Krefst skilnings af Kínverjum 23. desember 2009 00:45 Sarkozy hitti Dalai lama sem hleypti illu blóði í Kínverja.
Francois Fillon, forsætisráðherra Frakklands, krefst þess að kínversk stjórnvöld sýni vestrænum lýðræðishefðum umburðarlyndi, en tók jafnframt fram að Frakkar vildu alls ekki móðga Kínverja. „Kína er stórt land sem þarf að leysa sín eigin vandamál upp á eigin spýtur," sagði Fillon, sem var í heimsókn í Peking. „Á hinn bóginn er Frakkland gamalt lýðræðisríki. Við erum með málfrelsi og allir geta sagt það sem þeir vilja. Þetta er okkar hefð og Kínverjar ættu að skilja það." Kínversk stjórnvöld tóku það óstinnt upp að útlægir Tíbetar og aðrir mótmælendur trufluðu hlaup íþróttamanns með Ólympíukyndilinn í París á síðasta ári. Ekki hresstust þau þegar Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti tók upp á því að hitta Dalai Lama, leiðtoga Tíbetbúa, og eiga við hann gott spjall. Samband ríkjanna hefur þó skánað á ný eftir að Sarkozy hitti Hu Jintao, forseta Kína, á leiðtogafundum í apríl og september á þessu ári. Tilgangur ferðar Fillons til Kína er að styrkja tengslin enn frekar, og á blaðamannafundi í Peking sagðist hann telja að sér hefði tekist það.- gb
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira