Aflaverðmæti eykst um 15 milljarða 23. desember 2009 09:39
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 85 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2009 samanborið við rúma 70 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 21 prósent á milli ára. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar en aflaverðmæti í septembermánuði var 9,5 milljarðar miðað við sjö milljarða í fyrra. Þá segir á heimasíðu Hagstofunnar að aflaverðmæti botnfisks hafi verið orðið 59 milljarðar króna á árinu í lok tímabilsins sem er aukning um 19,1 prósent frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 50 milljörðum. „Verðmæti þorskafla var um 26,5 milljarðar og jókst um 12,5% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 12 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 7 milljörðum, sem er 38,7% aukning frá fyrstu níu mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 8,3% milli ára í 4,8 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 35,8% miðað við fyrstu níu mánuði ársins 2008." Í flatfiski eykst verðmætið um 75 prósent frá fyrra ári og nam það 8 milljörðum króna í janúar til september 2009. „Verðmæti uppsjávarafla jókst um 12,4% milli ára og nam rúmum 17 milljörðum króna frá janúar til september 2009. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 8,8 milljörðum samanborið við 6 milljarða í fyrra og makríl að verðmæti 5,2 milljarðar samanborið við 4,5 milljarða 2008." Að lokum er þess getið að verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam um 32,6 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins og jókst um 18,2 prósent frá fyrra ári. „Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 13,3% milli ára og nam tæpum 11 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 29 milljörðum, samanborið við rúma 22 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 10,5 milljörðum, sem er 23,5% aukning miðað við tímabilið janúar til september 2008."
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira