Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fá 5.200 milljarða neyðaraðstoð Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur samþykkt að veita Grikkjum 40 milljarða dollara neyðaraðstoð, eða um 5.200 milljarða íslenskra króna. Stjórnin fundaði í Washington í gær þar sem hún samþykkti 10.5.2010 06:00
Matið lægst á Patreksfirði Fasteignamat er lægst á Patreksfirði, samkvæmt samanburði Fasteignaskrár Íslands. Fasteignaskrá reiknaði út fasteignamat og fasteignagjöld á sams konar fasteign víðs vegar um landið að beiðni Byggðastofnunar. 10.5.2010 06:00
Fjármál og velferð í forgrunni Kosningabaráttan í Hafnarfirði mun að mestu snúast um fjármálin, að mati flestra heimildarmanna Fréttablaðsins. Þau munu verða Samfylkingunni, sem er með hreinan meirihluta í bæjarstjórn, skeinuhætt, en tromp hennar eru vinsældir Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra. 10.5.2010 05:00
Rænulitir laxar eftir veturinn Bræðurnir Viktor og Hannes Arnar gengu fram á níu dauða laxa í Elliðaánum í gær þar sem þeir voru á labbi með pabba sínum. Einn laxanna var lifandi þegar feðgana bar að en drapst fljótlega. 10.5.2010 05:00
Hafa sannanir fyrir þátttöku talibana Bandarísk stjórnvöld segjast hafa sönnunargögn þess efnis að talibanar hafi staðið á bak við hina misheppnuðu sprengjuárás á Times Square-torginu í New York. „Við vitum að þeir veittu aðstoð vegna árásarinnar 10.5.2010 05:00
Afhöfðaðir í Afganistan Fjórir meðlimir í varnarliði á vegum afganska innanríkisráðuneytisins voru afhöfðaðir í bardaga við skæruliða í Herat-héraði í Afganistan. 10.5.2010 04:00
Áfram flogið um Akureyri Flugsamgöngur víðs vegar um Evrópu komust í uppnám vegna eldgossins í Eyjafjallajökli um helgina. Flugvöllum var meðal annars lokað um tíma í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu og Írlandi í gær. Um 24.500 flug fóru um Evrópu í gær, en það er 500 færri flug en venja er. Þá urðu talsverðar seinkanir þar sem fljúga þurfti lengri leiðir til að forðast öskuský. 10.5.2010 04:00
Umræður um bætt samfélag Fátækt rædd á jafnræðisgrundvelli var yfirskrift fundar sem haldinn var á Grand Hóteli í gær. Fundurinn var haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun, en þar var stefnt saman stjórnmálamönnum, fagfólki í félagsþjónustu og fólki sem upplifað hefur fátækt og félagslega einangrun sjálft. 10.5.2010 04:00
Vaxtarsprotinn til Nox Medical Fyrirtækið Nox Medical hlaut fyrir helgi Vaxtarsprotann. Hann er viðurkenning sem veitt er árlega á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannsóknarmiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík til sprotafyrirtækja. 10.5.2010 03:30
Afnám verðtryggingar ekki lausn á vanda skuldugra Ólíklegt er að breytingar á fyrirkomulagi verðtryggingar gætu á þessu stigi mála leitt til snöggs viðsnúnings hjá einstaklingum í skuldavanda, segir í niðurstöðum nýrrar skýrslu sem nefnist „Verðtrygging á Íslandi: kostir og gallar“. Hverfi verðtryggingin hækka vextir á móti. 10.5.2010 03:15
Chavez slær í gegn á Twitter Hugo Chavez hinn litríki en umdeildi leiðtogi Venesúela hefur stofnað Twitter síðu. Á aðeins hálfum mánuði hefur hann skotist í fyrsta sætið yfir mest lesnu Twitter síðurnar í Venesúela og hafa 237 þúsund manns skráð sig sem vini forsetans. Það færir honum fyrsta sætið í landinu en áður var vinsælasta Twitter síðan sú sem Globovision sjónvarpsstöðin heldur úti en stöðin hefur haldið uppi harðri gagnrýni á störf forsetans. 9.5.2010 21:30
Cameron og Clegg hittust á fundi í kvöld Þeir David Cameron leiðtogi íhaldsmanna í breska þinginu og Nick Clegg leiðtogi Frjálslyndra hittust í þinghúsinu í London í kvöld á tæplega klukkustundarlöngum fundi. Áður höfðu áhrifamenn innan flokkanna fundað í allan dag um mögulegt stjórnarsamstarf. 9.5.2010 20:21
Eyjafjallajökull: Álag á starfsfólki Akureyrarflugvallar Mikið álag hefur verið á starfsfólki Akureyrarflugvallar en þar er nú miðstöð fyrir millilandaflug. Flugvallastjórinn segir að þær aðstæður sem þar hafi skapast undanfarnar vikur sýni að stækka þurfi flugvöllinn. Flugsamgöngur til og frá landinu eru aftur í uppnámi með tilheyrandi óþægindum fyrir þúsundir Íslendinga. 9.5.2010 18:59
Lítil mengun í fiski á Íslandsmiðum Mengun í fiski á Íslandsmiðum er lítil miðað við niðurstöður nýrrar skýrslu frá Matís. Ekkert hafsvæði í heiminum er laust við mengun en afleiðingar hennar í sjávarfangi geta til dæmis haft áhrif á þroska heila í fóstrum. 9.5.2010 19:19
Ríkisstjórnarfundur hafinn Ríkisstjórn Íslands hittist á fundi sem hófst klukkan sex í dag í ráðherrabústaðnum. Horfur í ríkisfjármálum og sameining ráðuneyta verða til umræðu. 9.5.2010 18:06
Kosningar 2010: VG með félagslegt réttlæti að leiðarljósi Vinstri grænir í Reykjavík, undir forystu Sóleyjar Tómasdóttur, kynntu stefnumál sín síðdegis í dag. Sóley sagði kosningarnar snúast um hugmyndafræði en Vinstri grænir hefðu félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Flokkurinn boðaði fleiri úrræði í húsnæðismálum með leigu- og kaupleigumarkaði, fjölbreyttari atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónustu og sorpflokkun við heimili fólks. 9.5.2010 17:58
Kosningar 2010: H - listinn kynnti framboð sitt í dag H-listi Ólafs F. Magnússonar, fyrrverandi borgarstjóra, sem kallar sig framboð um heiðarleika og almannahagsmuni, kynnti frambjóðendur og stefnumál á heimili Ólafs í Fossvogi nú síðdegis. 9.5.2010 17:54
Fundað gegn fátækt Í dag var haldinn fundur á Grand Hótel þar sem fólk úr ýmsum hópum samfélagsins ræddi um fátækt og félagslega einangrun og hvaða leiðir séu færar til að vinna gegn slíkri stöðu. Fundurinn, sem var með þjóðfundarsniði, var haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun og er skipulagður af stýrihópi á vegum félags- og tryggingamála-ráðuneytisins. 9.5.2010 17:15
Eyjafjallajökull: Iceland Express flýgur frá Akureyri á morgun Vélar Iceland Express til London, Kaupmannahafnar og Berlínar fara frá Akureyrarflugvelli á morgun sökum öskufalls frá Eyjafjallajökli. Vélarnar til London og Kaupmannahafnar fara um og eftir hádegi, en sú til Berlínar annað kvöld. Sætaferðir verða frá BSÍ norður í land. 9.5.2010 16:57
Sprengja á Times torgi: Sannanir fyrir aðild talíbana Bandaríkjamenn segjast nú hafa sannanir fyrir því að talíbanar í Pakistan hafi staðið á bakvið hryðjuverkið sem fór út um þúfur á Times torgi í New York á dögunum. Dómsmálaráðherrann Eric Holder staðfesti þetta í dag en áður höfðu bandarísk stjórnvöld vísað yfirlýsingum talíbana í Pakistan um að þeir bæru ábyrgð á ódæðinu á bug. 9.5.2010 16:33
Breskir hermenn marseruðu um Rauða torgið Breskir hermenn marseruðu um Rauða torgið í Moskvu í fyrsta sinn í sögunni í dag. Tilefnið var að í dag fagna Rússar lokum Síðari heimstyrjaldarinnar en 65 ár eru liðin frá lokum stríðs. Rúsnesskar hersveitir marseruðu því um torgið ásamt kollegum sínum frá Bretlandi, Frakklandi, Póllandi og Bandaríkjunum. 9.5.2010 16:05
Hjálmar: Engin slagsíða gegn konum í BÍ Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands gerir athugasemdir við ályktun Félags fjölmiðlakvenna sem sagt var frá hér á Vísi í gær. Í ályktuninni sagði að konur væru í minnihluta í stjórnum og nefndum Blaðamannafélagsins. 9.5.2010 15:39
Eyjafjallajökull: Framleiðsla gosefna fer hægt dvínandi Framleiðsla gosefna virðist hafa farið hægt dvínandi í eldgosinu í Eyjafjallajökli ef mið er tekið af síðustu sjö dögum. Gosvirknin hefur þó gengið í bylgjum og búast jarðfræðingar á Veðurstofu Íslands við því að þær sveiflur haldi áfram. Ekkert bendir þó til þess að gosinu sé að ljúka að því er fram kemur í stöðuskýrslu frá Veðurstofunni og Jarðfræðistofnun Háskóla Íslands. 9.5.2010 14:08
Landstjórinn tók rútuna norður Það vakti athygli farþega sem þurftu að taka rútuna norður til Akureyrar í nótt að Franek Rozwadowski, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var á meðal farþega. Franek, sem af gárungum hefur stundum verið kallaður Landstjóri Íslands, hefur því gert sér að góðu sama ferðamáta og „þegnar“ hans. 9.5.2010 13:29
Eyjafjallajökull: Icelandair breytir áætlun fyrir morgundaginn Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugi á morgun, mánudaginn 10. maí, vegna áframhaldandi óvissu um hvort Keflavíkurflugvöllur verður opinn fyrir flugumferð. 9.5.2010 13:21
Ríkisstjórn líklega kölluð á fund í dag Búist er við að ríkisstjórnin verði kölluð saman til aukafundar síðar í dag eða í kvöld þar sem lagðar verði meginlínur um ríkisfjármál og fækkun ráðuneyta. 9.5.2010 12:19
Eyjafjallajökull: Drunurnar heyrast í Dölunum Drunurnar úr Eyjafjallajökli hafa heyrst víða um land í dag. Fólk í Dölunum segist heyra drunur og sprengingar mjög greinilega og þá hafa lætin í gosinu heyrst vel til Vestmannaeyja. 9.5.2010 11:47
Manndráp: Hinn grunaði í gæsluvarðhald Maðurinn sem Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gær vegna rannsóknar á ætluðu manndrápi í Reykjanesbæ var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness klukkan 10 í morgun. Hann mun því sitja í gæsluvarðhaldi til mánudagsins 17. maí hið minnsta. 9.5.2010 10:56
Truflanir á útsendingu Bylgjunnar á Suðurlandi Truflanir eru á útsendingum Bylgjunnar á hluta Suðurlands. Sendir í Vestmannaeyjum var uppfærður í nótt og er bilunin rakin til þess. Unnið er að viðgerð og ætti útsendingin að komast í samt lag á næsta klukkutímanum. 9.5.2010 10:41
Fundað um fátækt á Grand Hótel Fundur um fátækt er að hefjast nú klukkan tíu á Grand Hótel Reykjavík og verður haldinn með þjóðfundarsniði. Fundurinn er á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins og er haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt. Áformað er að hann standi til klukkan fjögur í dag. 9.5.2010 10:07
Ellefu létust í sprengingu í rússneskri kolanámu Ellefu eru látnir og 41 slasaður eftir að tvær sprengingar urðu í stærstu kolanámu Rússlands í gærkvöldi. Að minnsta kosti 84 eru enn í námunni sem er staðsett í Kemerovo héraði í vesturhluta Síberíu. Alls voru 359 starfsmenn neðanjarðar þegar fyrri sprengingin varð, en talið er að um hafi verið að ræða metansprengingu. 9.5.2010 10:02
Yfirheyrslum haldið áfram í dag Yfirheyrslur vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings munu halda áfram í dag, en stíft er unnið að rannsókn málsins hjá embættinu um helgina. 9.5.2010 10:00
Eyjafjallajökull: Enn gýs af krafti Ennn gýs af krafti úr Eyjafjallajökli. Gosórói mælist svipaður og undanfarna daga, samkvæmt upplýsingum Veðurstofu, en skjálftavirkni er ekki mikil. Gosmökkinn leggur undan hægri norðvestanátt til suðausturs, eins og undanfarna daga, í átt að Skógum og Mýrdal. 9.5.2010 09:59
Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram í Bretlandi Stjórnarmyndunarviðræður milli frjálslyndra og íhaldssamra í Bretlandi halda áfram í dag, þriðja daginn í röð. Í gær hittust Nick Clegg leiðtogi frjálslyndra og íhaldsleiðtoginn David Cameron á einkafundi. 9.5.2010 09:57
Eyjafjallajökull: Millilandaflug um Akureyri - háloftaumferð yfir Skagafirði Allt millilandaflug fer um Akureyrarflugvöll í dag þar sem Keflavíkurflugvöllur er enn lokaður vegna ösku. Fimm vélar fara með farþega Icelandair til Glasgow í dag þaðan sem þeir verða ferjaðir áfram. Fyrsta Glasgow flugið frá Akureyri er þegar farið. IcelandExpress flýgur einnig í dag frá Akureyri bæði til London og Kaupmannahafnar. 9.5.2010 09:49
Bandaríkjamenn þrýsta á Pakistana Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa sett mikinn þrýsting á Pakistana og krefjast þess að þeir uppræti hryðjuverkasamtök sem starfa í landinu en tilræðismaðurinn sem reyndi að sprengja bifreið í loft upp á Times torgi í New York á dögunum kom er sagður tengjast hryðjuverkasamtökum þar í landi. 8.5.2010 23:00
Vargöld í Mexíkó: Þrjú höfuðlaus lík fundust í Acapulco Mexíkanska lögreglan rannsakar nú morð á þremur mönnum í ferðamannaborginni Acapulco en líkin fundust í dag. Mennirnir höfðu greinilega verið pyntaðir og að lokum hálshöggnir. 8.5.2010 22:00
Aldrei eins mikil umferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu Mikill straumur flugvéla hefur verið inn á íslenska flugstjórnarsvæðið í dag og síðustu nótt, búist er við áframhaldandi mikilli umferð í nótt og á morgun. „Vegna umferðarinnar sem er í meira lagi óvenuleg vegna umfangs og flækjustigs hefur mönnun á flugumferðarstjórum tvöfaldast í dag og voru tuttugu og tveir á vaktinni í þegar mest var að gera,“ segir í tilkynningu frá Isavia (áður Flugstoðir). 8.5.2010 20:54
Heitavatnslaust í Reykárhverfi Í kjölfar rafmagnsbilunar í gærkveldi bilaði hraðastýring á dælu sem þjónar Reykárhverfi sem ollu truflunum í rekstri dreifikerfis á svæðinu. Í dag varð síðan bilun í stofnæð sem veldur því að heitavatnslaust er í Reykárhverfi að því er fram kemur í tilkynningu frá Norðurorku. 8.5.2010 19:56
Clegg fær umboð til áframhaldandi viðræðna Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra, fundaði með forystu flokksins í dag og fékk umboð til áframhaldandi viðræðna. Fulltrúar flokkana funda á morgun en búist er við því að viðræður taki nokkra daga. 8.5.2010 18:30
Fjármagnsflutningar til Lúx meðal annars til rannsóknar Hundrað milljarðar króna voru millifærðir úr sjóðum Kaupþings inn á erlenda bankareikninga skömmu fyrir hrun. Fjármagnsflutningarnir frá móðurfélagi bankans hér á landi til Lúxemborgar og annarra landa teygja anga sína inn í rannsókn sérstaks saksóknara. Yfirheyrslur hafa staðið yfir í dag. 8.5.2010 18:30
Eyjafjallajökull: Iceland Express flýgur frá Akureyri á morgun Iceland Express hefur ákveðið að vélar félagsins sem fara til London og Kaupmannahafnar á morgun fara frá Akureyrarflugvelli. Vélin til Kaupmannahafnar fer klukkan 13:00 og sú til London klukkan 15:00. Sætaferðir verða til og frá Akureyri. 8.5.2010 18:03
Manndráp í Keflavík: Liðlega tvítugur maður í haldi Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú staðfest að maður sé í haldi, grunaður um að hafa orðið öðrum manni að bana í bænum. Hinn handtekni er liðlega tvítugur og verður hann yfirheyrður síðar í dag. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu en borin hafa verið kennsl á hann. Hann var á sextugsaldri. 8.5.2010 15:28
Kópavogsdagar hófust í dag Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogsbæjar, hófust í dag með opnun sýningarinnar, Fúsi á ýmsa vegu, sem sett hefur verið upp í Tónlistarsafni Íslands á Kópavogsholti til heiðurs listamanninum Sigfúsi Halldórssyni. 8.5.2010 20:27
Lottó: Tveir með allar tölur réttar Tveir heppnir Lottóspilarar voru með allar tölur réttar í útdrætti kvöldsins. Þeir skipta því með sér fyrsta vinningi og koma rúmar fimm milljónir króna í hlut hvors. Annar vinningsmiðinn var áskriftarmiði en hinn var keyptur í verslun Samkaupa-Úrvals á Selfossi. Þá var einn heppinn þáttakandi með Jókertölurnar réttar og fær sá tvær milljónir í sinn hlut. Sá miði var keyptur í Skýlinu í Vestmannaeyjum. 8.5.2010 20:03