Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krefjast þess að lög um afnám sjómannaafsláttar verði afturkölluð Stjórnvöld eru átalin fyrir að afnema sjómannaafsláttinn í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Sjómannadeildar AFLs Starfsgreinafélags í gærkvöldi. Þar segir að fundurinn átelji stjórnvöld fyrir lagabreytingar á skattaumhverfi sjómanna án þess að tekið sé tillit til sögu sjómannaafsláttarins. 29.12.2009 12:42
Dópparið í Madríd: Var með 10 til 20 kíló af kókaíni Parið sem situr í gæsluvarðhaldi á Spáni eftir að þau voru handtekinn með kókaín á flugvellinum í Madríd hefur komið við sögu fíkniefnalögreglunnar hér á landi. Hún fylgist með málinu en rannsóknin er alfarið á forræði kollega þeirra á Spáni. Parið var með eitthvað á bilinu 10 til 20 kíló af kókaíni í fórum sínum þegar það var handtekið á Baraja flugvelli fyrir jól. Efnin voru falin í ferðatöskum. Fréttastofa hefur þetta eftir heimildum innan lögreglunnar. 29.12.2009 12:10
Pútín vill vopnakerfi sem svar við eldflaugakerfi Bandaríkjanna Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands og fyrrum forseti, segir að Rússar þurfi að þróa sérstakt vopnakerfi sem andsvar við eldflaugakerfi Bandaríkjanna til þess að halda valdajafnvægi við Bandaríkin. Pútín segir að að öðrum kosti séu Bandaríkjamenn í fullkomnu skjóli og geti í raun gert það sem þeim dettur í hug. 29.12.2009 12:08
Verkefnaskortur blasir við fjölveiðiskipunum Verkefnaskortur blasir við fjölveiðiskipafotanum á næsta ári vegna skertra kvóta úr Norsk-íslenska síldarstofninum, kolmunnastofninum, loðnuleysis og sýkingingar í íslenska síldarstofninum. 29.12.2009 12:02
Myndband um meðhöndlun flugelda Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur gefið út myndband um rétta meðhöndlun flugelda. Félagið hvetur almenning til að skoða myndbandið með það að markmiði að koma í veg fyrir flugeldaslys en þau verða flest vegna rangrar meðhöndlunar og fikts. Mjög mikilvægt er að almenningur kynni sér allar leiðbeiningar sem fylgja flugeldavörum og noti hanska og flugeldagleraugu þegar skotið er upp, að fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 29.12.2009 11:44
Lög samþykkt um þingmannanefnd Ekki náðist samstaða á Alþingi um frumvarp forsætisnefndar um rannsókn á aðdraganda og orsökum bankahrunsins. Þingmenn Hreyfingarinnar sátu hjá í atkvæðagreiðslu þegar frumvarpið var samþykkt í morgun. 29.12.2009 11:34
Hallgrímskirkju lokað Hallgrímskirkju verður lokað í sjö til átta vikur í byrjun næsta árs vegna framkvæmda. Viðgerð kirkjuturnsins er lokið og hafa vinnupallar verið teknir niður. Síðasti hluti framkvæmdanna er þó eftir. Settar verða nýjar hurðir í aðaldyr kirkjunnar. Þær eru miklar að burðum og þarf að undirbúa dyraumbúnað allan mjög rækilega fyrir hinar nýju hurðir, að fram kemur í tilkynningu frá kirkjunni. Jafnframt þessari framkvæmd verður kirkjan hreinsuð að innan. 29.12.2009 11:13
„Hreyfingin gefur þingmönnum puttann" Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi málflutning þingmanna Hreyfingarinnar í umræðum á Alþingi í dag um þingnefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hún sagði Hreyfinguna gefa Alþingi puttann. 29.12.2009 10:42
Ólína fær ekkert að vita um skuldameðferð sjávarútvegsfyrirtækja Ekkert verður gefið upp um skuldameðferð íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í íslensku bönkunum af hálfu efnahags- og viðskiptaráðherra. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Ólínu Þorvarðardóttur þingkonu Samfylkingarinnar. 29.12.2009 10:34
Hálka á Reykjanesbraut Hálka er á Reykjanesbraut. Á Hellisheiði og í Þrengslum eru hálkublettir, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á Vesturlandi er hálka á norðanverðu Snæfellsnesi. Á Vatnaleið, Fróðárheiði og Holtavörðuheiði er hálka og skafrenningur en auk þess eru víða hálkublettir. 29.12.2009 10:05
Opið í Hlíðarfjalli og á Siglufirði Opið verður í Hlíðarfjalli í dag frá klukkan 11 til 19. Í gær var einhver fjölsóttasti dagur milli jóla og áramóta frá upphafi. Tæplega 1200 manns mættu á skíði og bretti og skemmtu sér vel í stórkostlegu færi, að fram kemur í tilkynningu. Búist er við svipuðum fjölda í dag. 29.12.2009 09:59
Þingnefndin er prófsteinn á styrk Alþingis Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að vinnu þingmannanefndar sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sé prófsteinn á styrk og trúverðugleika þingsins. 29.12.2009 09:51
Icesave hentar ekki í þjóðaratkvæði Sigurður Líndal, lagaprófessor, segir að Icesave frumvarpið henti ekki til þjóðaratkvæðagreiðslu. Slíkt hljóti að valda óvissu og truflunum í samskiptum ríkja. Þetta kemur fram í grein sem Sigurður skrifar í Fréttablaðið í dag. 29.12.2009 09:14
Prófa niðurgangslyf á sólarströndum Bandarískt lyfjafyrirtæki hyggst bjóða 1.800 sjálfboðaliðum á sólarströnd til að prófa nýtt lyf við niðurgangi. 29.12.2009 07:59
Konunglegt klúður Týndur, skemmdur eða seinn póstur hefur kostað konunglegu bresku póstþjónustuna eina milljón punda á mánuði að meðaltali síðasta árið. 29.12.2009 07:35
Ræningjar ógnuðu fólki með sög Tveir unglingspiltar í Kaupmannahöfn voru handteknir í nótt eftir að þeir gengu um götur borgarinnar og ógnuðu fólki með sög. 29.12.2009 07:34
Birta upptöku af símtali Brooke Mueller Lögreglan í Aspen í Colorado hefur birt upptöku af símtali til neyðarlínunnar þar sem Brooke Mueller, eiginkona leikarans Charlie Sheen, hringir skelfingu lostin og segir mann sinn hóta sér með hníf á lofti. 29.12.2009 07:31
Kínverjar tóku Shaikh af lífi Bretinn Akmal Shaikh, sem kínverskur dómstóll dæmdi til dauða fyrir heróínsmygl, var tekinn af lífi klukkan hálfþrjú í nótt að íslenskum tíma, líklegast með byssuskoti í höfuð eins og tíðkast í kínverskum aftökum. 29.12.2009 07:20
Að segja 2010 hjá BBC Innanhússumræður eru nú um það hjá breska ríkisútvarpinu BBC hvernig orða skuli árið 2010 en gert er ráð fyrir því í reglum að samræmi sé meðal allra þeirra, sem tala í hljóðvarp þess eða sjónvarp, um hvernig vísað er til ártalsins. 29.12.2009 07:17
Al Qaeda stóðu að baki sprengjutilraun Hryðjuverkasamtökin al Qaeda hafa lýst á hendur sér tilraun til þess að sprengja farþegavél Northwest-flugfélagsins í loft upp á jóladag í flugi milli Amsterdam og Detroit en nígerískur farþegi um borð í vélinni reyndi að sprengja sprengju sem hann hafði meðferðis en mistókst. Í yfirlýsingu al Qaeda segir að ætlunin hafi verið að hefna fyrir aðgerðir Bandaríkjahers í Yemen og hafi nýrri gerð af sprengju verið beitt sem hafi ekki sprungið vegna tæknilegra mistaka. Þá segir að Bandaríkjamenn megi búast við fleiri árásum. 29.12.2009 07:14
Heimdellingar gagnrýna stjórnvöld Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, telur að íslensk stjórnvöld hafi því miður ekki ráðist í skipulega fundaherferð meðal evrópskra þingmanna og stjórnmálamanna til þess að kynna málstað Íslands í Icesave-málinu út á við. 29.12.2009 07:08
Hlé á Icesave á elleftu stundu Hlé var gert á þriðju umræðu um Icesave-frumvarpið á Alþingi laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi og voru þá 20 þingmenn enn á mælendaskrá. Formenn þingflokkanna ákváðu á fundi með forseta Alþingis að atkvæðagreiðsla um málið verði á morgun. 29.12.2009 07:05
Sex útköll hjá slökkviliðinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út sex sinnum í gærkvöldi og í nótt, en hvergi varð þó alvarlegt tjón. Í einu tilviki vaknaði fólk við reykskynjara, en þá hafði kvíknað í út frá skreytingu. 29.12.2009 07:01
Hittu Obama-hjónin á Havaí á jóladag Fjölskylda Önnu Soffíu Jóhannsdóttur Ryan hitti Barack Obama Bandaríkjaforseta og Michelle, eiginkonu hans, á jóladag. Eiginmaður Önnu Soffíu er yfirmaður í sjóher Bandaríkjanna og staðsettur á Havaí. 29.12.2009 06:00
Ákvörðun um ákæru tekin á morgun Litháíska konan, sem talin er vera fórnarlamb mansals og kom hingað til lands í október síðastliðnum, hefur verið seld ítrekað í vændi í heimalandi sínu að eigin sögn. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Í upphafi málsins höfðu þrettán manns stöðu sakbornings, en fimm Litháar og einn Íslendingur eru nú grunaðir um aðild að því. Ákvörðun um ákæru verður tekin á miðvikudag. 29.12.2009 06:00
Var minnt á biðlaunaréttinn Margt reyndasta starfsfólk Ríkisútvarpsins var fyrir jól minnt á rétt sinn til tólf mánaða biðlauna, yrði staða þess lögð niður. Þessi biðlaunaréttur, sem á við um fólk sem hefur unnið hjá RÚV síðan fyrir 1997, rennur út um áramót. Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri útvarpsins, segir þetta gert með góðum vilja og í ljósi yfirvofandi niðurskurðar. 29.12.2009 05:15
Fyrningu ráðherrabrota seinkað Möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð fyrnast á fjórum árum en ekki þremur, nái breytingar allsherjarnefndar Alþingis á frumvarpi til breytinga á lögum um rannsókn á falli bankanna og tengdum atburðum fram að ganga. Nefndin afgreiddi breytingartillögu þar um á fundi í gærmorgun. 29.12.2009 05:00
Fleiri viðhaldsverkefni nú en smærri en á síðasta ári Eftir að stjórnvöld réðust í átak á vormánuðum til að auðvelda framkvæmdir og viðhald á íbúðarhúsnæði og skapa þannig störf fyrir iðnaðarmenn hafa Íslendingar ráðist í töluvert fleiri framkvæmdir á heimilum sínum en í fyrra, en samt varið til þeirra mun minni fjármunum. Þetta er meðal þess sem ráða má af tölum frá Ríkisskattstjóra um endurgreiðslur á virðisaukaskatti vegna framkvæmda og viðhalds. 29.12.2009 04:00
Eldisfiskur fimmta hvern dag Allt stefnir í að fimmtungur af þeim rúmlega 5.100 tonnum af hráefni sem unnið er úr í landvinnslu Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal og á Ísafirði á þessu ári komi úr þorskeldi. Fyrirtækið hefur stundað þorskeldi undanfarin ár en þetta hlutfall hefur að sögn Einars Vals Kristjánssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, aldrei verið hærra. 29.12.2009 03:00
Nýr Suðurlandsvegur hannaður án vegriða Hönnun á tvöföldum Suðurlandsvegi og hugmyndir um tvöföldun milli Hveragerðis og Selfoss gera ekki ráð fyrir vegriðum á milli akreina. Miðjugeil verður hins vegar á milli akreina líkt og á vegarkaflanum við Arnarnesbrú á Hafnarfjarðarvegi þar sem þrír menn létust í umferðarslysi stuttu fyrir jól. 29.12.2009 02:30
Ekki til skynsamleg rök fyrir sameiningu „Nú er mikilvægt að standa vörð um landbúnað og sjávarútveg og þess vegna er mjög óskynsamlegt að leggja niður landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið,“ segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 29.12.2009 02:00
Icesave-umræðan komin á lokasprett Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn lögðu í gær fram hvorir sína frávísunartillögu við Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar. Þriðja og síðasta umræða um ríkisábyrgð á Icesave hófst á Alþingi í gær. Þá kom þing saman milli jóla og nýárs í fyrsta skipti frá árinu 1994 og í fjórða skipti á lýðveldistímanum. 29.12.2009 01:30
Landnám Ísraela ógnar friðarferli Byggðar verða nærri 700 nýjar íbúðir í Austur-Jerúsalem samkvæmt ákvörðun sem Ísraelsstjórn kynnti í gær. 29.12.2009 01:15
500 þúsund í Kópavogslaug Metfjöldi fólks hefur sótt sundlaugina í Kópavogi á árinu sem er að líða. María Níelsdóttir, sem er fædd og uppalin í Kópavogi, varð í gær 500 þúsundasti gestur ársins. 29.12.2009 01:00
Skólaakstur dýr í sveitahreppum Skólaakstur kostar Skaftárhrepp árlega um 700 þúsund krónur að jafnaði á hvert barn. Litlar skatttekjur sveitarfélagsins takmarka möguleika þess til að spyrna gegn fólksfækkun. 28.12.2009 19:23
Meirihluti fjárlaganefndar segir nauðsynlegt að samþykkja Icesave Meirihluti fjárlaganefndar segir nauðsynlegt að samþykkja Icesave frumvarpið. Minnihlutinn segir samningana stórhættulega, gjá hafi myndast milli þings og þjóðar og að með samningunum verði skuldabyrði þjóðarbúsins líklega óviðráðanleg. 28.12.2009 19:18
Icesave-frumvarp líklega samþykkt á miðvikudaginn Allt bendir til þess að Alþingi samþykki Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar á miðvikudag. Fastlega er búist við því að stjórnarandstaðan muni gera allt sem í hennar valdi stendur til að tefja afgreiðslu málsins. 28.12.2009 19:15
Ríkisráð kemur saman Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman á Bessastöðum á gamlársdag. Ríkisráðsfundir eru að jafnaði haldnir tvisvar á ári, um mitt ár og á gamlársdag, en einnig við ríkisstjórnar- og ráðherraskipti. Ríkisráð kom síðast saman 1. október þegar Ögmundur Jónasson lét af embætti heilbrigðisráðherra og Álfheiður Ingadóttir tók sæti í ríkisstjórn. 28.12.2009 16:49
Hálkublettir á Hellisheiði og í Þrengslum Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum og nokkuð austur eftir Suðurlandi. Hálkublettir eru á höfuðborgarsvæðinu og eins á Reykjanesbraut og víðar við Faxaflóa, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 28.12.2009 16:30
1500 hugmyndir frá íbúum vegna skipulagsins í borginni Ríflega 1500 hugmyndir bárust um það sem betur má fara í skipulagi borgarinnar á fundum skipulags- og byggingasviðs Reykjavíkurborgar sem fram fóru í öllum tíu hverfum borgarinnar í október og nóvember. Á fundunum gafst íbúum tækifæri til að koma sínum athugasemdum á framfæri í vinnu- og umræðuhópum vegna mótunar aðalskipulags Reykjavíkur 2010 til 2030 með framtíðarsýn allt til ársins 2050. Markmiðið með fundunum var að færa aðalskipulagið nær íbúum hverfanna, að fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 28.12.2009 16:23
Stærsti vinningur í sögu Happdrættis Háskólans Stærsti vinningur í sögu Happdrættis Háskóla Íslands, 75 milljónir króna, verður dreginn út á morgun. 28.12.2009 15:31
Gefa þúsundir flugeldagleraugna Blindrafélagið og Slysavarnafélagið Landsbjörg öllum 10 til 15 ára börnum gjafabréf fyrir flugeldagleraugum í samstarfi við Íslandspóst, Prentsmiðjuna Odda og Sjóvá. 28.12.2009 15:00
Brýtur ekki í bága við stjórnarskrána Þriðja og síðasta umræða um Icesave frumvarp ríkisstjórnar hófst á Alþingi í dag þegar Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlagalefndar, mælti fyrir framhaldsnefndaráliti meirihluta nefndarinnar. Hann sagði ekkert í frumvarpinu brjóta í bága við stjórnarskránna. Atkvæðagreiðsla mun væntanlega fara fram á miðvikudag. 28.12.2009 14:50
Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur á Gullinbrú Tveir voru fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur á Gullinbrú á tólfta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni missti ökumaður bíls sem var á leið úr Grafarvogi stjórn á bifreið sinni og fór yfir á rangan vegarhelming sem varð til þess að þriggja bifreiða árekstur varð. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild eru fólkið enn til skoðunar en ekkert bendir til að meiðsl þeirra séu alvarleg. 28.12.2009 14:41
Enginn fréttaritari í Brussel Ríkisútvarpið hefur hætt við áform sín um að hafa fréttamann staðsettan í Brussel í tengslum við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Sú ákvörðun var tekin í ljósi þröngs fjárhags Rúv. Þetta kemur fram í svari menntamálaráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, sem vildi vita hver heildarkostnaður Ríkisútvarpsins yrði við starfið. 28.12.2009 14:06