Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í bílaverkstæði á Skemmuvegi Um 16 slökkviliðsmenn eru núna á vettvangi á Skemmuvegi 24 í Kópavogi. Það kviknaði í bifreið sem var innan dyra. Bíllinn er ónýtur og einhverjar skemmdir eru á húsinu sjálfu. Mikinn reyk lagði frá húsinu. Ekki er vitað til þess að fólk hafi slasast. 17.6.2010 15:16
Eldur í hesthúsi í Skagafirði Slökkvilið Skagafjarðar var kallað að hesthúsi á Nöfunum um tólf leytið í dag. Kviknað hafði í hesthúsi en þegar slökkvilið kom á staðinn logaði tölverður eldur í húsinu. Húsið hafði á árum áður verið notað sem fjárhús en síðustu ár hefur það gengt hlutverki hesthús og eða tryppiskýlis. Eigendur hússins höfðu verið þarna fyrr í morgun en ekki orðið varir við neitt. Þetta kemur fram á fréttavefnum Feykir.is. 17.6.2010 14:13
Jóhanna: Sannfærð að við munum sigrast á efnahagsþrengingum Það er hátíðarbragur yfir miðbænum í dag á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Formleg dagskrá hófst klukkan 10 í morgun þegar blómakrans var lagður á leiði Jóns Sigurðssonar forseta í kirkjugarðinum við Suðurgötu. 17.6.2010 12:59
Ekkert rignt á Akureyri í mánuð Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir á heimasíðu sinni að nánast ekkert hafi rignt á Akureyri í nærri mánuð. Hann segir síðustu úrkomu sem hægt er að tala um hafi verið 19. til 20. maí. 17.6.2010 11:08
Reynt að stinga rangan mann Fjórir menn í annarlegu ástandi réðust inn í íbúð í sunnanverðum Hafnarfirði á laugardaginn var vopnaðir hnífum og réðust að húsráðanda sem þar var með ungum syni sínum. 17.6.2010 06:00
Til hagsbóta fyrir marga Fjármálaráðherra segir að það sé með endemum að það sé að koma á daginn að umfangsmikil lánastarfsemi á Íslandi hafi verið byggð á ólögmætum gjörningum. 17.6.2010 06:00
Júlli í Draumnum segist ekki selja fíkniefni „Þetta er uppblásið og stór hluti af þessu lygar,“ segir Júlíus Þorbergsson, betur þekktur sem Júlli í Draumnum. Hann losnaði úr gæsluvarðhaldi í gær, en þar hafði hann setið síðan fyrir helgi grunaður um að selja fíkniefni og lyfseðilsskyld lyf í verslun sinni. 17.6.2010 06:00
Íslandi stefnt fyrir EFTA-dómstólinn Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að stefna Íslandi fyrir EFTA-dómstólinn. Ísland mótmælti því áliti sem stofnunin setti fram í fyrra að ákvæði íslenskra laga og kjarasamninga um laun í veikindaforföllum og slysatryggingar ættu ekki að ná til erlendra starfsmanna sem hér ynnu. ESA benti á að tilskipun um útlenda starfsmenn gerði almennt ráð fyrir því að um slík réttindi fari samkvæmt lögum og samningum í heimaríkjum erlendu starfsmannanna. 17.6.2010 06:00
Engin áhrif á eignir lífeyrissjóða Dómur Hæstaréttar um ólögmæti myntkörfulána hefur engin áhrif á eignasafn lífeyrissjóðanna, segir Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða. 17.6.2010 06:00
Íbúðalánin líklega ólögmæt „Það er með miklum eindæmum að þessi bolti fór af stað og að öllum þeim lögfræðingum sem útbjuggu lánasamningana hafi ekki tekist að gera þá þannig úr garði að þeir væru löglegir," segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, um niðurstöðu Hæstaréttar. Líkt og fram kemur hjá Hæstarétti hefur gengistrygging lána í krónum verið óheimil í níu ár. 17.6.2010 06:00
fréttaskýring: Kemur aftur saman í júní Alþingi lauk störfum fyrir hlé í gær, eftir mikla fundatörn. Kunnuglegur söngur heyrðist úr þingsal þegar stjórnarandstaðan gagnrýndi stjórnarliða fyrir skipulagsleysi og að ætla sér að koma allt of mörgum þingmálum í gegn um þingið á of skömmum tíma. Breytingin var þó að nú voru fyrrum stjórnarliðar að gagnrýna fyrrum stjórnarandstæðinga. 17.6.2010 05:30
Fréttaskýring: Leiðtogaráðið tekur umsókn Íslands fyrir Hvað tekur nú við í aðildarumsókn Ísland að ESB? Leiðtogaráð Evrópusambandsins samþykkir að öllum líkindum aðildarviðræður við Ísland á fundi sínum í dag. Þá fer af stað ferli, sem getur staðið hátt í tvö ár eða jafnvel lengur. 17.6.2010 05:15
Bíður morguns Fyrirtækið Þráinn tók fimm lán upp á 357 milljónir króna á árunum 2006 til 2007. Þeim svipar til mála gengistryggðu lánanna sem Hæstiréttur dæmdi ólögmæt í gær en þau voru tengd japönsku jeni. Í nóvember í fyrra stóð höfuðstóllinn í 887 milljónum króna auk vaxta og kostnaðar. 17.6.2010 05:00
Orsök pestar enn óþekkt Enn hefur ekki verið hægt að tengja smitandi hósta í hrossum þeim veirum sem þekktar eru fyrir að leggjast á öndunarfæri hrossa. Þetta kom fram á fundi stýrihóps fulltrúa Matvælastofnunar, Tilraunastöðvarinnar á Keldum og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis í gær. 17.6.2010 04:45
Skrímslin vöknuð til lífsins á Bíldudal Hugmyndin að Skrímslasetrinu kviknaði sumarið 2007 á bæjarhátíðinni Bíldudals grænar baunir, þar sem meðal annars var boðið upp á skrímslaferðir. „Þetta var gífurlega vinsælt og vakti mikla athygli í fjölmiðlum," segir Valdimar Gunnarsson, formaður Félags áhugamanna um Skrímslasetur. „Við sáum að það var hægt að gera eitthvað meira og stofnuðum því félagið." 17.6.2010 04:15
Falsaði nafn á bílasamning Karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi og til ævilangar sviptingar ökuréttar. 17.6.2010 04:00
Þrír Haítíbúar á leið til Íslands félagsmál Þrír Haítíbúar, kona um fimmtugt, þrettán ára stúlka og ellefu ára drengur, eru væntanlegir til Íslands í ágúst. 17.6.2010 03:45
Kýldi og sparkaði í stúlku Rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir að hafa kýlt og sparkað í stúlku í íbúðarhúsnæði í Kópavogi. 17.6.2010 03:30
Fjörulallar og marhross Frá fornu fari hafa verið sagðar sögur á Íslandi um kynjaverur sem heima áttu í undirdjúpunum. Hvergi á Íslandi eru þó fleiri frásagnir um þær en í Arnarfirði og eru á annað hundrað skráðar frásagnir til þar sem menn hafa komist í tæri við skrímsli. 17.6.2010 03:00
Hagstæðustu vextir Seðlabanka til álita efnahagsmál Stjórnvöld eru að kanna hvort í lögum finnist nægileg leiðsögn til að bregðast við dómi Hæstaréttar í gær um að gengistryggð lán séu ólögmæt. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra bendir á að samkvæmt þeim beri kröfuhafa að endurgreiða skuldara þá fjárhæð sem hann hefur ranglega af skuldara haft. Þeir sem hafa borgað of mikið af erlendum lánum gætu því átt von á endurgreiðslu. Sé krafan óverðtryggð á samkvæmt lögunum að miða við hagstæðustu óverðtryggðu útlánsvexti Seðlabankans. 17.6.2010 03:00
Oddný vill búa til nýtt kerfi Systkinaforgangur verður tekinn upp á ný á leikskólum borgarinnar samkvæmt málefnasamningi Besta flokks og Samfylkingar. Þetta stangast á við lög, að mati borgarlögmanns. 17.6.2010 02:30
Horfur slæmar í efnahagslífi Efnahagsmál Aðstæður í efnahagslífinu eru slæmar að mati 87 prósenta stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum 400 stærstu fyrirtækja landsins. Könnunin var gerð í maí og byrjun júní en afstaða stjórnenda hefur ekki breyst frá síðustu könnun sem gerð var í febrúar og mars síðastliðnum. Aðeins eitt prósent stjórnenda taldi aðstæður góðar í efnahagslífinu en tólf prósent töldu þær hvorki góðar né slæmar.- mþl 17.6.2010 02:15
Óttast að flóðin kostuðu tugi manns lífið Óttast var í gær að flóðin í sunnanverðu Frakklandi hafi kostað meira en þrjátíu manns lífið. Vitað var um nítján dauðsföll síðdegis, en að auki var að minnsta kosti tólf manns saknað. 17.6.2010 01:00
Jesús litli sýning ársins Sýningin Jesú litli hlaut Grímuna fyrir sýningu ársins 2010. Þá hlaut Hilmir Snær Guðnason Grímuna fyrir leikstjórn en hann leikstýrði Fjölskyldunni. En Margrét Helga Jóhannsdóttir hlaut einnig Grímuna fyrir aðalhlutverk í sama verki. 16.6.2010 22:10
Ingvar og Margrét bestu leikararnir Ingvar E. Sigurðsson og Margrét Helga Jóhannsdóttir hlutu Grímuna í ár fyrir leik í aðalhlutverki. 16.6.2010 21:38
Gunnar Einarsson áfram bæjarstjóri í Garðabæ Bæjarstjórn Garðabæjar kom saman til fyrsta fundar miðvikudaginn 16. júní 2010 í ráðhúsinu við Garðatorg. Í bæjarstjórn eru sjö bæjarfulltrúar og þar af eru þrír nýir bæjarfulltrúar. Í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru 29. maí sl. voru úrslit kosninganna í Garðabæ á þá vegu að fimm bæjarfulltrúar koma frá D-lista Sjálfstæðisflokks, einn bæjarfulltrúi kemur frá M-lista Fólksins í bænum og einn bæjarfulltrúi er frá S-lista Samfylkingar. 16.6.2010 21:04
Eldur í gamalli rútu Kviknað hefur í gamlli rútu á Smiðjuveginum í Kópavogi. Engin hús eru í hættu. Lögreglan og slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu eru á vettvangi. Engar frekari upplýsingar var að fá. 16.6.2010 20:43
BP skal greiða 120 milljarða bandaríkjadollara fyrir olíuslys Breska olíufyrirtækið BP skal greiða 120 milljarða bandaríkjadollara í sérstakan sjóð ætlaðan fórnalömbum einhvers mesta umhverfisslyss Bandaríkjanna í Mexíkóflóa. 16.6.2010 20:34
Tæplega 100 milljónum ríkari eftir að hafa spilað í Víkingalottói Íslendingur sem verslaði miða í Víkingalottói í Snælandi á Selfossi er 98 milljónum ríkari fyrir vikið. 16.6.2010 19:42
Íslandsbanki ætlar að hlíta niðurstöðu Hæstaréttar og stjórnvalda Íslandsbanki segir í tilkynningu að þó bankinn hafi ekki verið aðili að dómsmálunum í dag þá muni bankinn hlíta úrskurði Hæstaréttar sem dæmdi gengistryggð krónulán ólögmæt í dag. 16.6.2010 19:27
Engir gengistryggðir lánasamningar hjá Arion Arion Banki segir í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér að engir gengistryggðir samningar séu hjá bankanum. 16.6.2010 18:56
Gígarnir á Fimmvörðuhálsi nefndir Magni og Móði Gígarnir tveir sem mynduðust í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi hafa fengið nöfn sem sótt eru í Ásatrú. 16.6.2010 18:51
Fyrstu loforð nýrrar borgarstjórnar efnd Ókeypis verður í sund fyrir börn í Reykjavík frá næsta laugardegi og út sumarið. Þetta var ein af tíu tillögum sem nýi borgarstjórinn lagði fyrir borgarráð í dag. Áætlaður kostnaður er 12-14 milljónir króna. 16.6.2010 18:48
Orkuverðið verður verðtryggt Tenging orkuverðs við álverð er afnumin í nýjum samningum um orkusölu til álversins í Straumsvík, en orkuverð verður verðtryggt í staðinn. Forstjóri Landsvirkjunar segir nýju samningana skila fyrirtækinu verulegum tekjuauka miðað við álverð í dag. 16.6.2010 18:45
Dómurinn mun skapa vandræði á fjármálamarkaði Þorri allra gengistryggðra bílalána og hluti húsnæðislána landsmanna var að líkindum dæmdur ólöglegur í tímamótadómum sem féllu í Hæstarétti nú síðdegis. Langmesta réttarbót sem íslenskur almenningur hefur fengið frá hruni og þjóðin hefur nú ástæðu til að fagna á þjóðhátíðinni á morgun, segja verjendur. 16.6.2010 18:41
Guðlaugur Þór vill fund vegna dóms Hæstaréttar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eftir fundi hjá viðskiptanefnd til að ræða dóm Hæstaréttar vegna gengistryggðra lána. 16.6.2010 18:22
Mál fornbókasala vísað aftur til héraðsdóms Hæstiréttur hefur vísað máli Ara Gísla Bragasonar, fornbókasala, aftur til Héraðsdóms Reykjavíkur sem áður hafði vísað frá ákæruliðum á hans hendur. Hann var ákærður fyrir að hafa tekið við hundruði fornbóka úr hendi Böðvars Ingva Jakobssonar, vitandi vits að hann væri að selja honum þýfi. Þessu neitar Ari hinsvegar fullum fetum. 16.6.2010 18:17
Fischer verður grafinn upp Hæstiréttur Íslands snéri ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði hafnað því að líkamsleifar skáksnillingsins Bobby Fischers yrðu grafnar upp til þess að unnt væri að fá lífsýni og bera saman við meinta dóttur Fischers, Jinky Young. 16.6.2010 18:14
Gengistryggð lán ólögleg - ekki lán sem eru veitt í erlendri mynt Landsbankinn áréttar í tilkynningu sem hann sendi frá sér að dómur Hæstaréttar um gengistryggð lán í dag nái eingöngu til þeirra lána en ekki lána sem veitt eru í erlendri mynt. 16.6.2010 17:59
Hefur áhrif á fjármálafyrirtækin og lántakendur Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu vegna dóms Hæstaréttar varðandi gengistryggðu lánin en þar kemur meðal annars fram að málið hafi fyrst og fremst áhrif á fjármálafyrirtæki og lántakendur. 16.6.2010 17:57
Dómar yfir mansalsmönnum mildaðir Dómar yfir mansalsmönnum frá Litháen voru mildaðir um ár hjá öllum nema einum. Þeir voru dæmdir í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Einn mannanna, Gediminas Lisauskas, þótti eiga mestan þátt í að flytja litháenska stúlku til landsins með það að markmiði að selja hana í vændi. 16.6.2010 17:28
Sigraði í Hæstarétti og ætlar að fá sér bjór í tilefni dagsins „Ég er enn með gæsahúð,“ segir Óskar Sindri Atlason sem sigraði í máli sínu gegn SP-fjármögnun varðandi gengistryggð lán og þar af leiðandi er réttaróvissu um gengistryggðu bílalánin úr sögunni. Óskar, sem keypti bíl á kaupleigusamningi áriuð 2006 er laus allra mála eftir úrskurð Hæstaréttar. 16.6.2010 17:10
Neytendur voru sýknaðir „Ég er mjög ánægður,“ segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda um nýfallin dóm Hæstaréttar vegna bílalána í erlendri mynt. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að lánin væru ólögmæt. 16.6.2010 16:34
Gengistryggð bílalán dæmd ólögmæt Gengistryggð bílalán hafa verið dæmd ólögmæt og óheimil í Hæstarétti Íslands. Skuldbindingarnar teljast hafa verið í íslenskum krónum og því falla þau undi bann við gengistryggingu. Dómurinn var kveðinn upp í dag en málin voru tvö og vörðuðu bílalán frá fyrirtækjunum Lýsingu hf. og SP-fjármögnun. 16.6.2010 16:19
Íslandi stefnt fyrir EFTA dómstólinn Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að stefna Íslandi fyrir EFTA-dómstólinn. Stofnunin telur að lög frá árinu 2007 um skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn sína til tímabundinna starfa á Íslandi samræmist hvorki ákvæðum EES-samningsins um frjálsa þjónustustarfsemi né ákvæðum tilskipunar um útsenda starfsmenn. 16.6.2010 15:14