Erlent

Myrt ásamt manni sínum á leið heim úr afmælisveislu

Chavez sést hér í miðið ásamt félögum í glæpagengi, en þeir voru handteknir nýverið.
Chavez sést hér í miðið ásamt félögum í glæpagengi, en þeir voru handteknir nýverið. Nordiphotos/AFP

Forsprakki eiturlyfjahrings í Mexíkó hefur lýst því verki á hendur sér að fyrirskipa morð á bandarískum ræðismanni, Lesley Enriquez, og eiginmanni hennar sökum þess að hún hafi veitt andstæðingum hans vegabréf í landamæraborginni Ciudad Juarez.

Maðurinn heitir Jesus Ernesto Chavez og var handtekinn í síðustu viku. Er hann leiðtogi hóps leynimorðingja sem vinna fyrir gengi, samkvæmt fíkniefnadeild lögreglunnar í landinu.

Lögreglan staðfestir orð Chavez um að hafa fyrirskipað morðið á Enriquez og eiginmanni hennar, sem framið var 13. mars. Enriquez var gengin fjóra mánuði með barn þeirra hjóna, en þau voru bæði skotin til bana í bifreið sinni á leið heim úr afmælisveislu. Sjö mánaða gömul dóttir þeirra fannst grátandi í aftur­sætinu í kjölfarið.

Jorge Alberto Salcido, eiginmaður annars bandarísks ræðismanns, var einnig skotinn til bana í bíl sínum eftir að hann yfirgaf sömu afmælisveislu.

Átök samtaka Chavez við aðra fíkniefnahringi í borginni hafa gert Ciudad Juarez að einni hættulegustu borg í heimi. Rúmlega 2.600 manns voru myrtir á síðasta ári, en íbúar borgarinnar eru 1,3 milljónir. - sv





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×