Fleiri fréttir

Löggan vill betri umgengni í miðborginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að ganga betur um miðborg Reykjavíkur því sérhvern morgun um helgar sópi hópar hreingerningarmanna upp drasl eftir fullorðið fólk sem átt hafi leið um miðborgina.

Björgunarsveitarfólk gætir flugelda að nóttu til

Mikillar gæslu er þörf við sölustaði flugeldamarkaði björgunarsveita að nóttu til þar sem þess hefur orðið vart að óprúttnir aðilar hafa hugsað sér að ná í flugelda án þess að greiða fyrir þá.

Völvan spáir nýjum formönnum

Forráðamenn gömlu bankanna í handjárnum og Össur Skarphéðinsson tekur við sem formaður Samfylkingarinnar. Þetta er á meðal þess sem völva DV spáir að muni eiga sér stað á komandi ári.

Fæðingarmet sett á Landspítalanum

Fæðingarmet hefur verið sett á Landspítalanum. Þar hafði í gær verið tekið á móti 3.785 börnum á árinu. Fæðingarmet var síðast sett á spítalanum fyrir ári en þá fæddust 3.749 börn á spítalanum.

Rúv þarf að skera niður um 400 milljónir

Segja þarf upp 30 manns hjá RÚV ef niðurskurðarhnífnum verður eingöngu beint að launakostnaði. Ríkisútvarpið þarf að skera niður um rúmar 400 milljónir á komandi ári.

Þrír Litháanna áfram í varðhaldi

Þrír Litháanna sem ákærðir hafi verið mansalsmálinu svokallaða hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald. Ekki liggur fyrir hvort tveir aðrir verði áfram í varðhaldi en þeir verða leiddir fyrir dómara síðar í dag. Mikil öryggisgæsla er í héraðsdómi.

Tendruðu blys á Austurvelli

Um hundrað manns komu saman á Austurvelli í hádeginu í dag og kveiktu á rauðum Bengalblysum. Að uppákomunni stóðu nokkrir hópar, þar á meðal InDefense hópurinn og var hugsunin að sýna fram á andstöðu almennings við að Alþingi samþykki ríkisábyrgð á Icesave skuldbindingum.

Skautasvell á Tjörninni

Á Reykjavíkurtjörn hefur verið útbúið skautasvell og var það gert eftir að óskir bárust frá íbúum, enda viðrar nú vel og útlit er fyrir kalt og bjart veður næstu daga, að fram kemur í tilkynningu frá borginni. Nú strax eftir hádegið verður svæðið stækkað, en farið verður yfir með handhægum snjóblásara.

Löggan í Eyjum hljóp uppi fíkniefnasala

Lögreglan í Vestmannaeyjum hljóp í gærkvöldi uppi fíkniefnasala á þrítugsaldri sem kom með Herjólfi til Eyja með kókaín að andvirði tæplega einnar milljónar.

Pólitísk flétta stjórnarandstöðunnar

„Ég lít á þetta sem pólitíska fléttu að hálfu stjórnarandstæðinga sem hafa greinilega góða tengingu inn í þessa lögfræðistofu og eru að reyna að róta upp í málinu og helst fella og knésetja ríkisstjórnina,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, um bréf bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya sem barst í gær.

Þingfundi frestað til hálftvö

Fundi Alþingis sem átti að hefst klukkan hálfellefu hefur ítrekað verið frestað, nú síðast til klukkan hálftvö. Óvissa er um framhald Icesave málsins eftir að nýjar upplýsingar bárust frá bresku lögmannsstofu sem stjórnarandstæðingar segja benda til þess að tilteknum upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þingmönnum. Þessu hafa bæði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, vísað á bug.

Fólk hvatt til að mæta með rauð blys á Austurvöll

Austurvöllur verður lýstur upp með nokkur hundruð rauðum Bengal-blysum klukkan tólf í dag. Að uppákomunni standa nokkrir hópar, þar á meðal InDefense hópurinn og er hugsunin að sýna fram á andstöðu almennings við að Alþingi samþykki ríkisábyrgð á Icesave skuldbindingum.

Þingfundi frestað

Fundi Alþingis sem átti að hefst klukkan hálf ellefu var frestað um hálftíma. Óvissa er um framhald Icesave málsins eftir að nýjar upplýsingar bárust frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya sem stjórnarandstæðingar segja benda til þess að tilteknum upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þingmönnum. Þessu vísa stjórnarliðar á bug.

Íslendingur og fimm Litháar ákærðir í mansalsmálinu

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur sex karlmönnum, fimm Litháum og einum Íslendingi, fyrir mansal gagnvart 19 ára stúlku. Óskað hefur verið eftir áframhaldandi gæsluvarðahaldi Lithánna sem rennur út í dag.

Svavar neitaði að mæta á fund fjárlaganefndar

Svavar Gestsson, sem fór fyrir samninganefndinni í Icesave málinu svokallaða neitaði að mæta á fund fjárlaganefndar í morgun samkvæmt heimildum fréttastofu. Guðbjartur Hannesson formaður nefndarinnar kallaði hann á fund í ljósi nýrra upplýsinga sem bárust frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya sem stjórnarandstæðingar segja benda til þess að tilteknum upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þingmönnum.

Evrópusamtökin ósátt með Rúv

Evrópusamtökin lýsa yfir áhyggjum vegna þeirrar ákvörðunar Ríkisútvarpsins að hafa ekki fréttaritara staðsettan í Brussel í komandi aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins.

Formenn funda um Icesave

Formenn flokkanna munu funda um stöðuna í Icesave málinu klukkan tíu. Fundur fjárlaganefndar sem hófst klukkan rúmlega átta stendur enn yfir. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að staðan sem sé komin upp sé afar alvarleg.

Frábært veður og færi á Siglufirði

Skíðasvæðið á Siglufirði verður opið í dag frá kl 13-18. Veðrið er mjög gott V gola, frost 6 stig og heiðskírt, brakandi nýr snjór og allar brekkur klárar.

Málningarskvettumenn ekki hættir

„Við munum ekki sætta okkur við að horfa upp á nokkurra mánaða eða jafnvel skilorðsbundna dóma yfir mönnum sem skulda þjóðinni fleiri hundruð milljarða,“ segir talsmaður Icegroup holding-hópsins sem svo kallar sig og hefur undanfarið staðið fyrir því að ata eigur íslenskra auðmanna rauðri málningu, nú síðast hús Steingríms Wernerssonar aðfaranótt 11. desember.

Kraftaverk í Colorado

Það þykir ganga kraftaverki næst að takast skyldi að bjarga lífi móður og sveinbarns, sem hún var að fæða, á aðfangadagskvöld í Colorado Springs í Colorado, eftir að móðirin fór í öndunar- og hjartastopp í miðri fæðingu.

Ölvaður ók á kyrrstæðan bíl

Ölvaður ökumaður komst leiðar sinnar í nótt og alveg að heimili sínu í Hafnarfirði. Þar hugðist hann leggja bílnum, en tókst ekki betur en svo að hann ók á kyrrstæðan bíl, þegar hann reyndi að leggja bíl sínum í stæði.

Kveikt í ruslagámi í gærkvöldi

Minnstu munaði að illa færi þegar kveikt var í ruslagámi við leikskóla við Ægisíðu í Reykjavík í gærkvöldi. Þegar slökkvilið kom á vettvang logaði glatt í gámnum og var eldurinn við það að teygja sig í húsið, en slökkviliðið afstýrði því og slökkti eldinn.

Neyðarlínan er fyrir fólk í neyð, punktur

Neyðarsímverðir bresku neyðarlínunnar og lögregla þar í landi hafa fengið meira en nóg af fólki sem hringir í neyðarlínuna vegna mála sem teljast í besta falli hlægileg.

Fundu 230 kannabisplöntur og landa

Fíkniefnalögreglan stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í fyrrakvöld og voru nokkrir handteknir. Við húsleit í Breiðholti fundust 200 plöntur í ræktun og þar fannst einnig landi og bruggtæki.

Ruddust inn á heimili vopnaðir hríðskotariffli

Tveir grímuklæddir menn, vopnaðir hríðskotariffli, réðust með valdi inn á heimili í bænum Hillerød á Norður-Sjálandi. Hundur hjónanna, sem búa á heimilinu, fór að gelta út í garði og þegar maðurinn fór út til að sjá hverju sætti var hann sparkaður niður.

Bretland snævi þakið um áramótin

Bretar eru ekki lausir við fannfergi og ófærð. Mikil snjókoma er nú víða um landið og hefur breska veðurstofan gefið út aðvaranir fyrir marga landshluta.

Fimmtungur Breta heima í fríinu

Breskir ferðamálafrömuðir sjá fram á að fimmti hver Breti verji frídögum ársins 2010 heima hjá sér en það eru tvöfalt fleiri en sátu heima á þessu ári.

Kínverjar segja fordæmingu út í hött

Kínversk stjórnvöld telja það út í hött að Bretar fordæmi aftöku Akmals Shaikh sem fram fór í fyrrinótt. Glæpur mannsins hafi verið alvarlegur enda sé misnotkun ópíums og tengdra lyfja samofin sögu Kínverja og hafi valdið þeim miklum búsifjum á fyrri hluta 20. aldar.

Segir eftirlitsmenn hafa gert mistök

Mistök eftirlitsmanna og öryggiskerfi sem brást eru orsakir þess að Nígeríumaðurinn Umar Farouk Abdulmutallab komst um borð í farþegaþotu með sprengju sem hæglega hefði getað sprengt gat á skrokk flugvélarinnar hefði hún sprungið.

Þriðju Icesave-umræðu frestað á miðnætti

Þriðju umræðu um Icesave-frumvarpið var frestað rétt fyrir miðnætti og var fjárlaganefnd boðuð á fund klukkan hálfeitt í nótt. Þá voru níu þingmenn enn á mælendaskrá.

Ná í trén fyrir þúsund krónur

Borgarbúar í Reykjavík munu ekki geta losað sig við jólatré út á næsta götuhorn eftir hátíðarnar. Reykjavíkurborg ætlar ekki að hirða trén eins og verið hefur um árabil.

Sendinefnd kannar dráp á ungmennum

Grunur leikur á að hermenn hafi drepið tíu óbreytta borgara, þar af átta námsmenn, í austurhluta Afganistans á sunnudag. Fulltrúi NATO segir fyrstu fregnir herma að níu uppreisnarmenn hafi verið drepnir. Stjórnarnefnd rannsakar málið.

Telja banka beita sjónhverfingum

Allar leiðir fjármálastofnana til greiðslujöfnunar húsnæðislána og skuldaaðlögunar eru því marki brenndar að þær auka heildargreiðslubyrði heimilanna, fyrir utan leið Arion banka. Þetta er furðulegt í ljósi þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur upplýst að töluvert svigrúm sé fyrir verulega lækkun á greiðslu- og skuldabyrði heimilanna.

Þorskeldi fari í umhverfismat

Skipulagsstofnun telur að fyrirhugað 900 tonna þorskeldi í Skutulsfirði við Ísafjarðarbæ kunni að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli háð mati á umhverfis­áhrifum.

Landsmótið kannski í borginni

„Markmiðið er að við fáum að njóta hestsins við sem besta umgjörð,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga, um þá samþykkt stjórnar sambandsins að ganga til viðræðna við hestamannafélagið Fák um að halda Landsmót 2012 á svæði félagsins í Víðidal.

Verne gæti þurft sex sinnum meiri orku

Orkuþörf fyrirhugaðs gagnavers Verne Holdings gæti orðið meiri en 140 MW, miðað við athugasemdir við fjárfestingarsamning ríkisins og fjögurra fyrirtækja, sem að framkvæmdinni standa.

Níu þingmenn eiga að vinna úr rannsóknarskýrslunni

Alþingi kýs í dag nefnd níu þingmanna til að gera tillögur um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þessari nefnd er meðal annars ætlað að taka afstöðu til þess hvort tilefni sé til að höfða mál gegn ráðherrum fyrir Landsdómi fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð í aðdraganda bankahrunsins.

Frávísun í máli Viggós hafnað

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í gærmorgun frávísunarkröfu í meiðyrðamáli Viggós Sigurðssonar handknattleiksþjálfara gegn útgáfufélaginu Birtíngi, ritstjórum og blaðamanni DV og hjónum sem voru viðmælendur blaðsins.

Lögregla svipti barn frelsinu

Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða pilti 70 þúsund krónur í miskabætur vegna þess að lögreglan í Borgarnesi lét hann fara í þvagprufu á lögreglustöð þrátt fyrir að hann hefði þegar mælst allsgáður í öndunarprófi.

Menn ársins í viðskiptalífinu

Menn ársins í viðskiptalífinu er feðgarnir í Fjarðarkaupum, samkvæmt vali tímaritsins Frjálsrar verslunar. Mennirnir eru Sigurbergur Sveinsson og synir hans Sveinn og Gísli Þór.

Kókaínið í Madrid átti að koma hingað

Íslendingarnir sem handteknir voru á flugvellinum í Madríd voru með í kringum fimmtán kíló af kókaíni. Rökstuddur grunur leikur á að smygla hafi átt kókaíninu til Íslands. Maðurinn og konan eru talin vera burðardýr.

Formaður KSÍ kvartaði yfir fjögurra stjörnu hóteli

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sendi kvörtun til enska knattspyrnusambandsins þegar hann var eftirlitsmaður á vegum Knattspyrnusambands Evrópu á leik Arsenal og AZ Alkmaar í meistaradeildinni í nóvember.

Sjá næstu 50 fréttir