Innlent

Grunnskólar sameinaðir í Hafnarfirði

Nemendur í Engidalsskóla. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Nemendur í Engidalsskóla. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum í vikunni að sameina Engidalsskóla og Víðistaðaskóla frá haustinu undir einni yfirstjórn.

Þetta er niðurstaðan úr svonefndri tillögu D sem vinnuhópur á vegum fræðsluráðs Hafnarfjarðar lagði til en hann hefur starfað frá því í febrúar samkvæmt tilkynningu frá bæjaryfirvöldum.

Lögð verður áhersla á að allir fastráðnir starfsmenn skólanna tveggja haldi störfum sínum. Þá segir í tilkynningunni að ef einhverjir rúmist ekki innan hins nýja skóla verður þeim boðið upp á sambærilegt starf innan skólakerfisins í Hafnarfirði þótt ekki sé hægt að tryggja öllum stjórnendum sambærilegt starf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×