Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ Félags- og tryggingamálaráðherra og bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu í dag samning um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ. Ráðgert er að hefja framkvæmdir í sumar og að heimilið verði tekið í notkun vorið 2012. 23.4.2010 17:15
Meintir kókaínsmyglarar áfram í gæsluvarðhaldi Sex manns, fimm karlar og ein kona sem öll voru handtekin um þar síðustu helgi, hafa verið úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald en þau eru grunuð um aðild á innflutningi kókaíns hingað til lands frá Spáni. Um er að ræða rúmlega 3 kg af mjög hreinu kókaíni. 23.4.2010 16:48
Miðbaugsmaddaman verður ekki ákærð fyrir hagnýtingu vændis Catalina Ncogo verður ekki ákærð fyrir hagnýtingu vændis þar sem hún hefur áður verið dæmd fyrir sama brot og því er ekki hægt að sakfella hana og refsa fyrir háttsemi sem hún hefði þegar hlotið refsidóm fyrir. 23.4.2010 16:35
Nágrannavarslan kom upp um innbrot og fíkniefnamisferli Síðasta mánudag var brotist inn í íbúðarhús í Hveragerði og þaðan stolið fartölvum, sjónvarpsflakkara, myndavél og fleiri hlutum. 23.4.2010 16:18
Hafa Bandaríkjamenn vopnað Geimferju? Geimferja sem bandaríski flugherinn skaut út í geiminn í dag er eins og smækkuð útgáfa af ferjunum sem Geimferðastofnunin hefur notað undanfarna áratugi. 23.4.2010 16:13
Grunnskólar sameinaðir í Hafnarfirði Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum í vikunni að sameina Engidalsskóla og Víðistaðaskóla frá haustinu undir einni yfirstjórn. 23.4.2010 15:43
Félag háskólakennara vill framtíðarstefnu fyrir háskólastig Á fundi stjórnar Félags háskólakennara dags. 23. apríl 2010 var eftirfarandi ályktun samþykkt: 23.4.2010 15:25
Fóru í annað sjúkraflug til Grænlands Flugvél frá Mýflugi fór ásamt lækni frá sjúkrahúsinu á Akureyri og sjúkraflutningamanni frá slökkviliðinu til Upernavik á vesturströnd Grænlands, sem er fjórði nyrsti bær í heimi. 23.4.2010 14:14
Árni ætlar að áfrýja Árni Mathiesen hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur en hann ásamt íslenska ríkinu var gert að greiða Guðmundi Kristjánssyni, lögfræðingi, þrjár og hálfa milljón króna óskipt vegna skipunar Þorsteins Davíðssonar sem héraðsdómara á Norðurlandi eystra 2007. 23.4.2010 14:07
Sextíu myrtir í Bagdad Um sextíu manns féllu og hátt á annað hundrað særðust í sprengju- og skotárásum í Írak í dag. 23.4.2010 14:00
Nemi í HÍ vekur athygli vegna meðhöndlun krabbameins Rannsókn á nýrri meðhöndlun krabbameins, sem doktorsnemi við Háskóla Íslands vinnur að frekari þróun á samstarfi við erlenda aðila, hefur vakið gríðarlega athygli í Bretlandi. 23.4.2010 13:40
Rúmir þrír milljarðar settir í viðhaldsverkefni Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að setja 3,2 milljarða í viðhaldsverkefni á opinberum byggingum. Því hefur 500 milljónum verið bætt til viðbótar við það sem áður hafði verið samþykkt. 23.4.2010 12:40
Icelandair: Gert ráð fyrir lokun Keflavíkurflugvallar næstu tvo sólarhringa Icelandair hefur sett upp flugáætlun sína fyrir næsta tvo sólarhringa og miðar hún við áframhaldandi lokun Keflavíkurflugvallar. „Laugardag 24. apríl og sunnudag 25. apríl verður flugvöllurinn í Glasgow því miðstöð millilandaflugs Icelandair,“ segir í tilkynningu frá félaginu. 23.4.2010 12:29
Slökkviliðsmenn þrífa hús á öskufallssvæðinu Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli vinnur nú fjöldi slökkvibíla og slökkviliðsmanna að því að þvo hús á öskufallssvæðinu. Lögreglan segir rólega virkni í eldstöðinni, ekki hafi borist tilkynningar um neitt öskufall en öskumistur er nokkuð vestan við eldstöðina, svo sem í Fljótshlíð og á Hvolsvelli. 23.4.2010 12:28
Alþjóðlegur dagur bókarinnar er í dag Alþjóðlegur dagur bókarinnar er í dag, 23. apríl. Deginum var komið á fót af Unesco Alþjóðadegi bókarinnar var komið á fót af UNESCO og er helgaður bókum og höfundarrétti. Ástæðan fyrir valinu er að 23. apríl, messa heilags Georgs, hefur um langa hríð verið dagur bókarinnar í Katalóníu og bóksalar Barcelona jafnan gefið rós eða önnur blóm með hverri bók sem seld er þennan dag. 23.4.2010 11:57
Þurfa að greiða milljónir í miskabætur vegna skipunar dómara Árni Mathiesen og íslenska ríkið var dæmt til þess að greiða Guðmundi Kristjánssyni lögmanni óskipt þrjár og hálfa milljón í miskabætur fyrir að skipa Þorstein Davíðsson sem héraðsdómara árið 2007. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 23.4.2010 11:42
Líf á eldfjallaeyju: Fjölskyldudagskrá í Öskju á morgun Háskóli Íslands verður á morgun með dagskrá fyrir alla fjölskylduna í máli og myndum um jarðfræði og líffræðilega fjölbreytni Íslands í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. 23.4.2010 11:33
Evrópureisan hófst með rútuferð til Akureyrar Vélar Iceland Express til Kaupmannahafnar og Berlínar, sem áttu að fara í dag, verða sameinaðar í einu flugi frá Akureyri í dag. Farþegarnir eru nú á leið til Akureyrar og fóru rútur frá BSÍ áleiðist norður klukkan tvö. Vél félagsins til London Gatwick, sem fara átti snemma í fyrramálið verður frestað um 24 tíma. 23.4.2010 11:10
Formaður BÍ: Mótframboð kom á óvart „Ég verð að viðurkenna að þetta framboð kom mér þó á óvart,“ segir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, en henni hefur borist mótframboð í formannsembættið frá framkvæmdarstjóra félagsins, Hjálmari Jónssyni. 23.4.2010 11:09
Ekkert öskufall í Reykjavík Ekki verður neitt öskufall í Reykjavík þótt búið sé að loka flugvöllum á suðvesturhorninu. 23.4.2010 10:02
Formannsslagur BÍ: Gefur kost á sér vegna óánægju „Það hefur verið ágreiningur á milli mín og formannsins um starfsaðferðir og stefnumörkun,“ segir Hjálmar Jónsson, framkvæmdarstjóri Blaðamannafélags Íslands en hann hefur gefið kost á sér í formannsembætti félagsins. 23.4.2010 09:44
Tún á bænum Önundarhorni verða hreinsuð Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur kynnt þá ákvörðun í samráði við stjórn Bjargráðsjóðs að heimila að hafist verði handa við hreinsun túna á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum. 23.4.2010 09:25
Leitað að bankaræningja á áttræðisaldri Lögreglan í Kalíforníu í Bandaríkjunum leitar nú logandi ljósi að bankaræningja sem rænt hefur sjö banka í San Diego undanfarin misseri. Bankarán eru daglegt brauð í Bandaríkjunum en þessi ræningi sker sig úr en hann er talinn vera á áttræðisaldri. 23.4.2010 08:56
Síðasta hálmstrá Polanskis brást Dómstóll í Kalíforníu hefur hafnað beiðni kvikmyndaleikstjórans Romans Polanskis að dæmt verði í máli hans að honum fjarverandi. Polanski var á áttund áratugi síðustu aldar dæmdur fyrir að eiga samræði við stúlku undir lögaldri en hann flúði land áður en afplánun hófst. 23.4.2010 08:54
Sluppu ótrúlega vel þegar bíllinn féll 30 metra Tvær rosknar manneskjur þykja hafa sloppið með ólíkindum vel, þegar bíll þeirra rann aftur á bak í flug hálku í brekku við Kaldbaksvík á Ströndum um níuleitið í gærkvöldi, fór út af veginum og að minnstakosti 30 metra ofan í fjöru. 23.4.2010 08:51
Varað við ferðalögum til Tælands Hörð mótmæli halda áfram í höfuðborg Tælands Bangkok þar sem stuðningsmenn fyrrverandi forsætisráðherra landsins hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í sex vikur samfleytt. 23.4.2010 08:47
Enginn skýr sigurvegari í kappræðunum í Bretlandi Aðrar kappræður breskra stjórnmálaleiðtoga fóru fram í gær og í þetta skiptið var enginn ótvíræður sigurvegari. Önnur útsendingin af þremur þar sem formenn þriggja stærstu flokka Bretlands takast á í sjónvarpskappræðum fyrir komandi kosningar fór fram í gærkvöldi. 23.4.2010 08:14
Ekið á hross og það aflífað í kjölfarið Aflífa þurfti hross, eftir að stórum pallbíl var ekið á það á þjóðveginum á milli Selfoss og Hveragerðis um miðnætti. 23.4.2010 08:08
Engar breytingar á gosinu - öskufall til vesturs Engar breytingar urðu á eldgosinu í Eyjafjallajökli frá því sem hefur verið í rúmann sólarhring. Vindur hefur hinsvegar snúist í austurátt þannig að líitlsháttar öskufall er nú vestur af eldstöðinni. 23.4.2010 07:10
Flugvellir lokaðir: Stóraukinn viðbúnaður á Akureyri Fjölgað verður í slökkviliðinu á Akureyrarflugvelli í dag og liðsauki landamæravarða af Keflavíkurflugvelli verður sendur þangað til að mæta þar stór aukinni alþjóðaflugumferð, eftir að Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöllum var lokað undir morgun vegna hættu á eldfjallaösku í lofti. 23.4.2010 06:55
Lundaholur sviðnuðu í Vigur Yfir þrjátíu slökkviliðsmönnum tókst í gærkvöld að slökkva mikinn bruna sem kraumaði í jarðvegi í eynni Vigur í Ísafjarðardjúpi. 23.4.2010 06:00
Meiri flúor frá Eyjafjallajökli Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur segir ljóst að flúorinnihald gjósku hafi aukist eftir að kvika hætti að fara í gegnum vatn í gosgígnum í Eyjafjallajökli. Enn fremur kemur fram í tilkynningu frá fjölmiðlateymi samhæfingarstöðvar almannavarna að Freysteinn brýni fyrir fólki að halda áfram að hafa klút eða grímur fyrir vitum þegar það er úti við á þeim svæðum þar sem aska er að falla eða þar sem aska hefur fallið. „Gosaska í grennd við eldstöðvarnar á Eyjafjallajökli getur haft í för með sér ertingu og særindi í hálsi, sérstaklega fyrir fólk með astmaveikindi í öndunarfærum,“ segir í tilkynningunni. 23.4.2010 06:00
Mesta dópmál í sögu Akureyrar Akureyrarlögreglan fann 1,2 kíló af amfetamíni og 100 grömm af hassi þegar ráðist var í húsleitir á þremur stöðum samtímis á þriðjudagskvöldið var. 23.4.2010 06:00
Skítur hvala nærir höfin Hvalaskítur gerir heimshöfin járnríkari. Þessu hafa ástralskir vísindamenn komist að eftir að hafa stundað rannsóknir í Suðurhöfum. 23.4.2010 06:00
Hvalveiðar verði leyfðar Íslendingar fá að veiða 80 langreyðar og 80 hrefnur á ári ef málamiðlunartillaga formanns og varaformanns Alþjóðahvalveiðiráðsins nær fram að ganga á næsta fundi ráðsins í júní. 23.4.2010 06:00
Mega ekki lista upp leyfislausa Ferðamálastofu er ekki heimilt að birta á heimasíðu sinni lista yfir þá aðila sem stunda leyfis- eða skráningarskylda starfsemi án þess að hafa tilskilin leyfi. Í fyrirspurn til Persónuverndar segir að Ferðamálastofu hafi borist margar ábendingar um að ferðaþjónustuaðilar stundi starfsemi án leyfa. 23.4.2010 05:30
Viðmiðunarmörk vegna gosöskunnar voru færð til Flugbannið í Evrópulöndum stóð í tæpa viku og varð til þess að fella þurfti niður meira en 100 þúsund flugferðir. Beinn kostnaður flugfélaga er kominn yfir 200 milljarða króna að mati alþjóðlegu flugmálastofnunarinnar IATA, og ómæld eru þá hvers kyns óþægindi flugfarþega sem urðu innlyksa víðs vegar um Evrópu sem og annarra er treystu á vöruflutning með flugvélum. 23.4.2010 05:30
Vilja ekki hús í fuglafriðland Sjálfstæðismenn í umhverfis- og skipulagsnefnd Árborgar gagnrýna ákvörðun meirihlutans um að reisa 200 fermetra þjónustuhús í fuglafriðlandi á bökkum Ölfusár ofan við Eyrarbakka. „Við fögnum bættu aðgengi að friðlandinu en leggjumst gegn samkeppni sveitarfélagsins í kaffisölu. Nær væri að beina fjármagni sveitarfélagsins í kynningarstarf á fuglafriðlandinu,“ segir í bókun sjálfstæðismanna. 23.4.2010 03:30
Getum margt lært af Íslandi Þýskaland Þýska þingið samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta að heimila Evrópusambandinu að hefja aðildarviðræður við Ísland. 23.4.2010 03:30
Færeyingar heiðra Vigdísi Ræðismaður Færeyja afhenti Vigdísi Finnbogadóttur heiðursgjöf frá Færeyingum á áttatíu ára afmæli forsetans fyrrverandi. Gjöfin, loforð um nítján milljónir króna á núverandi gengi, 825.000 danskar, eiga að renna til Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. 23.4.2010 03:00
Aukin harka í kappræðum Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði andstæðinga sína, þá Nick Clegg, leiðtoga Frjálslynda demókrataflokksins, og David Cameron, leiðtoga Íhaldsflokksins, báða vera hættulega Bretlandi í sjónvarpskappræðum þeirra í gærkvöld. Meiri harka var í kappræðunum nú en fyrir viku, en allra augu beindust að Nick Clegg sem óvænt stóð sig það vel í fyrstu kappræðunum að flokkarnir þrír standa nú nokkuð jafnt að vígi fyrir þingkosningarnar 6. maí.- gb 23.4.2010 02:30
Björgólfur Thor verður þér góður vinur Actavis naut stuðnings Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, til að hasla sér völl í lýðveldinu Serbíu. 23.4.2010 02:00
Obama taki ábyrgð Vinsældir Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, hafa aukist um 3% og segjast nú 46% Bandaríkjamanna vera ánægðir með störf hans. Jafnmargir segjast vera ósáttir við störf hans sem forseta. Þetta kemur fram í skoðanakönnun bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar Fox News. 22.4.2010 23:00
Fundar með Ísraelum og Palestínumönnum George Mitchell, sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í málefnum Mið-Austurlanda, er á leið Ísraels og Palestínu. Hann hyggst reyna hvað hann getur til að fá Ísraela og Palestínumenn til að setjast á nýjan leik við samningaborðið. 22.4.2010 21:45
Neyðarfundur í kjölfar sprenginga í Bangkok Að minnsta kosti þrír eru látnir og meira en 80 eru særðir eftir að fimm sprengjur sprungu í dag í Bangkok, höfuðborg Tælands, í dag. Meðal hinna særðu eru útlendingar. Í framhaldinu kallaði forsætisráðherrann Abhisit Vejjajiva ríkisstjórn landsins saman til neyðarfundar. 22.4.2010 20:30