Ekki til skynsamleg rök fyrir sameiningu 29. desember 2009 02:00 Á móti Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er andvígur stofnun atvinnuvegaráðuneytis. Í ráði var að leggja fram frumvarp um sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins á haustþingi. Af því hefur ekki orðið. „
Nú er mikilvægt að standa vörð um landbúnað og sjávarútveg og þess vegna er mjög óskynsamlegt að leggja niður landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið,“ segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Líkt og fram kom í Fréttablaðinu á dögunum leggst Jón gegn áformaðri sameiningu ráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins í atvinnuvegaráðuneyti. Í kjölfar fréttarinnar hafa ýmis samtök í landbúnaði og sjávarútvegi, auk sveitarfélaga, ályktað á sama veg. Jón segir mikilvægt að standa vörð um sterka stöðu og ímynd landbúnaðar og sjávarútvegs og telur hættu á að hvort tveggja verði undir við sameiningu. Þess utan hafi stjórnsýslan í nægu að snúast án þess að þetta bætist við. „Það er við næg önnur verkefni að fást af hálfu stjórnsýslunnar heldur en að setja þessa mikilvægu málaflokka á flot. Þar á meðal eru aðildarviðræðurnar vegna ESB sem taka til sín tug starfsmanna ráðuneytisins. Að mínu mati er þvert á móti mikilvægara að styrkja enn frekar grunnstoðir landbúnaðar og sjávarútvegs í stjórnsýslunni svo greinarnar geti tekist á við stór og aukin viðfangsefni í breyttu umhverfi.“ Tvö ár eru frá sameiningu landbúnaðarráðuneytisins og sjávarútvegsráðuneytisins. Jón var ekki við þingumræðurnar um málið á sínum tíma en flokkur hans, VG, lagðist gegn sameiningunni. „Ég tel að sú sameining hafi verið unnin kolvitlaust. Hún var unnin ofan frá án þess að málin væru skilgreind frá grunni. Og ég held að það hafi skaðað landbúnaðinn að landbúnaðarskólarnir, og þar með mikilvægt rannsóknarstarf, voru færðir frá ráðuneytinu.“ Engin skynsamleg rök hafa verið færð fyrir sameiningu ráðuneytanna, að mati Jóns, auk þess sem enginn hafi í raun óskað eftir henni. „Það hefur ekki verið sýnt fram á neitt í þessum efnum og það er beinlínis heimskulegt að ætla að berja í gegn svona ákvörðun ofan frá og láta hana krafsa sig í gegnum kerfið. Það gerir enginn í almennilegri stjórnsýslu,“ segir hann og vitnar til nýlegrar könnunar sem sýnir að sameiningar í stjórnsýslunni hafi jafnan leitt til aukinna útgjalda en ekki sparnaðar og hagræðingar, auk þess að vera illa undirbúnar og í flesta staði misheppnaðar. „Allar okkar aðgerðir eiga að miða að því að styrkja landbúnað og sjávarútveg. Ef það á að veikja þessar greinar innan stjórnsýslunnar þá þurfa að vera fyrir því skynsamleg rök og þau eru ekki til.“ bjorn@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira