Innlent

Segja samkomulag vera svikið

höskuldur þórhallsson
höskuldur þórhallsson

Minnihluti fjárlaganefndar lítur svo á að samkomulag Alþingis um að skoða sextán atriði varðandi Icesave hafi verið svikið. Þetta segir Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni. Hann segir álit IFS hafa vantað og önnur álit, sem beðið var um, hafi ekkert verið rædd efnislega.

Höskuldur segir álit Mishcon de Reya og Ashurst samhljóma um að nýir fyrirvarar í frumvarpinu séu marklausir. Þar megi nefna sérstaklega fyrirvara um að viðurkenna ekki greiðsluskyldu.

„Þá bendir Mishcon de Reya á að varasamt sé hve óskýrir samningarnir eru og bendir á að allur óskýrleiki verði túlkaður Íslendingum í óhag,“ segir Höskuldur.

„Þetta álit dregur fram hversu illa hefur verið staðið að allri samningagerð af Íslands hálfu og undirstrikar það, sem verið hefur okkar málstaður, að þessir samningar eru bara uppgjör á því sem Bretar og Hollendingar líta á sem viðskiptaskuld við sig. Þetta er algjörlega fráleit pólitísk niðurstaða í málinu.

Þessir samningar og þessi eftirgjöf ríkisstjórnarinnar frá því þingið afgreiddi málið í sumar er bara til að kóróna þeirra ömurlegu frammistöðu í málinu,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um lögfræðiálit bresku stofunnar Mishcon de Reya.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×