Innlent

Ekið á hross og það aflífað í kjölfarið

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. MYND/Anton

Aflífa þurfti hross, eftir að stórum pallbíl var ekið á það á þjóðveginum á milli Selfoss og Hveragerðis um miðnætti.

Þrjú hross voru óvænt á veginum, en hin tvö sluppu. Þegar lögregla kom á vettvang kallaði hún á dýralækni, sem aflýfaði hrossið, þar sem því var ekki hugað líf.

Ökumann bílsins sakaði ekki. Lausaganga búfjár er bönnuð þar sem slysið varð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×