svindla Forsvarsmenn Intersports telja starfsfólk á afgreiðslukössum verslunarinnar misnota aðstöðu sína til að selja skyldmennum sínum vörur með afslætti. Þetta kemur fram í svari fyrirtækisins til Persónuverndar. 2.7.2010 05:45
Fréttaskýring:Gengislán fyrir dómi Hvernig ratar hin nýja leið yfirvalda til að gera upp gengistryggð lán fyrir Hæstarétt? 2.7.2010 05:30
Gott svigrúm til samkeppni Iceland Express ætlar að hefja flug til Orlando í Flórída í október. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir leiðina vera mjög vinsæla meðal Íslendinga og gott svigrúm sé fyrir samkeppni á markaðnum. 2.7.2010 05:15
Sælgætisverksmiðjunni fargað Botn virðist fenginn í mál brjóstsykursverksmiðjunnar sem hvarf í Hafnarfirði í fyrrasumar. Einungis tveimur dögum eftir að sælgætisgerðarmaðurinn Jóhannes G. Bjarnason sagði frá hvarfi verksmiðju sinnar í Fréttablaðinu fyrir tæpum þremur vikum hafði ungur maður samband við hann og gat varpað nokkru ljósi á atburðarásina. 2.7.2010 05:00
Tekjur ríkisins voru 40 milljörðum yfir áætlun Heildartekjur ríkissjóðs árið 2009 eru mun hærri en búist var við í áætlunum. Gert var ráð fyrir um 398 milljörðum í tekjur, en endanleg niðurstaða er tæpir 440 milljarðar króna. Þetta kemur fram í ríkisreikningi sem lagður verður fram á næstu vikum. 2.7.2010 04:45
Rataði aftur í hús skáldsins Munnharpa Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi rataði heim í Davíðshús á Akureyri í vikunni, eftir að hafa verið löngu talin glötuð. 2.7.2010 04:45
Létu rigninguna ekki trufla sig Talið er að hátt í tíu þúsund manns hafi fylgst með tónleikunum Iceland Inspires þegar best lét í Hljómskálagarðinum í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Rigning setti strik í reikninginn fyrsta klukkutímann og voru margir tónleikagesta undir það búnir. Þegar líða tók á kvöldið stytti upp og bættist þá í hóp tónleikagesta. 2.7.2010 04:30
Sinnir sárustu neyð í sumarlokuninni Mæðrastyrksnefnd mun hjálpa skjólstæðingum sem eru í sárustu neyð, þótt hefðbundin sumarlokun standi nú yfir hjá nefndinni, svo fremi sem það er mögulegt. Þetta segir Ragnhildur Guðmundsdóttir formaður hennar. 2.7.2010 04:15
Fréttaskýring: Almenningur orðið fyrir búsifjum Til að fá marktækan samanburð á verði milli landa er nauðsynlegt að hafa í huga kaupmátt íbúa þeirra landa sem verið er að bera saman. Í flestum ríkja þriðja heimsins eru matvæli þannig ódýrari en þekkist á Vesturlöndum. Það þýðir hins vegar ekki að íbúar þriðja heims ríkja séu betur settir því sem hlutfall af launum þeirra eru matvæli dýrari en Vesturlandabúar eiga að venjast. 2.7.2010 04:15
Engin ákvörðun tekin enn Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin í borgarráði varðandi lækkun fasteignamats. Fundað verði um málið í næstu viku. 2.7.2010 04:00
Nýtt fangelsi boðið út í haust Bygging nýs gæsluvarðhalds- og skammtímavistunarfangelsis verður boðin út fyrir lok september næstkomandi. Þá hefur dómsmála- og mannréttindaráðherra skipað nefnd sem ætlað er að gera tillögur að langtímaáætlun á sviði fullnustumála, að því er fram kemur í frétt frá dómsmálaráðuneyti. 2.7.2010 03:30
Segir öskufokið það versta síðan í gosinu Mikill öskubylur var undir Eyjafjöllum í gær. Ekkert hafði rignt um daginn og fóru vindhviður yfir 40 metra á sekúndu. Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, segir ekki hafa verið mögulegt að vera utandyra þegar hviðurnar voru sem mestar og fokið hafi verið það mikið að skyggni hafi farið undir 300 metra, en vind hafi lægt undir kvöld. 2.7.2010 03:30
Lokuðu ólöglegum síðum Níu bandarískum vefsíðum sem buðu upp á ólöglegt niðurhal á kvikmyndum var lokað í gær. Síðurnar höfðu sumar boðið upp á niðurhal á glænýjum myndum eins og Toy Story 3 og Iron Man 2 innan sólarhrings frá því að þær voru frumsýndar. 2.7.2010 02:00
Bílalán algengust í vanskilum Ráðgjafarstofunni bárust alls 1.623 umsóknir árið 2009 og er það mesti fjöldi sem stofunni hefur borist. 2.7.2010 01:30
Olli tjóni við ströndina Búist er við að olíuhreinsunarstarf við Mexíkóflóa tefjist um allt að hálfan mánuð vegna fellibylja, sem eru að fara yfir svæðið. 2.7.2010 01:15