Erlent

Enginn skýr sigurvegari í kappræðunum í Bretlandi

Þeir Gordon Brown, David Cameron og Nick Clegg tókust á um Evrópumál, loftslagsmál, skatta og kjarnorkumál og segir stjórnmálaskýrandi BBC að allir hafi þeir átt sína góðu spretti.
Þeir Gordon Brown, David Cameron og Nick Clegg tókust á um Evrópumál, loftslagsmál, skatta og kjarnorkumál og segir stjórnmálaskýrandi BBC að allir hafi þeir átt sína góðu spretti. MYND/AP

Aðrar kappræður breskra stjórnmálaleiðtoga fóru fram í gær og í þetta skiptið var enginn ótvíræður sigurvegari. Önnur útsendingin af þremur þar sem formenn þriggja stærstu flokka Bretlands takast á í sjónvarpskappræðum fyrir komandi kosningar fór fram í gærkvöldi.

Í fyrstu kappræðunum var það almennt álit manna að Nick Clegg formaður Frjálslyndra demókrata hafi staðið sig best en í gærkvöldi var mjórra á mununum. Þeir Gordon Brown, David Cameron og Nick Clegg tókust á um Evrópumál, loftslagsmál, skatta og kjarnorkumál og segir stjórnmálaskýrandi BBC að allir hafi þeir átt sína góðu spretti.

Í könnunum sem gerðar voru strax að þættinum loknum var enda ekkert einróma álit um hver hefði staðið sig best. Miðað við kannanir eftir fyrri kappræðurnar er þó ljóst að Gordon Brown þykir hafa bætt sig verulega á meðan Nick Clegg fékk ekki eins góða dóma í gærkvöldi eins og í fyrstu umferð.

Kappræðurnar voru töluvert heitari í þetta skiptið og sérstaklega var David Cameron orðhvass en hann sakaði Brown meðal annars um að dreyfa lygum um Íhaldsflokkinn í málefnum aldraðra og sagði Brown að skammast sín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×