Verne gæti þurft sex sinnum meiri orku 30. desember 2009 06:00 Skemmur verða að gagnaveri Verne Holdings hefur komið sér fyrir á gamla hersvæðinu á Reykjanesi. Mynd/Víkurfréttir
Orkuþörf fyrirhugaðs gagnavers Verne Holdings gæti orðið meiri en 140 MW, miðað við athugasemdir við fjárfestingarsamning ríkisins og fjögurra fyrirtækja, sem að framkvæmdinni standa. Gagnaverið hefur verið til umræðu síðan á síðustu mánuðum ársins 2007. Þá var það kynnt sem 25 MW ver, sem gæti stækkað í 50 MW. Síðan hefur af og til verið rætt um 25 til 80 MW, en oftast um lægri töluna, 25 megavött. Heimildarmaður blaðsins, sem kom að gerð fjárfestingarsamningsins, segir 140 megavatta orkuþörf þó í samræmi við fyrstu áætlanir. 25 megavöttin hafi verið nefnd sem orkuþörf fyrsta áfanga. En áfangarnir verði hugsanlega fjórir, gangi vel. Óvíst sé nákvæmlega hversu mikla orku þurfi fyrir hina áfangana. Það fari eftir pöntunum viðskiptavina og tækniframförum. Verne hefur ekki tryggt sér orku umfram þessi títtnefndu 25 megavött. Þau skuldbatt Landsvirkjun sig til að selja fyrirtækinu með þeim fyrirvara að virkjað yrði í Þjórsá, eins og blaðið greindi frá í mars 2008. Það var skýrt með því að Landsvirkjun ætti ekki aðra virkjunarkosti en í Þjórsá. Þrátt fyrir þetta segir heimildarmaður blaðsins að Verne hafi ekki áhyggjur af því að erfitt reynist að ná í meiri orku, jafnvel þótt álver í Helguvík verði að veruleika. Fyrirtækið telji sig vera framarlega í röðinni að orku, og slík stækkun gagnaversins verði ekki fyrr en árið 2016. Spurður um verðið, segir hann að Landsvirkjun hafi haft frumkvæði að því að trúnaður ríki um það. Ísland sé ódýrari kostur fyrir slíka stóriðju en nágrannalöndin, en ekki ódýrasti kostur í heimi. Til að mynda sé hægt að fá betra orkuverð í norðvesturhluta Bandaríkjanna. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sjá meira