Prófa niðurgangslyf á sólarströndum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 29. desember 2009 07:59 Strönd í Cancun.
Bandarískt lyfjafyrirtæki hyggst bjóða 1.800 sjálfboðaliðum á sólarströnd til að prófa nýtt lyf við niðurgangi. Það er fyrirtækið Intercell sem ætlar að vera svona rausnarlegt gegn því að mannskapurinn, sem er á aldrinum 18 - 64 ára og af báðum kynjum, prófi nýja lyfið í ferðalaginu en það er gefið með plástri sem seytir lyfinu smám saman gegnum húð notandans og þarf aðeins að bera plásturinn í sex klukkustundir, þremur vikum áður en lagt er upp í ferð til framandi landa en steinsmugan er gjarnan fylgifiskur slíkra ferðalaga vegna framandi fæðu og misgóðs drykkjarvatns auk annars. Fyrstu prófanir lyfsins, sem gerðar voru á 170 manns, gefa til kynna að draga megi úr líkunum á búkhlaupi um allt að 75 prósent sé það notað. Hópurinn í nýju tilrauninni fer til Mexíkó og Guatemala og dvelst þar í góðu yfirlæti á hótelum. Sá galli fylgir þó gjöf Njarðar að mannskapurinn má ekki fara lengra en sem nemur þriggja klukkustunda ferð frá tilraunamiðstöðvum sem Intercell setur upp á stöðunum og eiga að leita þangað hið bráðasta skynji þeir yfirvofandi þúfnalúru og fara í blóðprufu auk þess að skilja innanskömm sína eftir í vörslum umsjónarmanna Intercell. Stjörnugjöf hótelanna sem mannskapurinn dvelst á má ekki fara fram úr þremur stjörnum svo líklegra þyki að maturinn sem borinn er fram valdi þeim innantökum með tilheyrandi leysingum.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira