Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hundrað konur mættu í brúðarkjól í IKEA Yfir hundrað konur mættu í brúðarkjól í verslun IKEA í dag til að samgleðjast hinum konunglegu sænsku brúðhjónum. Konurnar fengu glaðning í tilefni dagsins en mest um vert var að samgleðjast krónprinsessunni Viktoríu sem ber nú baug á fingri. 19.6.2010 20:30
Ríkisstjórnin í vonlausri stöðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir hugmynd Össurar Skarphéðinssonar um þjóðstjórn góðra gjalda verð en Bjarni Benediktsson segir málið bera vott um þá vonlausu stöðu sem ríkisstjórnin sé komin í. Varaformaður þingflokks Vinstri Grænna veit ekki hverju þjóðstjórn ætti að bjarga. 19.6.2010 20:00
Kosningarnar í Reykhólahreppi ógildar Úrskurðarnefnd sem skipuð var til að fjalla um kæru vegna sveitastjórnarkosninganna í Reykhólahreppi hefur komist að því að kosningarnar voru ólöglegar. Íbúi í Flatey kærði kosningarnar vegna þess að íbúar í Flatey að kosningarnar voru ekki auglýstar á eyjunni. 19.6.2010 19:26
Lántaki hótaði að mæta með haglabyssu Reiður lántaki hótaði starfsmanni fjármögnunarfyrirtækis að snúa til baka á skrifstofuna með haglabyssu - væru mál hans ekki leyst. Stjórnendur fjármögnunarfyrirtækjanna eru slegnir yfir þeirri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í gær að ekki verði gripið sérstakra aðgerða vegna dóms Hæstaréttar í myntkörfumálunum. 19.6.2010 19:00
Áfram flóð í Kína Talið er að um 90 séu látnir vegna fárviðris sem geysað hefur í Kína. Fjölda manns er saknað og þurft hefur að koma meira en 1,5 milljónum íbúa í skjól. Í kjölfar rigninga flæddu ár yfir bakka sína og stíflur brustu. Vatn flæddi um götur. Vatnsveðrið olli einnig aurskriðum sem urðu 35 manns að bana. Víða varð rafmagnslaust. 19.6.2010 16:40
Brúðkaupið í Svíþjóð: Falleg stemning í kirkjunni "Ég er fyrir utan höllina, við vorum að koma úr kirkjunni, hér eru tugþúsundir manna og sól í heiði, mikil og góð stemning," segir Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra Íslands í Svíþjóð. Vísir heyrði í Guðmundi Árna þegar athöfninni í kirkjunni var nýlokið en Guðmundur var viðstaddur brúðkaupið ásamt eiginkonu sinni. 19.6.2010 15:35
Bjartsýnir á góða veiði hjá Jóni Gnarr Borgarstjóri Reykvíkinga, Jón Gnarr, mun renna fyrir fyrsta laxinn í Elliðaánum á morgun. Vísir ræddi við reynda veiðimenn sem hafa litlar áhyggjur af því að ekki muni bíta á hjá borgarstjóranum nýja. 19.6.2010 14:04
Ólafur og Dorrit á fremst bekk Viktoría, krónprinsessa Svíþjóðar, játaðist heitmanni sínum, Olav Daniel Westling, í dómkirkjunni í Stokkhólmi nú þegar klukkuna vantaði fimm mínútur í tvö. Brúðkaupsathöfnin hófst klukkan hálftvö en meðal gesta eru þjóðhöfðingjar Norðurlanda og fulltrúar konungsfjölskyldna Evrópuríkja. Íslensku forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussajef, sitja á fremsta bekk í kirkjunni en þau færa brúðhjónunum myndarlega glerskál að gjöf. 19.6.2010 13:38
Gengisdómur: Bankarnir þrjóskast við Niðurstaða hæstaréttar í myntkörfumálinu mun hafa jákvæð áhrif á fasteignamarkaðinn að mati Ingibjargar Þórðardóttur formanns Félags fasteignasala. Hún segir dæmi um að bankarnir neiti að viðurkenna ólögmæti þessara lána. 19.6.2010 11:49
Stærsta útboð eftir hrun Landsvirkjun auglýsir í dagblöðum í dag útboð þriggja stærstu verkþátta Búðarhálsvirkjunar. Þeir eru bygging stöðvarhúss og inntaksmannvirkja ásamt greftri frárennslisskurða, gerð fjögurra kílómetra aðrennsliganga og gerð Sporðöldustíflu. 19.6.2010 11:30
Verðbréfamiðlarar veðja á HM Árangur bandaríska landsliðsins á Heimsmeistaramótinu í Knattspyrnu hefur jákvæð áhrif á andrúmsloftið á Wall Street. Samkvæmt Reuters hafa verðbréfamiðlarar notfært sér frekar dræma viðskiptadaga til að einblína á fótboltann. Viðskipti hafa gengið hægt fyrir sig þessa vikuna en það hefur ekki sést á gólfum verðbréfahallarinnar. 19.6.2010 23:30
Jákvæð þróun fyrir efnahag heimsins Kína hefur gefið í skyn að þeir muni leyfa kínverska jeninu að styrkjast gagnvart dollar og öðrum vestrænum gjaldmiðlum. Samkvæmt vef BBC hefur kínverski seðlabankinn lýst því yfir að þeir muni leyfa gjaldmiðli sínum að verða hreyfanlegri en engar nánari útlistingar voru gefnar á því hvernig það yrði útfært. 19.6.2010 22:30
Smáríki þurfa að losna við skuldabagga Írar hafa staðið frami fyrir sambærilegri áskorun og Íslendingar við að greiða niður skuldir og koma böndum á ríkisfjármál sín. David Croughan, yfirmaður efnahagsdeildar Samtaka atvinnurekenda á Írlandi, var gestur á fundi Samtaka atvinnulífsins um opinber fjármál í vikunni. Hann segir mikilvægt fyrir smáríki að losna við þunga skuldabagga. 19.6.2010 20:30
Skipsstrand við Akurey Lundaskoðunarbáturinn Skúlaskeið strandaði síðdegis í dag við norðanverða Akurey. Tíu farþegar voru um borð auk áhafnar en báturinn strandaði á klettanös um 25 metra frá eynni. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að gæslan hafi fengið tilkynningu um strandið á rás 16, neyðarbylgju fyrir skip og báta sem öllum sjófarendum ber skylda til að hlusta á. 19.6.2010 17:04
Hafís í grennd við strendur Hafístunga þokast nær Norðanverðum Vestfjörðum, en hún er nú 26 sjómílur norðvestur af Galtarvita og rúmlega 30 sjómílur norð-norð-austur af Horni. Ingibjörg Jónsdóttir landfræðingur segir ekki móta greinilega fyrir stórum ísjökum á gervihnattamyndum, utan 40 kílómetra breiðan fleka sem líklegast hefur losnað frá landi í vor. Hún telur að hann muni þó brotna upp í ölduróti við ísjaðarinn. 19.6.2010 13:19
Brúðkaupið ævintýri líkast Brúðkaupsæði Svía nær hámarki síðar í dag þegar Viktoría krónprissessa giftist fyrrum einkaþjálfara sínum, Daniel Westling. Íslensku forsetahjónin eru í Stokkhólmi og færa brúðhjónunum myndarlega glerskál að gjöf. Brúðkaupshátíðin er ævintýri líkust. 19.6.2010 12:11
Ögmundur: Þjóðstjórn varhugaverð Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, telur varahugavert að koma á fót þjóðstjórn á meðan ekki ríkir samstaða um hvernig farið skuli með auðlindir þjóðarinnar. Að öðru leyti sé hann hlynntur samstarfi milli stjórnar og stjórnarandstöðu. 19.6.2010 11:43
Ókeypis í sund í dag Ókeypis er í sund í Reykjavík fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri frá og með deginum í dag og til ágústloka í sumar. Þetta var samþykkt í borgarráði á miðvikudag í samræmi við samstarfsyfirlýsingu Besta flokksins og Samfylkingarinnar en þar er þetta á lista yfir fyrstu verk nýs meirihluta. 19.6.2010 11:13
Óspektir og fyllerí á Akureyri Lögreglan á Akureyri hefur í nógu að snúast vegna Bíladaga sem þar eru haldnir um helgina. Fangaklefar voru fullir í nótt. Mikið var um óspektir en enginn var kærður fyrir líkamsmeiðingar, að sögn lögreglu. 19.6.2010 10:06
Hlaupið á kvennréttindadag Konur eru konum bestar er yfirskrift Kvennahlaups Sjóvár og ÍSÍ að þessu sinni. Hlaupið er haldið í tuttugasta og fyrsta sinn í dag, kvenréttindadaginn 19. júní. Hlaupið verður frá 93 stöðum hérlendis og á 18 stöðum erlendis, þar á meðal á Norðurlöndunum, í Þýskalandi, Bretlandi og Kanada. Stærsta hlaupið er í Garðabæ klukkan 14 þar sem þúsundir kvenna koma saman og hlaupa, en dagskrá verður í bæjarfélaginu af tilefni dagsins. Hlaupið er unnið í samstarfi við Kvenfélagasamband Íslands, en félagið verður 80 ára á árinu. 19.6.2010 10:04
Viðrar vel til skákiðkunar "Stemningin er mjög góð. Hingað eru að streyma góðir gestir á öllum aldri. Hér er bjart, blæs örlítið, en veðrar mjög vel til skákiðkunar," segir Hrafn Jökulsson, rithöfundur og óþreytandi skákjöfur. Hrafn á veg og vanda af skákhátíð sem haldin er í Djúpuvík í Árneshreppi um helgina. 19.6.2010 09:48
Brúðkaupsæði í Svíþjóð Viktoría krónprisessa Svíþjóðar og fyrrum einkaþjálfari hennar ganga í það heilaga síðar í dag. Hálfgert brúðkaupsæði hefur gripið um sig í Svíþjóð; undanfarnar tvær vikur hefur verið eins konar ástarþema í Stokkhólmi og minjagripabúðir eru troðnar út af myndum af brúðhjónunum. Brúðkaupsdagskráin náði hápunkti í gær með hátíðartónleikum í tónlistarhúsi Stokkhólms. Lokaatriði tónleikanna var barnakór sem söng til þeirra Daniels og Viktoríu, en söngurinn var svo hjartanlegur að bæði Viktoría og Silvía drottning felldu tár af gleði. 19.6.2010 10:35
Þarf að gera upp stuðning Samfylkingarinnar við eina blokk í viðskiptalífinu Samfylkingin hefur ekki enn horfst í augu við ábyrgð flokksins í aðdraganda hrunsins, segir Össur. Þar segist hann ekki vera að tala um þátttöku í ríkisstjórn frá árinu 2007, heldur með því að veita ákveðinni hugmyndafræði löggildingu. Samfylkingin hafi ekki lesið stöðuna rétt. 19.6.2010 07:00
Vill halda í gamla stjórann Svein Harald Øygard er álitlegasti eftirmaður norska seðlabankastjórans. Þetta hefur norska dagblaðið Dagens Næringsliv eftir Svein Gjedrem, núverandi bankastjóra. 19.6.2010 06:00
SÞ hefur áhyggjur af heimilisofbeldi á Íslandi Heimilisofbeldi verður að stöðva og taka verður harðar á ofbeldismönnum. Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, hefur áhyggjur af háu hlutfalli ofbeldis á íslenskum heimilum. Hún segir börn kvenna sem verða fyrir ofbeldi hin raunverulegu fórnarlömb. 19.6.2010 06:00
Aðildarviðræður tengdar Icesave Sitt sýnist hverjum um það hvort leiðtogaráð Evrópusambandsins hafi í yfirlýsingu sinni á fimmtudag, þar sem samþykkt var að hefja aðildarviðræður við Ísland, gert kröfu til Íslendinga um að leysa Icesave-málið áður en af aðild geti orðið. 19.6.2010 06:00
Seinkar um allt að tólf mánuði Landhelgisgæslan á von á nýju varðskipi, V/S Þór, en það hefur verið í smíðum í skipasmíðastöð í Chile frá því í október 2007. Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að skipið yrði afhent fyrri hluta ársins í ár en jarðskjálftinn sem varð í Chile í febrúar setti strik í reikninginn. 19.6.2010 05:00
Líðan mannsins orðin stöðug Maður sem fluttur var á slysadeild að kvöldi 17. júní eftir að eldur kom upp í íbúð hans við Írabakka, er kominn á almenna deild. Hann dvaldi á gjörgæslu fyrstu nóttina vegna gruns um reykeitrun, en líðan hans er nú stöðug. 19.6.2010 04:00
Rannsóknir tveggja dýralækna stöðvaðar Yfirdýralæknir, Halldór Runólfsson, bannaði í gær tveimur dýralæknum, að halda áfram þeim rannsóknum sem þeir hafa unnið að að undanförnu til að freista þessa að finna meðhöndlun á hrossum sem veikst hafa af smitandi hósta. Jafnframt hafa dýralæknarnir unnið að því að finna leiðir til að efla ónæmiskerfi hrossanna. 19.6.2010 04:00
Dofri og Sigrún Elsa hætta Hvorki Dofri Hermannsson né Sigrún Elsa Smáradóttir, sem skipuðu sjötta og sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar, taka sæti nefndum eða ráðum á vegum borgarinnar sem skipað hefur verið í á nýjan leik. 19.6.2010 03:00
Krían í miklum erfiðleikum Sandsílastofninn á Íslandi hefur minnkað á síðustu árum, meðan annars vegna hlýnunar sjávar. Nýliðun sandsíla brást á árunum 2005 og 2006 og hefur það haft gífurleg áhrif á margar sjófuglstegundir við strendur landsins. 19.6.2010 03:00
Aukið álag á heilbrigðisstofnanir vegna eldgossins Heildarkostnaður heilbrigðisþjónustunnar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur verið metinn 41,5 milljónir króna. Kostnaðurinn hefur að mestu fallið á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) en áætlað er að alls muni gosið kosta HSu 32,8 milljónir. 19.6.2010 02:00
Milljón manns þurfa aðstoð Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að milljón manns geti þurft á aðstoð að halda vegna óeirðanna í Kirgisistan. Um þriðjungur þeirra verði líklega flóttamenn frá landinu. 19.6.2010 01:30
Heimsótti gröf bróður síns Jarozlaw Kaczynski, forsetaframbjóðandi í Póllandi, heimsótti í gær gröf tvíburabróður síns, Lech Kaczynskis fyrrverandi forseta, sem fórst í flugslysi í Rússlandi í apríl. 19.6.2010 01:00
Myrtur af syni sínum í Írak Þrítugur Íraki, Abdul-Halim Hameed, skaut fimmtugan föður sinn þar sem hann svaf í rúmi sínu í fyrrinótt. Ástæðan var sú að faðirin vildi ekki segja upp starfi sínu, en hann starfaði sem verktaki og þýðandi fyrir bandríska herinn í Írak. 19.6.2010 00:45
Blúsbræðurnir fá blessun kaþólikka Kvikmyndin Blúsbræðurnir (Blues Brothers) hefur hlotið náð og blessun Vatíkansins fyrir traust og kristileg gildi samkvæmt opinberu dagblaði Vatíkansins. Þar með er kvikmyndin komin í hóp kristilegra meistaraverka eins og The Ten Commandments, Jesus of Nazareth, og jólahugvekjunnar, It's a Wonderful Life. 18.6.2010 21:40
Hafís nálgast landið Nokkur hafís er tiltölulega skammt undan norðanverðum Vestfjörðum og mun að öllum líkindum þokast nær landi. 18.6.2010 18:37
Bílamarkaðurinn gæti lifnað við vegna dóms Hæstaréttar Dauður markaður í sölu nýrra bíla gæti lifnað við og sala notaðra bíla aukist eftir dóm hæstaréttar um ólögmæti gjaldeyrisbílalána. Ljóst er að áhrifin verða víðtæk fyrir bílamarkaðinn í heild. 18.6.2010 18:34
Íslensk kona í farbann - fjarstæðukennt að mati dómara Hæstiréttur Íslands staðfesti farbannsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir íslenskri konu sem búsett hér á landi. Konan ásamt manni sínum, sem er af erlendu bergi brotnu, eru grunuð um að hafa flutt inn fíkniefni. Konan hefur játað brot sitt en segir manninn hafa skipulagt innflutninginn. 18.6.2010 18:00
Bensínbetlari reyndi að blekkja rithöfund Fyrrverandi ritstjórinn og rithöfundurinn Illugi Jökulsson lenti í bensínbetlaranum fyrir nokkrum mánuðum en Vísir hefur greint frá manninum áður en hann betlar pening fyrir bensíni af grandlausum borgurum í því augnmiði að komast til Akraness. 18.6.2010 17:46
Jón Gnarr veiðir fyrsta laxinn Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, mun renna fyrir fyrsta laxinum í Elliðaánum á sunnudagsmorguninn næsta samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 18.6.2010 17:26
Tilkynnti um nauðgun en ákvað að kæra ekki Kona sem sagði lögreglu frá því að henni hafi verið nauðgað á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri á fimmta tímanum síðastliðna nótt hefur ákveðið að leggja ekki fram kæru í málinu. 18.6.2010 16:35
Halla Gunnarsdóttir: Réttur minn fyrir borð borinn Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður og talskona í femínistafélagi Íslands, segir að hún sé mjög ósátt við að Hæstiréttur taki ekki afstöðu til þeirra röksemda sem hún lagði fyrir dóminn. Hæstiréttur vísaði frá kröfu hennar um að þinghald í máli ellefu manna sem kærðir voru fyrir kaup á vændi skuli vera opið. Af þremur dómurum, skilaði einn dómari séráliti og taldi að dómurinn ætti að taka afstöðu til málsins. 18.6.2010 16:28
Uppnám í bæjarstjórnarmálum Dalvíkurbyggðar Mikil óvissa er komin upp í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar eftir að kjörnefnd úrskurðaði í morgun að átta vafaatkvæði í kosningunum í síðasta mánuði skyldu teljast gild en þau höfðu áður verið úrskurðuð ógild. 18.6.2010 18:41
Þyrlan sækir veikan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar fer í loftið um klukkan hálfsex í kvöld til þess að ná í konu sem fékk botnlangakast um borð í norskum togara. Skipið er statt á Reykjaneshrygg og er nú á stímí í átt að Íslandi. Drægi þyrlunnar er 150 sjómílur og því getur þyrlan ekki lagt af stað fyrr en skipið er komið nær landi. 18.6.2010 15:51