Icesave-umræðan komin á lokasprett 29. desember 2009 01:30 Þingfundur Þingmennirnir Jónína Rós Guðmundsdóttir, Helgi Hjörvar, Þráinn Bertelsson, Eygló Harðardóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir hlýddu á umræður um Icesave á Alþingi í gær. Fréttablaðið/Pjetur
Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn lögðu í gær fram hvorir sína frávísunartillögu við Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar. Þriðja og síðasta umræða um ríkisábyrgð á Icesave hófst á Alþingi í gær. Þá kom þing saman milli jóla og nýárs í fyrsta skipti frá árinu 1994 og í fjórða skipti á lýðveldistímanum. Við upphaf þingfundar var samþykkt, gegn andmælum stjórnarandstöðunnar, að halda kvöldfund um málið. Ríkisstjórnarmeirihlutinn stefnir að því að ljúka afgreiðslu Icesave-málsins í dag eða í síðasta lagi á morgun. Verði allir tímafrestir nýttir í ræðum og andsvörum getur umræðan staðið í allt að fjörutíu klukkustundir. Frávísunartillaga, sem fylgir framhaldsnefndaráliti Höskuldar Þórhallssonar fyrir hönd Framsóknarflokksins, gerir ráð fyrir því að Alþingi vísi málinu frá og feli ríkisstjórninni „að taka upp viðræður á nýjan leik við bresk og hollensk stjórnvöld á grundvelli Brussel-viðmiðanna. Leitað verði eftir pólitískum farvegi til lausnar deilumálinu eða samningsniðurstöðu á sanngjarnari forsendum.“ Frávísunartillaga sem Kristján Þór Júlíusson bar fram fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, gerir ráð fyrir að Alþingi vísi málinu frá og „úrslitatilraun verði gerð til að verja hagsmuni þjóðarinnar“. „Augljóst er að ekki er hægt að fara í samningaumleitanir við þessar þjóðir nema að því komi formenn allra flokka á Alþingi,“ segir í greinargerð sjálfstæðismanna. Að óbreyttu beri að fella frumvarpið. Bretar og Hollendingar verði þá að láta sér lynda „að fara með ágreining þennan í eðlilegan lagalegan farveg fyrir íslenskum dómstólum“. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar og framsögumaður ríkisstjórnarmeirihlutans, mælti fyrir samþykkt frumvarpsins og sagði að nú væri komið að endalokum umræðu um Icesave. Málið hefði fengið vandaðri og ítarlegri meðferð en nokkurt annað þingmál. „Við erum komin að endalokum í þessu máli og verðum að gjöra svo vel að taka afstöðu. Við getum ekki vænst þess að aðrir geri það fyrir okkur,“ sagði Guðbjartur. peturg@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira