Hæstiréttur tekur afstöðu til gæsluvarðhalds á næstu dögum Helga Arnardóttir skrifar 10. maí 2010 11:59 Hreiðar Már Sigurðsson leiddur fyrir dómara í síðustu viku.
Hæstiréttur úrskurðar að öllum líkindum í dag eða á morgun í gæsluvarðhaldsmáli Hreiðars Más Sigurðssonar og Magnúsar Guðmundssonar en þeir kærðu gæsluvarðhaldið til réttarins síðastliðinn föstudag. Skýrslutökur sérstaks saksóknara vegna meintra lögbrota í Kaupþingi verður haldið áfram í dag. Rannsókn málsins stendur enn yfir og hyggst sérstakur saksóknari yfirheyra fjölda manns á meðan Hreiðar Már og Magnús Guðmundsson, tveir af fyrrverandi stjórnendum Kaupþings sitja í gæsluvarðhaldi. Til stendur að yfirheyra Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings og samstarfsmenn Hreiðars og Magnúsar sem taldir eru geta varpað skýrara ljósi á meint sakarefni. Búið er að boða Sigurð í skýrslutökur en Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari vill ekkert gefa upp um hvort hann hafi svarað kalli embættisins eða hvenær hann hyggist koma til landsins. Samkvæmt upplýsingum frá embættinu er reynt eftir fremsta megni að fá hann til skýrslutöku. Almennt sé það þannig að mæti menn ekki til yfirheyrslu eftir að hafa verið boðaðir gæti komið til handtöku. Ólafur Þór er hins vegar á leið til Stokkhólms í dag þar sem hann situr fund norrænna efnahagsbrotadeilda. Hann er væntanlegur til landsins á miðvikudag. Hreiðar Már og Magnús hafa setið í gæsluvarðhaldi á Litla hrauni frá því á fimmtudag en þeir kærðu úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar á föstudag. Hreiðar Már var úrskurðaður í 12 daga gæsluvarðhald og Magnús í viku. Líkur eru á að Hæstiréttur úrskurði í málinu í dag eða á morgun.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira