Erlent

Vegaaðstoð Bretlands man varla annað eins

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Mikil ófærð hefur verið í Bretlandi og víðar um Evrópu undanfarna daga.
Mikil ófærð hefur verið í Bretlandi og víðar um Evrópu undanfarna daga. MYND/PA/Getty Images

Vegaaðstoð félags bifreiðaeigenda í Bretlandi hefur ekki átt eins annríkt og í gær, í heilan áratug. Útkallssveitir félagsins sinntu 22.000 útköllum vegna bilaðra bíla eða fólks sem fest hafði bíla sína í snjósköflum og neyddist aðstoðarliðið til að velja og hafna eftir alvarleika hvers tilfellis. Rúmlega 3.000 manns, sem vegaaðstoðin hafði ekki tök á að koma til bjargar, höfðust við í bílum sínum klukkustundum saman, sumir alla aðfaranótt gærdagsins, sem talsmaður vegaaðstoðarinnar sagði hafa verið annasömustu nótt hennar í aldarfjórðung.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×