Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimmtán ár frá árásinni í Oklahoma Fimmtán ár eru í dag liðin frá sprengjuárásinni á stjórnsýsluhúsið í Oklahoma í Bandaríkjunum. Í árásinni létu 168 lífið og yfir 600 slösuðust. 19.4.2010 14:42
Icelandair flýgur til Bretlands og Norðurlanda á morgun Icelandair mun fljúga samkvæmt áætlun á í fyrramálið, þriðjudagsmorgun 20. apríl, til Stokkhólms og Osló. 19.4.2010 14:42
Á annan tug erlendra farþega- og flutningavéla fastar hér á landi Á annan tug erlendra farþega- og flutningaflugvéla eru nú á flugvélastæðum á Keflavíkurflugvelli og bíða átekta að komast til áfangastaða sinna í Evrópu samkvæmt fréttavef Víkurfrétta (vf.is). 19.4.2010 14:21
Vilja opna lofthelgi að hluta til Á símafundi evrópskra flugmálayfirvalda sem haldinn var í morgun var ákveðið að þróa aðferðafræði sem gæti gert kleift að opna evrópskt loftrými án þess að ógna flugöryggi á nokkurn hátt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Flugstoðum. 19.4.2010 13:19
Tveir handteknir vegna eiturmáls- atburðarás óljós Atburðarrásin er óljós varðandi fertugan mann sem innbyrti stíflueyði í teiti um helgina að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 19.4.2010 13:12
Ekki sprenging innanborðs í herskipinu Forseti Suður-Kóreu hefur lofað þjóðinni að gripið verði til ákveðinna aðgerða ef í ljós komi að herskipið sem sprakk í tvennt og sökk í síðasta mánuði hafi orðið fyrir einhverskonar árás. 19.4.2010 13:04
Líkur á öskufalli í Reykjavík hverfandi Samkvæmt Veðurstofu Íslands eru líkur á öskufalli úr eldgosinu í Eyjafjallajökli á höfuðborgarsvæðinu hverfandi. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að samkvæmt veðurspá muni vindátt breytast á fimmtudag og verða austanstæð en gert er ráð fyrir rigningu sem dregur verulega úr líkum á öskufalli. 19.4.2010 12:40
Sjálfstæðismenn funda vegna afsagnar Þorgerðar Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins kemur saman til fundar í dag til að ræða þá stöðu sem upp er kominn í flokknum eftir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér sem varaformaður um helgina. Þá verður einnig ræddur sá möguleiki að flýta Landsfundi flokksins. 19.4.2010 12:14
Dæmdur nauðgari einn þeirra sem var handtekinn í kókaínmáli Átta manns, sjö karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til vikuloka. Þau eru grunuð um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Europol rannsakar málið í samvinnu við lögregluna hér á landi. Einn hinna handteknu er Davíð Garðarsson, dæmdur nauðgari sem var á flótta undan lögreglunni í tæp tvö ár. 19.4.2010 12:03
Gosið að breytast í hraungos Gosmökkurinn yfir Eyjafjallajökli er talsvert lægri en hann hefur verið að undanförnu, sem talið er vita á að farið sé að draga úr öskugosinu og að gosið sé að verða hraungos. Gosvirkni jókst i gærkvköldi, dalaði aðeins í nótt en óx aftur í morgun. 19.4.2010 11:59
Varðskipið Ægir gleður börn í Senegal Varðskipið Ægir er á leið til Senegal á morgun þar sem stendur til að taka þátt í eftirliti með Frontex, Landamærastofnun Evrópu sem Ísland er aðili að í gegnum Schengen samstarfið. 19.4.2010 11:42
Lögreglan í Vestmannaeyjum gagnrýnir samninganefnd harðlega Lögreglufélag Vestmannaeyja lýsir yfir mikilli óánægju með það sem þeir kalla virðingaleysi samninganefnd ríkisins í ályktun sem þeir sendu fjölmiðlum í dag. 19.4.2010 11:25
Engin aska í tilraunaflugi British Airways Flugfélagið British Airways fann engin merki um ösku á Boeing 747 breiðþotu sem það sendi á loft í gær. 19.4.2010 11:13
Alþjóðleg rannsókn á kókaíninnflutningi Átta manns, sjö karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til vikuloka að minnsta kosti grunuð um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Europol rannsakar málið í samvinnu við lögregluna. 19.4.2010 10:57
Bretar senda flotann til að sækja ferðamenn Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að senda flota af herskipum til að ná í breska ferðamenn og ríkisborgara sem eru strandaðir víða um Evrópu vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Meðal þeirra herskipa sem nota á eru þau stærstu í flotanum, flugmóðurskipin HMS Ark Royal og HMS Ocean. 19.4.2010 10:49
Átta í haldi grunaðir um stórfellt fíkniefnasmygl Átta menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til vikuloka að minnsta kosti grunaðir um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Heimildir fréttastofu herma að um hvítt efni í kílóavís sé að ræða. Upp komst um smyglið á Keflavíkurflugvelli en reynt var að smygla efnunum í ferðatösku. 19.4.2010 10:29
Neyddur til þess að drekka stíflueyði - liggur á gjörgæslu Karlmaður um fertugt liggur þungt haldinn á gjörgæslu eftir að menn neyddu ofan í hann ætandi stíflueyði um helgina. 19.4.2010 09:50
Sýna Hrafni stuðning með því að flagga fánum í Laugarnesinu Reykjavíkurborg hefur ákveðið að láta til skarar skríða gegn Hrafni Gunnlaugssyni kvikmyndagerðarmanni og var honum gefinn frestur til klukkan níu í morgun til þess að fjarlægja muni sem hann telur sig eiga en liggja utan lóðamarka við heimili hans í Laugarnesinu. Að öðrum kosti mun borgin láta fjarlægja munina án frekari fyrirvara. Í gegnum árin hefur Hrafn sankað að sér alls kyns munum á lóð sinni og þar í kring. 19.4.2010 09:18
Fimm fangar hefja afplánun að Bitru Fimm fangar eru nú komnir í nýja fangelsið að Bitru í Flóahreppi, en þar verður rými fyrir 20 fanga. Að sögn Margrétar Frímannsdóttur forstöðumanns fangelsins að Litla Hrauni afgreiddu allar stofnanir umsóknir um tilheyrandi leyfi hratt og vel, bæði skipulagsyfirvöld eystra og viðkomandi ráðuneyti. Fangelsið verður svo fromlega opnað innan tíðar. 19.4.2010 09:09
Strangari siglingareglur við kóralrifið mikla Áströlsk yfirvöld undirbúa nú að setja mun strangari reglur varðandi flutningaskip sem sigla nálægt stóra Kóralrifinu undan ströndum landsins. Kínverskt kolaflutningaskip strandaði á rifinu á dögunum og olli miklum skemmdum á kóralnum en rifið er það stærsta sinnar tegundar í heiminum. 19.4.2010 09:04
Makríll aðeins veiddur á línu Sjávarútvegsráðherra hefur að áeggjan laxveiðimanna breytt nýrri reglugerð um makrílveiðar á þann veg að þær verða bannaðar með netum. 19.4.2010 09:02
Fundað með íbúum á áhrifasvæði gossins Íbúafundir verða haldnir á næstunni með íbúum, sem hafa orðið fyrir búsifjum vegna eldgossins. Sá fyrsti verður að Gunnarshólma klukkan hálf ellefu í dag. Þar munu almannavarnanefndir í héraði, dýralæknar, jarðvísindamenn og fleiri sérfærðingar, ásamt fulltrúum frá stofnunum, fara yfir stöðuna og fjalla um aðgerðir. 19.4.2010 08:27
Tekinn á 136 þar sem hámarkið er 30 Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á Eyrarbakka í gær eftir að hann hafði ekið á að minnstakosti 136 kílómetra hraða á götu þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkusutnd. 19.4.2010 08:25
Lá við stórtjóni Minnstu munaði að stórtjón yrði, þegar eldur kviknaði í ruslagámi við félagsheimilið Félagslund í Gaulverjabæjarhreppi suðuaustur af Selfossi á tólfta tímanum í gærkvöldi. 19.4.2010 08:24
Búið að gera við veginn við Markarfljót - enn lokað þó Það snjóaði víða á norðan- og austanverðu landinu í nótt og er víða hálka, einkum á fjallvegum. Það var til dæmis al hvít jörð og hálka á Akureyri í morgunsárið. 19.4.2010 08:20
Gera ráð fyrir að lögreglumönnum fækki Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir að lögreglumönnum og öðru starfsfólki lögreglunnar fækki á næstu árum. Þetta verði gert með því að nánast engar nýráðningar komi á móti fækkun vegna þeirra starfsmanna sem fara á eftirlaun eða hverfa til annarra starfa. Þetta kemur fram í umsögn fjármálaráðuneytisins um nýtt frumvarp um breytingar á lögreglulögum sem liggur fyrir þinginu. 19.4.2010 08:00
Enn kraftur í gosinu Gosórói jókst í Eyjafjallajökli í gærkvöldi og er enn kraftur í gosinu. Gosmökkurinn er hinsvegar margfalt lægri en áður, hann stígur rétt upp fyrir jökulinn. Þetta staðfesta ratsjár og myndir úr gerfihnöttum. 19.4.2010 07:16
Flogið til Noregs, Svíþjóðar og Finnlands Staðan á flugi frá Íslandi er sú að flug Icelandair til Kaupmannahafnar sem fara átti í dag hefur verið fellt niður en í stað þess er boðið upp á aukaflug til Osló. Einnig hefur flugi sem fara átti til Helsinki verið breytt og verður nú flogið til Tampere þess í stað. 19.4.2010 07:08
Askan í Evrópu: Útlitið aðeins bjartara Askan úr eyjafjallajökli heldur áfram að hrella evrópubúa og lama flugsamgöngur. Þó hafa flugvellir verið opnaði í Noregi og Svíþjóð þótt það gæti verið tímabundið. 19.4.2010 06:59
Efast um lögmæti landsdóms Vafi leikur á hvort landsdómur standist Mannréttindasáttmála Evrópu. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, benti á í grein á laugardag að samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu verði allir að eiga þess kost að mál þeirra sé tekið fyrir á tveimur dómstigum. „Landsdómur uppfyllir ekki þetta skilyrði. Hann er því ónothæfur,“ skrifar Þorsteinn. 19.4.2010 06:45
Sló út rafmagni á Litla-Hrauni Óheppin álft flaug á rafmagnsstreng skammt frá fangelsinu á Litla-Hrauni um klukkan 13.30 í gær með þeim afleiðingum að rafmagni sló út víða á Suðurlandi. 19.4.2010 06:30
Vill flýta landsfundi eftir afsögn Þorgerðar Óvenjuleg staða er komin upp í Sjálfstæðisflokknum eftir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér varaformennsku í flokknum, og tilkynnti að hún hygðist víkja tímabundið af þingi. Þorgerður tilkynnti afsögn sína á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem fram fór í Stapa í Reykjanesbæ á laugardag. 19.4.2010 06:15
Framkvæmdin önnur en í Noregi Álitaefni er hvort bankarnir hefðu ekki betur dregið frá skráðu eiginfé lán sem veitt voru með veði í hlutabréfum þeirra sjálfra. Rannsóknarnefnd Alþingis bendir á að skort hafi á umræðu um þetta mál í tengslum við endurskoðun reikninga fjármálafyrirtækja. 19.4.2010 06:00
Allt á kafi í grárri drullu „Það er leiðindalykt og allt á kafi í grári drullu,“ segir Berglind Hilmarsdóttir, ábúandi á Núpi undir Eyjafjöllum. Í gær birti til eftir að öskunni hafði kyngt niður og skildi eftir sig svart teppi yfir sveitinni. Berglind finnur til í öndunarfærunu og segir þungt að anda. „Eins og maður sé alltaf með ryk í nefinu. Fólk er eflaust misviðkvæmt fyrir þessu, ég get ekki ímyndað mér að þetta sér gott fyrir viðkvæma og börn.“ 19.4.2010 06:00
Ferðalangar fengu ekki að fara inn í Fljótshlíð Mikill fjöldi lagði leið sína austur á Hvolsvöll á laugardag til að berja gosstrókinn úr Eyjafjallajökli augum. Ökumenn fengu ekki að fara inn í Fljótshlíð eða að Markarfljóti samkvæmt fyrirmælum frá Almannavörnum. „Ég held að fólk hafi almennt sýnt því skilning,“ segir Smári Sigurbjörnsson, formaður björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli. 19.4.2010 06:00
Flugvélin er bylting í gosrannsóknum Ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar hefur leikið aðalhlutverk við gagnaöflun við gosstöðvarnar á Suðurlandi. Upplýsingarnar hafa gagnast við hættumat og veitt jarðvísindamönnum ómetanleg tækifæri til rannsókna. 19.4.2010 06:00
Spá Veðurstofu Íslands um öskufall Sunnudagur: Vestanátt beinir gosmekki yfir Mýrdalsjökul. Búast má við öskufalli í Meðallandi og á Mýrdalssandi. Snýst í norðanátt í nótt, með öskufalli suður af Mýrdalsjökli. 19.4.2010 05:00
Geta náð í eignir fram til 2012 Hægt verður að rifta færslu eigna til skyldmenna í kringum bankahrunið allt að fjögur ár aftur í tímann í stað tveggja að hámarki gangi frumvarp um breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti eftir. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, mælti fyrir málinu í nóvember í fyrra og var það afgreitt úr allsherjarnefnd Alþingis á föstudag. 19.4.2010 05:00
Vongóðir um flug til Norðurlandanna í dag Milljónir flugfarþega eru enn strandaglópar vegna ösku frá eldstöðinni í Eyjafjallajökli. Askan hafði engin áhrif á þotur sem flugu tilraunaflug yfir meginlandi Evrópu í gær. Mikill þrýstingur er á flugmálayfirvöld að aflétta flugbanni. 19.4.2010 04:00
Skuldaði 18% af eiginfé Kaupþings Ólafur Ólafsson var með stærstu hluthöfum Kaupþings allt frá einkavæðingu Búnaðarbankans árið 2003. Bankinn lánaði honum háar fjárhæðir þegar hlutabréfaverð hrundi. 19.4.2010 04:00
Staða Íbúðalánasjóðs verri en búist var við Íbúðalánasjóður tapaði 3,2 milljörðum króna í fyrra og stendur eiginfjárhlutfall hans í þremur prósentum. Þetta er verri niðurstaða en búist var við, að sögn Guðmundar Bjarnasonar, forstjóra sjóðsins. Heildarútlán sjóðsins námu 757 milljörðum í lok árs. 19.4.2010 04:00
Gosstrókurinn er lægri en óróinn eykst Gosvirkni í eldstöðinni á Eyjafjallajökli var minni í gær en áður og fór gosmökkurinn ekki jafn hátt og síðustu daga. Gosóróinn óx hins vegar, og er mjög erfitt að ráða í þýðingu þessara breytinga, segir Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. 19.4.2010 04:00
Icelandair inn fyrir Bakkavör Icelandair Group tekur sæti Bakkavarar Group í Úrvalsvísitölunni í dag. Ákveðið var á hluthafafundi Bakkavarar í marslok að taka félagið af markaði og gera það að einkahlutafélagi. Síðasti dagur félagsins sem skráð hlutafélag var á föstudag. 19.4.2010 03:30
Óvíst hvenær umferð verður hleypt á veginn Verktakar luku í gær við bráðabirgðaviðgerð á þjóðvegi 1, hringveginum, við Markarfljótsbrú en ekki hefur verið ákveðið hvenær vegurinn verður opnaður fyrir almennri umferð. Einnig var gert við varnargarða sem verja veginn og brúna yfir Markarfljót. 19.4.2010 03:15
Vinsælli en Churchill Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata á Bretlandi, er vinsælasti stjórnmálamaður Bretlands þessa dagana. Samkvæmt skoðanakönnun dagblaðsins Sunday Times nýtur hann auk þess meiri vinsælda en Winston Churchill, þáverandi forsætisráðherra, gerði árið 1945. 18.4.2010 22:30