Innlent

Sluppu ótrúlega vel þegar bíllinn féll 30 metra

Tvær rosknar manneskjur þykja hafa sloppið með ólíkindum vel, þegar bíll þeirra rann aftur á bak í flug hálku í brekku við Kaldbaksvík á Ströndum um níuleitið í gærkvöldi, fór út af veginum og að minnstakosti 30 metra ofan í fjöru.

Fólkið klifraði upp á veginn, en varð að ganga talsverðan spöl áður en það komst í símasamband og gat kallað eftir aðstoð. Bíllinn, sem er pallbíll, hélst á hjólunum allan tímann, og er það talið hafa orðið fólkinu til lífs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×