Erlent

Sextíu myrtir í Bagdad

Óli Tynes skrifar
Frá Bagdad.
Frá Bagdad. Úr myndasafni.

Um sextíu manns féllu og hátt á annað hundrað særðust í sprengju- og skotárásum í Írak í dag.

Mannskæðustu sprengjurnar sprungu í Bagdad en árásir voru einnig gerðar víðsvegar annarsstaðar í landinu.

Fréttamiðlar virðast tengja þetta við að fyrir fjórum dögum var skýrt frá því að tveir háttsettir foringjar í hryðjuverkasamtökunum Al Kaida vegnir í Írak.

Enginn hefur þó enn lýst þessum árásum á hendur sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×