Innlent

Skautasvell á Tjörninni

Reykjavíkurtjörn fyrr í vetur. Nú er traustur ís á tjörninni á þeim stað þar sem útbúið hefur verið skautasvell.
Reykjavíkurtjörn fyrr í vetur. Nú er traustur ís á tjörninni á þeim stað þar sem útbúið hefur verið skautasvell.
Á Reykjavíkurtjörn hefur verið útbúið skautasvell og var það gert eftir að óskir bárust frá íbúum, enda viðrar nú vel og útlit er fyrir kalt og bjart veður næstu daga, að fram kemur í tilkynningu frá borginni. Nú strax eftir hádegið verður svæðið stækkað, en farið verður yfir með handhægum snjóblásara.

Ísinn er traustur á þeim stað sem hreinsað hefur verið. Um miðjan dag í gær var frosið 10 - 20 sentímetra niður, en Þorgrímur Hallgrímsson, rekstrarstjóri á hverfastöð Framkvæmda- og eignasviðs boraði til að kanna þykktina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×