Erlent

Leitað að bankaræningja á áttræðisaldri

Bankarán eru daglegt brauð í Bandaríkjunum en þessi ræningi sker sig úr en hann er talinn vera á áttræðisaldri.
Bankarán eru daglegt brauð í Bandaríkjunum en þessi ræningi sker sig úr en hann er talinn vera á áttræðisaldri.

Lögreglan í Kalíforníu í Bandaríkjunum leitar nú logandi ljósi að bankaræningja sem rænt hefur sjö banka í San Diego undanfarin misseri. Bankarán eru daglegt brauð í Bandaríkjunum en þessi ræningi sker sig úr en hann er talinn vera á áttræðisaldri.

Myndir úr öryggismyndavélum sýna að hann fer sér að engu óðslega í ránunum. Hann bíður þolinmóður þar til röðin er komin að honum og dregur þá upp skammbyssu og heimtar peninga.

Lögregla biðlar nú til almennings um aðstoð og hefur dreift myndum af karlinum, sem yfirleitt er með derhúfu og þykk gleraugu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×