Var minnt á biðlaunaréttinn 29. desember 2009 05:15
Margt reyndasta starfsfólk Ríkisútvarpsins var fyrir jól minnt á rétt sinn til tólf mánaða biðlauna, yrði staða þess lögð niður. Þessi biðlaunaréttur, sem á við um fólk sem hefur unnið hjá RÚV síðan fyrir 1997, rennur út um áramót. Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri útvarpsins, segir þetta gert með góðum vilja og í ljósi yfirvofandi niðurskurðar. „Ef einhver hefði áhuga á að hætta þá væri hugsanlega hægt að gera við hann starfslokasamning, sem er þá bara góður kostur fyrir viðkomandi, en engin ógnun við einn eða neinn," segir hún. Sigrún hafi fyrst og fremst viljað kanna hvort einhverjir hefðu áhuga á að hætta. Ef segja þurfi upp fólki, þá megi með þessum hætti komast hjá því að segja upp öðru fólki, starfsmönnum sem ekki vilja hætta og ekki eigi þennan rétt. Sigrún veit ekki til þess að nokkur ætli að nýta sér þennan kost og vill ekki gefa upp við hversu marga starfsmenn hún talaði. Samkvæmt heimildum blaðsins var meðal annars rætt um biðlaunaréttinn við þau Hönnu G. Sigurðardóttur, Lönu Kolbrúnu Eddudóttur, Lísu Pálsdóttur, Magnús Einarsson, Sigríði Stephensen og Ævar Kjartansson. Sigrún Stefánsdóttir vill hvorki neita né játa því að hafa talað við þetta fólk. Spurð hversu mörgum hún búist við að þurfa að segja upp störfum, segist Sigrún vonast til að aðgerðirnar verði eins mildar og hægt sé. Hún reyni að hlífa störfum eftir fremsta megni. - kóþ
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira