Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jólapakkar frá Bandaríkjunum ná ekki til landsins í tæka tíð Tafir eru á sendingum frá Bandaríkjunum, bréfum og pökkum, og ljóst að þær munu ekki allar ná til Íslands í tæka tíð fyrir jólin. Greint var frá málinu á Vísi í gær og þá var málið í skoðun hjá póstinum. Nú er hins vegar endanlega útséð um að pakkarnir berist í tæka tíð. 23.12.2009 13:29
Rafmagnsleysi kostar Mjólkursamsöluna rúma hálfa milljón Nokkurt tjón varð hjá Mjólkursamsölunni á Selfossi í morgun þegar 6000 lítrar af mjólk fóru forgörðum vegna rafmagnsleysis, en rafmagnslaust varð í fimm mínútur þegar grafa í nágrenninu rakst í háspennustreng við Ljósafossvirkjun. 23.12.2009 12:44
Þorláksmessuskata ævargömul hefð á Vestfjörðum Þorláksmessuskata er ævagömul hefð á Vestfjörðum en ekki nema nokkurra áratuga gömul á Reykjavíkursvæðinu. 23.12.2009 12:40
Hrollkalt í Mývatnssveit - húsfreyja kippir sér ekki upp við kuldann „Þegar ég leit á mælinn minn sýndi hann 17 til 18 stiga frost," segir Guðrún Þórarinsdóttir, húsfreyja á gistiheimilinu Eldá í Mývatnssýslu en frost í Mývatnssveit fór niður í 22,8 stig í Svartárkoti í Bárðardal. Því var hrollkalt í sveitinni í nótt en RÚV greindi frá því að heimskautaloft væri yfir landinu og að Veðurstofan spái því að áfram verði kalt víðast hvar á landinu. 23.12.2009 12:20
Uppbygging á Siglufirði Á sama tíma og iðnaðarmenn á höfuðborgarsvæðinu kljást við verkefnaskort þá virðist bjart framundan á Siglufirði. Þar hyggst byggingaverktakinn Reisum.is að byggja tvö fjögurra íbúða raðhús, og þrjár einingar af parhúsum. Áætlað er að byggja húsin á gamla fótboltavellinum eða á Eyrarflöt. 23.12.2009 11:25
Magma styrkir ÍSÍ í Vancouver Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Magma Energy Corp. hafa undirritað samkomulag um samstarf í tengslum við Ólympíulið Íslands á Vetrarólympíuleikunum í Vancouver 2010. Magma, sem á hlut í HS Orku og er með höfuðstöðvar í Vancouver, mun greiða götu Ólympíuliðs Íslands á ýmsa vegu í Vancouver fram yfir leikana. 23.12.2009 11:10
Kirkjugestir verða fyrir barðinu á vasaþjófum Töluvert er um að verðmætum sé stolið úr yfirhöfnum fólks en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið margar slíkar tilkynningar að undanförnu. 23.12.2009 11:01
Ryanair þota fór út af flugbrautinni á Prestwick Farþegaþota frá flugfélaginu Ryanair fór út af flugbrautinni á flugvellinum í Prestwick á Englandi í morgun. Mikið vetrarveður hefur sett samgöngur úr skorðum í Evrópu undanfarið og hafa orðið miklar tafir á flugi. Vélin ók yfir svellbunka skömmu eftir lendingu á flugvellinum og rann hún út af brautinni og stöðvaðist þar. Engin meiðsli urðu á farþegum og hefur þeim verið komið inn í flugstöðina á Prestwick. 23.12.2009 10:44
Hélt að bílaþvottur væri eldsvoði Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan tíu í morgun þar sem tilkynnt var um eldsvoða á skemmtistaðnum Players í Kópavogi. 23.12.2009 10:24
Gjafakort í Borgarleikhúsið slá í gegn Aldrei hafa fleiri gjafakort í Borgarleikhúsið selst en nú í desember og því ljóst að um vinsæla jólagjöf er að ræða. Fimmtán þúsund kort hafa selst í þessum mánuði en fyrra met var frá því í fyrra. „Þá hafa aldrei selst fleiri kort á einum degi en í gær en þá seldust nær 2500 gjafakort í leikhúsið," segir í tilkynningu frá leikhúsinu. 23.12.2009 10:14
Aflaverðmæti eykst um 15 milljarða Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 85 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2009 samanborið við rúma 70 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 21 prósent á milli ára. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar en aflaverðmæti í septembermánuði var 9,5 milljarðar miðað við sjö milljarða í fyrra. 23.12.2009 09:39
Sjálfstæðiskonur safna þremur milljónum Sjálfstæðiskonur, sem stóðu að söfnuninni, Tökum höndum saman, söfnuðu alls tæplega 3 milljónir. Átakinu er ætlað að styðja barnafjölskyldur í vanda. 23.12.2009 09:19
Telegraph fjallar um Essasa Sue Malasísk kona hefur heldur betur hlotið athygli út á froskaauglýsingar Vodafone. 23.12.2009 08:16
Helstu þjóðvegir greiðfærir en hált víða Allir helstu þjóðvegir eru greiðfærir, en víða er hálka á Vestfjörðum og á Norður- og Norðausturlandi. Þar gengur líka á með éljum og er þar hálka víðast hvar. 23.12.2009 08:14
Regnmaðurinn látinn Kim Peek, fyrirmyndin að regnmanninum sem Dustin Hoffman túlkaði í samnefndri kvikmynd, er látinn, 58 ára að aldri. 23.12.2009 08:10
Mannskætt umferðarslys í Cornwall Tveir létust og 47 eru slasaðir eftir að langferðabíll, fullur af fólki, valt á ísi lögðum vegi í Cornwall í Bretlandi í gær og endaði á hvolfi á miðjum veginum. 23.12.2009 08:05
Vegaaðstoð Bretlands man varla annað eins Vegaaðstoð félags bifreiðaeigenda í Bretlandi hefur ekki átt eins annríkt og í gær, í heilan áratug. Útkallssveitir félagsins sinntu 22.000 útköllum vegna bilaðra bíla eða fólks sem fest hafði bíla sína í snjósköflum og neyddist aðstoðarliðið til að velja og hafna eftir alvarleika hvers tilfellis. 23.12.2009 08:03
Fór út af flugbraut og brotnaði í tvennt Betur fór en á horfðist þegar flugvél frá American Airlines, með 145 farþega innanborðs, hlekktist á í lendingu á flugvellinum í Kingston á Jamaica í gærkvöldi, fór út af flugbrautinni og brotnaði í tvennt. 23.12.2009 07:37
Til stóð að myrða Clinton 1996 Minnstu munaði að Bill Clinton, þáverandi Bandaríkjaforseti, hefði orðið fórnarlamb hryðjuverkaárásar árið 1996 þegar hann var í heimsókn á Filippseyjum. 23.12.2009 07:24
Segja lánaaðgerðir sjónhverfingu Hagsmunasamtök heimilanna kalla áfram eftir tafarlausum og frekari aðgerðum stjórnvalda og fjármálafyrirtækja, til að koma til móts við skuldsett heimili. 23.12.2009 07:21
Eldur í vinnuvél í Kópavogi Eldur kviknaði í stórri vinnuvél sem stóð við byggingu í Ögurhvarfi í Kópavogi í nótt. Logaði glatt þegar slökkviliðið kom á vettvang, en skamma stund tók að slökkva eldinn. 23.12.2009 07:18
Vatnsleki í iðnaðarhúsnæði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að stóru iðnaðarhúsi við Klettagarða í nótt vegna vatnsleka. 23.12.2009 07:10
Rólegt hjá lögreglu í borginni Þrátt fyrir mikla umferð á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi var óvenju rólegt hjá lögreglu og ekkert bar á ölvun, eins og stundum hefur verið. 23.12.2009 07:08
Harður árekstur á Akureyri Einn var fluttur á sjúkrahús eftir harðan árekstur tveggja bíla á Akureyri í gærkvöldi. Hann mun ekki vera alvarlega meiddur og aðrir sluppu ómeiddir. 23.12.2009 07:06
Milljóna biðlaun frá fjárvana bæjarfélagi „Þetta er alveg borðleggjandi,“ segir Sigurður Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi, sem krefst þess að fá greidd átta mánaða biðlaun. Sigurður tók við sem bæjarstjóri í júní 2006 eftir kosningar þá um vorið en lét af störfum í september síðastliðinn eftir meirihlutaskipti í bæjarstjórn. 23.12.2009 06:00
Ákvörðun tekin um Icesave fyrir áramót Frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave var tekið út úr fjárlaganefnd í gær. Guðbjartur Hannesson, formaður nefndarinnar, segir stefnt að því að ljúka málinu á milli jóla og nýárs. Hann segir nýtt lögfræðiálit stofunnar Mishcon de Reya ekki breyta neinu um skoðun sína á málinu. 23.12.2009 06:00
Verð geisladiska hefur lítið hækkað í 20 ár Útsöluverð íslenskra geisladiska hefur lítið hækkað síðan árið 1991, en raunverð hefur lækkað, miðað við almenna verðþróun. Árið 1991 kostuðu þeir um tvö þúsund krónur stykkið en í ár í kringum 2.500. Hefðu íslenskir diskar fylgt vísitölu neysluverðs myndu þeir kosta hátt í 4.600 krónur í ár. 23.12.2009 05:30
Biðlaun fara yfir sex milljónir Sigurður Magnússon, sem hætti sem bæjarstjóri á Álftanesi í september, á að fá átta mánaða biðlaun samkvæmt ráðningarsamningi frá 2006. 23.12.2009 05:00
Beðið eftir sprengingu Eldfjallið Mayon á norðanverðum Filippseyjum er eins og tifandi sprengja þessa dagana. „Hættuleg sprenging gæti orðið í dag eða næstu dögum," segir Renato Solidum eldfjallafræðingur. 23.12.2009 04:45
Segja samkomulag vera svikið Minnihluti fjárlaganefndar lítur svo á að samkomulag Alþingis um að skoða sextán atriði varðandi Icesave hafi verið svikið. Þetta segir Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni. Hann segir álit IFS hafa vantað og önnur álit, sem beðið var um, hafi ekkert verið rædd efnislega. Höskuldur segir álit Mishcon de Reya og Ashurst samhljóma um að nýir fyrirvarar í frumvarpinu séu marklausir. Þar megi nefna sérstaklega fyrirvara um að viðurkenna ekki greiðsluskyldu. 23.12.2009 04:30
Skuldir aukast um 13 milljarða Verðtryggðar skuldir landsmanna munu hækka um þrettán milljarða króna vegna skattahækkana sem samþykktar voru á Alþingi á mánudag. 23.12.2009 04:30
Deilt um hvar Jón Ólafsson átti heima Athafnamaðurinn Jón Ólafsson hefur stefnt Skúla Eggerti Þórðarsyni ríkisskattstjóra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra fyrir dóm fyrir hönd íslenska ríkisins. 23.12.2009 04:00
Þingmannareglur að lögum Áformað er að setja reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum þingmanna inn í þingsköp Alþingis á næsta ári. 23.12.2009 03:45
Flugráðsveislan kostaði 207 þúsund krónur Jólakvöldverður flugráðs í Perlunni á fimmtudag í síðustu viku kostaði ríkið 207 þúsund krónur að sögn Gunnlaugs Stefánssonar, formanns ráðsins. 23.12.2009 03:00
Gagnrýna að ríkið taki lán hjá stóriðju Ein furðulegasta lagasetning seinni tíma, var einkunn sem Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gaf frumvarpi ríkisstjórnarinnar um skattgreiðslur stóriðjufyrirtækja á árunum 2010-2012, sem varð að lögum frá Alþingi í gær. 23.12.2009 03:00
Of seint er að hrófla við landsdómi Þurfi að kalla saman landsdóm til að fjalla um hugsanleg brot ráðherra, í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, verður það gert samkvæmt núgildandi reglum um skipan dómsins. 23.12.2009 02:30
Hermaður fékk ekki bætur Íslenska ríkið hefur verið sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af bótakröfu bandarísks hermanns sem var við störf hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. 23.12.2009 02:00
Icesave á dagskrá á mánudag Þing kemur saman milli jóla og nýárs til að taka Icesave-málið til þriðju umræðu. Verður þingfundur á mánudag og hugsanlega dagana tvo á eftir. Sjaldgæft er að þingfundir séu milli hátíða. Hefur það raunar aðeins gerst þrívegis á lýðveldistímanum, árin 1958, 1987 og 1994. 23.12.2009 01:30
Segir skjalið í Times falsað Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti segist enga ástæðu hafa til að taka mark á lokafresti, sem Barack Obama Bandaríkjaforseti setti Írönum til að samþykkja samning um skipti á auðguðu úrani og kjarnorkueldsneyti. 23.12.2009 01:00
Hver læknir á Landspítala kostar 1,1 milljón á mánuði Launakostnaður ríkisins vegna hvers læknis í fullu starfi á Landspítalanum var að meðaltali rúmlega 1,1 milljón á mánuði á síðasta ári. Kostnaður Landspítalans við hvert stöðugildi hjúkrunarfræðings var 641.000 krónur á mánuði. 23.12.2009 01:00
Krefst skilnings af Kínverjum Francois Fillon, forsætisráðherra Frakklands, krefst þess að kínversk stjórnvöld sýni vestrænum lýðræðishefðum umburðarlyndi, en tók jafnframt fram að Frakkar vildu alls ekki móðga Kínverja. 23.12.2009 00:45
Rauð jól hjá flestum Allt útlit er fyrir að jólin verði rauð hjá meirihluta landsmanna. Á meðan snjór og frosthörkur hafa leikið margan Bretann á leið í jólafrí grátt hefur ekki farið eins mikið fyrir snjónum hér á landi, að minnsta kosti sunnan heiða. Þúsundir Breta hafa orðið tepptir á vegum úti vegna veðurs og ítrekað hafa orðið tafir á flugsamgöngum þar í landi. 22.12.2009 19:11
Áslaug María vill fjórða sætið Áslaug María Friðriksdóttir, formaður Hvatar og varaborgarfulltrúi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sætið á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík í prófkjörinu 23. janúar vegna komandi borgarstjórnarkosninga. 22.12.2009 18:33
Enginn bilbugur á Jóhönnu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætlar sér að sitja sem forsætisráðherra að minnsta kosti út kjörtímabilið, en sögusagnir hafa verið á kreiki um að hún ætlaði að segja af sér á ríkisráðsfundi á gamlársdag. Það fylgdi sögunni að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra myndi taka við af Jóhönnu. 22.12.2009 17:03
Hlutu félagshyggjuverðlaun UJ Verkefnið Skólastoð og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hlutu félagshyggjuverðlaun Ungra jafnaðarmanna í dag. 22.12.2009 16:51