Innlent

Nemi í HÍ vekur athygli vegna meðhöndlun krabbameins

Rannsókn á nýrri meðhöndlun krabbameins, sem doktorsnemi við Háskóla Íslands vinnur að frekari þróun á samstarfi við erlenda aðila, hefur vakið gríðarlega athygli í Bretlandi.

Fjallað er um rannsóknina í breska blaðinu The Times fyrr í mánuðinum. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa góð fyrirheit um að unnt sé að vinna bug á ýmsum krabbameinum á höfði og hálsi sem áður voru talin ill- eða ólæknanleg.

Rannsóknin er á vegum Norsks fyrirtækis PCI Biotech og er unnin af læknum við University College Hospital í London.

Rannsóknin snýst um að beita nýrri tækni til krabbameinsmeðferðar. Ellefu sjúklingar með langt komin krabbamein tóku þátt í rannsókninni. Nýju rannsóknalyfi, Amphinex, var sprautað í æð nokkrum dögum áður en sjúklingurinn hlaut hefðbundna lyfjameðferð.

Amphinex örvar ljósstýrða upptöku lyfja í krabbameinsfrumur. Í kjölfar lyfjameðferðarinnar var ljósi beint að krabbameinsæxlinu, og við það jókst til muna virkni lyfjameðferðarinnar. Meðhöndluð æxli hurfu og engar alvarlegar aukaverkanir komu fram í rannsókninni.

Einn níu starfsmanna PCI Bioteche er Vivek S. Gaware, doktorsnemi við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, en leiðbeinandi í verkefni hans er Már Másson prófessor. Rannsóknaverkefni Viveks miðar að frekari þróun á þessari nýstárlegu meðferð.

Norska fyrirtækið á í samvinnu við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og er með starfsstöð hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×