Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útboðsviðmið breytast lítið Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Kópavogi felldi tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarráði um verulega lækkun á þeim upphæðum sem miða skal við þegar ákveðið er hvort aðkeypt verkefni fyrir bæinn þurfi að fara í útboð. Samkvæmt eldri reglum þurfti að bjóða út kaup á þjónustu ef áætlaður kostnaður var yfir 15 milljónum króna. 11.5.2010 03:30
Neyðarsjóður ESB styrkir markaðina Evrópskar hlutabréfavísitölur hækkuðu mikið í gær eftir að Evrópusambandið tilkynnti að stofnaður yrði neyðarsjóður til að koma í veg fyrir að fjárhagsvandi Grikklands breiddi úr sér til annarra landa sambandsins. 11.5.2010 03:30
Aukningin í takt við áætlanir Reiknað er með því að starfsmenn tölvuleikjafyrirtækisins CCP, sem meðal annars framleiðir netleikinn EVE Online, verði í lok þessa árs rúmlega 620 talsins. Þetta kemur fram í auglýsingu sem fyrirtækið birti um helgina þar sem óskað var eftir 150 nýjum starfsmönnum. 11.5.2010 03:15
Össur og Miliband skiptust á sms-skilaboðum Þeir þrír kandídatar sem koma til greina sem forsætisráðherraefni Breta myndu allir reynast Íslendingum betur en Gordon Brown hefur gert, sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 10.5.2010 23:45
Eyjafjallajökull ógnar Kvikmyndahátíðinni í Cannes Öskufallið frá Eyjafjallajökli gæti haft áhrif á Kvikmyndahátíðina í Cannes, sem gert er ráð fyrir að hefjist á miðvikudaginn. Um 20 flugferðum til flugvallarins í Nice, sem er næstur Cannes, var aflýst í gær og fleiri flugferðum var frestað. 10.5.2010 21:34
Leiðrétting á frétt um fjármagnsflutninga Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur ákveðið að draga til baka fréttaflutning af meintum fjármagnsflutningum nafngreindra manna til skattaskjóla sem birt var í júlí 2009. Jafnframt eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á þeim skaða sem fréttin hefur valdið. 10.5.2010 18:30
Sjúkraflutningamenn hafa farið í 57 sjúkraflutninga Slökkviliðið var kallað í húsnæði í Vindakór á sjötta tímanum í dag. Þar hafi stíflast klóakleiðsla með þeim afleiðingum að það lak af annarri hæð hússins niður á þá fyrstu og þurfti aðstoð slökkviliðsmanna til að hreinsa til. 10.5.2010 20:48
Eyjafjallajökull: Héraðsráðunautar skoða öskufallssvæðið Teymi héraðsráðunauta alls staðar að af landinu munu á morgun og miðvikudag fara á bæi á öskufallssvæðinu fyrir austan, ræða við bændur og meta með þeim aðstæður og þörf fyrir aðstoð vegna fóðuröflunar og beitar í vor og sumar. 10.5.2010 20:14
Banaslys við Ingólfsfjall Maðurinn sem skall utan í hamravegg í vesturhluta Ingólfsfjalls á svifflugvél á fjórða tímanum í dag lést í slysinu. Slysið varð á móts við Hvammsveg í Nýbýlahverfi nánar tiltekið á milli Arnarnípu og Hólsstaðagils. 10.5.2010 17:50
Sviffallhlíf hrapaði í hlíðum Ingólfsfjalls Einstaklingur sem flaug á svifdreka hrapaði í hlíðum Ingólfsfjalls fyrir stundu að sögn lögreglunnar. Lögreglan og björgunarsveitir eru á leiðinni á vettvang. 10.5.2010 16:24
Gordon Brown segir af sér Gordon Brown hefur ákveðið að segja af sér sem leiðtogi Verkamannaflokksins. Forsætisráðherrann tilkynnti um þetta í ávarpi fyrir utan Downingstræti 10 fyrir stundu. 10.5.2010 16:23
Líkti Sigurði Kára Kristjánssyni við rafhlöðukanínu Robert Marshall þingmaður Samfylkingarinnar líkti Sigurði Kára Kristjánssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins við rafhlöðukanínu í umræðum um fundarstörf forseta á Alþingi í dag. 10.5.2010 15:55
Ellefu ákærðir fyrir að skipta við Miðbaugsmaddömuna Ríkissaksóknari hefur gefið út ellefu ákærur á jafn marga einstaklinga sem greiddu eða reyndu að greiða fyrir vændi á tímabilinu október til desember á síðasta ári. 10.5.2010 15:48
Engar kosningar á Skagaströnd Ljós er að ekki þarf að kjósa til sveitastjórnar á Skagaströnd þar sem einungis einn listi býður þar fram samkvæmt fréttavefnum Feykir.is. 10.5.2010 15:42
Rífandi gangur í strandveiðum á Faxaflóa Fyrsti dagur í strandveiðum er í dag og þó nokkrir bátar sem hafa haldið til veiða frá Reykjavík og Akranesi. Nokkrir bátar hafa skilað sér til hafnar með skammtinn sinn og herma aflatölur af Akranesi að aflabrögð séu góð. 10.5.2010 15:22
Hatursmenn fjölmenntu í gleðigöngu í Litháen Mótmælendur voru líklega fleiri en þeir 400 sem tóku þátt í gleðigöngu göngu samkynhneigðra í Vilnius höfuðborg Litháens um helgina. 10.5.2010 15:13
World Class skaðabótaskylt Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að líkamsræktarstöðin World Class væri skaðabótaskyld til hálfs gagnvart konu sem klemmdist í vængjahurð stöðvarinnar í Laugum sem er við innganginn. 10.5.2010 15:11
Telja sig hafa heyrt merki frá Air France þotu Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi er sannfærð um að merki sem voru numin á hafsbotni á síðasta ári hafi verið frá flugrita Air France þotunnar sem fórst á leiðinni frá Rio de Janeiro til Parísar. 10.5.2010 15:02
Morð í Reykjanesbæ: Yfirheyrslur hafnar - málið á viðkvæmu stigi Yfirheyrslur eru hafnar yfir Ellerti Sævarssyni, 31 árs gömlum manni sem er grunaður um að hafa orðið karlmanni á sextugsaldri að bana aðfaranótt laugardags. Lögreglan á Suðurnesjum verst allra frétta af málinu og hefur ekki gefið upp hvort Ellert hafi játað verknaðinn. 10.5.2010 14:39
Passið á ykkur hausinn Ferðamenn eru þegar farnir að flykkjast til Rómar enda hlýtt og notalegt þar á þessum árstíma. 10.5.2010 14:33
Blóðugasti dagurinn í Írak á þessu ári Að minnsta kosti 85 manns hafa farist í sprengju- og skotárásum í Írak í dag. Þetta er blóðugasti dagur sem komið hefur landinu á þessu ári. 10.5.2010 14:24
Slökkti eld með ísmolum Kona brenndist fyrsta og annars stigs bruna í andliti og á hendi þegar hún var að bæta etanóli á arinn á veitingastaðnum Riverside í Hótel Selfoss. 10.5.2010 14:07
Vel færir um að ráðast á Íran Varaforsætisráðherra Ísraels segir að flugher landsins sé fullfær um að gera árásir á kjarnorkuver Írana til þess að koma í veg fyrir að þeir smíði kjarnorkusprengjur. 10.5.2010 13:22
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafin Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí næstkomandi er hafin í Laugardalshöll. 10.5.2010 13:02
Dómsmálaráðherra: Ósamræmi milli dóma Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt lögmanni sem ekki fékk starf héraðsdómara sömu miskabætur og fjórum ungum stúlkum sem var nauðgað voru dæmdar samanlagt í bætur. Dómsmálaráðherra segir ósamræmi á milli dómanna. 10.5.2010 12:25
„Þetta er í vinnuferli“ Ráðherrar ríkisstjórnarflokkanna tókust á um fækkun ráðuneyta á fimm klukkustunda löngum fundi í gærkvöldi. Fækkunin er hitamál en engin ákvörðun var tekin á fundinum þrátt fyrir hreinskiptar umræður. 10.5.2010 12:20
Ofsótti fyrrverandi eiginkonu vopnaður flökunarhnífi Snemma á laugardagsmorgun fékk lögreglan á Selfossi tilkynningu um mann sem hafði reynt að brjótast inn til fyrrverandi eiginkonu sinnar á Selfossi. Lögreglumenn fundu manninn skammt frá heimili konunnar. 10.5.2010 12:19
Hæstiréttur tekur afstöðu til gæsluvarðhalds á næstu dögum Hæstiréttur úrskurðar að öllum líkindum í dag eða á morgun í gæsluvarðhaldsmáli Hreiðars Más Sigurðssonar og Magnúsar Guðmundssonar en þeir kærðu gæsluvarðhaldið til réttarins síðastliðinn föstudag. Skýrslutökur sérstaks saksóknara vegna meintra lögbrota í Kaupþingi verður haldið áfram í dag. 10.5.2010 11:59
Skjálftahrina undir Eyjafjallajökli skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli um klukkan ellefu í morgun, en virðist vera að hjaðna á ný. Nokkrir skjálftar mældust rúmlega tveir á Richter. 10.5.2010 11:55
Smábátar streymdu til strandveiða Litlir fiskibátar streymdu í hundraða tali til svo nefndra strandveiða í nótt og í morgun og voru yfir 800 fiskiskip af öllum stærðum skráð á sjó við landið. Samanborið við 300 til 400 skip að meðaltali á dag allt árið. 10.5.2010 11:53
Clegg lokar engum dyrum Allt eins er búist við að það muni taka einhverja daga fyrir íhaldsmenn og frjálslynda demókrata að mynda ríkisstjórn í Bretlandi. 10.5.2010 11:28
Fíkniefnaleitarhundurinn Skuggi dauður Fíkniefnaleitarhundurinn Skuggi kvaddi þennan heim um helgina eftir stutt veikindi. Hann var 12 ára gamall. Skuggi vann að fjölmörgum fíkniefnamálum, að því er fram kemur á vefsíðu tollstjóra. 10.5.2010 11:22
Kveikt í slöngubát í Bolungarvík Talið er að kveikt hafi verið í slöngubáti fyrir utan gistiheimili í Bolungarvík í nótt. 10.5.2010 11:09
Eldgosið í Eyjafjallajökli - myndir Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var á ferð undir Eyjafjöllum um helgina og myndaði það sem fyrir augun bar. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan. Í safninu má meðal annars smá sjá myndir af dýrum, mönnum, bílum og Eyjafjallajökli. 10.5.2010 10:29
Nefbraut kærustuna og myndbirtir kynferðisbrotamenn „Þetta eru allt myndir sem hafa verið birtar áður í fjölmiðlum og mennirnir hafa verið dæmdir,“ segir Skúli Steinn Vilbergsson, en hann heldur úti síðu á samskiptavefnum Facebook, þar sem hann nafn- og myndbirtir barnaníðinga og nauðgara. 10.5.2010 10:07
Ingibjörg Sólrún flaug með þotu Kristínar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, flaug í einkaþotu á vegum Kristínar Ólafsdóttur, eiginkonu Björgólfs Thors Björgólfssonar, milli Barbados og Jamaíka í mars 2008. „Mér fannst þetta ekki óeðlilegt þá og mér finnst það ekki óeðlilegt nú,“ segir Ingibjörg Sólrún í DV sem fjallar um málið í dag. 10.5.2010 09:36
Enn eitt fjöldamorðið í Kína Kínverskur maður myrti átta manns með hnífi um helgina, þar á meðal fjölskyldu sína. 10.5.2010 09:31
Obama tilnefnir Kagan sem hæstaréttardómara Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun síðar í dag tilnefna Elenu Kagan ríkislögmann sem hæstaréttardómara. Kagan er 50 ára og staðfesti öldungadeild Bandaríkjaþings tilnefninguna verður hún yngsti dómarinn við Hæstarétt Bandaríkjanna. Hún verður jafnframt fjórða konan til að gegna embætti hæstaréttardómara. 10.5.2010 09:00
Flogið frá Keflavík og Reykjavík Keflavíkurflugvöllur verður opnaður eftir rúma klukkustund og innanlandsflug um Reykjavíkurflugvöll hefst um og upp úr klukkan tíu, en völlurinn var lokaður í morgun vegna ösku í háloftunum. Fjöldi flugfarþega er á leið til Akureyrar og þangað eru einhverjar vélar komnar eða a leiðinni þangað. Ekki liggur fyrir hvort þeim verði snúið til Keflavíkur. 10.5.2010 08:56
Brown stígi til hliðar Það skýrist að öllum líkindum í dag hvort að Frjálslyndir demókratar og Íhaldsflokkurinn myndi nýja ríkisstjórn á Bretlandi. Áhrifamenn innan Verkamannaflokksins vilja að Gordon Brown stígi til hliðar. 10.5.2010 08:29
Sat í fangelsi fyrir morð á manni sem er á lífi Kínverskur karlmaður sem setið hefur í tæp 10 ár í fangelsi fyrir morð í heimalandi sínu hefur verið sleppt úr eftir að fórnarlamb hans fannst á lífi. Maðurinn átti í harðvítugum deilum við nágranna sinn sem síðar hvarf. Skömmu síðar fannst höfuðlaust lík sem talið var að væri lík nágrannans. Í framhaldi var maðurinn ákærður og fundinn sekur um morð. 10.5.2010 08:23
Reiknað með töluverðri umferð um Akureyri Millilandaflugvélar komu og fóru frá Akureyrarflugvelli fram á nótt, en hlé varð undir morgun. Umferðin er aftur að fara í fullan gang og er reiknað með töluverðri umferð um völlinn í dag. Verulegt álag hefur verið á starfsliði vallarins og aukaliði frá Reykjavík og Keflavík, en engin alvarleg vandamál hafa komið upp, að sögn starfsmanna í morgun. Nánari upplýsingar um flugið er á heimasíðum flugfélaganna. 10.5.2010 08:19
Lögguofbeldi fest á filmu Myndbandsupptaka sem sýnir handtöku ræningja hefur vakið hörð viðbrögð í Seattle í Bandaríkjunum. Á upptökunni sem nýverið var gerð opinber sjást lögreglumenn standa yfir tveimur mönnum af spænskumælandi ættum og ausa yfir þá svívirðingum. Þá sjást lögreglumenn sparka ítrekað í annan manninn og traðka á höfði hans. 10.5.2010 08:14
Innilokaðir í kolanámunni í Rússlandi Enn eru um 80 verkamenn innilokaðir í stærstu kolanámu Rússlands eftir að tvær sprengingar urðu þar síðast liðið laugardagskvöld. Alls voru 359 starfsmenn neðanjarðar þegar fyrri sprengingin varð í námunni sem er staðsett í vesturhluta Síberíu. Í kjölfarið voru björgunarmenn sendir af stað og voru þeir komnir niður í námuna þegar seinni sprengingin varð. Búið er að finna 30 lík og um 70 eru slasaðir þar af nokkrir lífshættulega. Talið er að um metansprengingu hafi verið að ræða. 10.5.2010 08:12
Hefja friðarviðræður Palestínumenn hafa ákveðið að hefja óbeinar friðarviðræður við ráðamenn í Ísrael en þær hafa legið niðri í rúmt eitt og hálft ár. Eitt helsta deilumálið sem kemur í veg fyrir að formlegar viðræður hefjist er bygging 1600 nýrra íbúða gyðinga í austurhluta Jerúsalem en þar vilja Palestínumenn að verði höfuðborg sjálfstæðrar Palestínu. Ísraelar hafa tilkynnt að hægt verði á framkvæmdunum en Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínumanna, krefst þess að þeim verði slegið á frest. 10.5.2010 08:02