Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bretar sagðir skálda fréttir „Þótt upphæð skuldabréfsins sé vissulega há þá er ekki víst að misræmið sé óeðlilegt. Krafan getur legið undir öðrum liðum í bókhaldi bankans. Við höfum því fengið endurskoðendafyrirtækið Deloitte til að rannsaka málið,” segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis. 10.11.2009 03:15
Starfsmaður KSÍ fórnarlamb skipulagðrar glæpastarfsemi Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, var með Pálma Jónassyni, fjármálastjóra KSÍ, í ferð í Sviss þegar 3,2 milljónir króna voru teknar út af greiðslukorti Pálma Jónssonar og greitt var fyrir þjónustu í næturklúbbi. Hann var hins vegar ekki með Pálma inni á viðkomandi næturklúbbi. Þetta sagði Geir í Kastljósi RÚV í kvöld. 9.11.2009 19:55
Traktorsgröfukarl klárar Lyngdalsheiðina Ofvaxinn traktorsgröfukarl, eins og hann kallar sjálfan sig, hefur tekið að sér klára nýja veginn yfir Lyngdalsheiði, og stefnir að því að ljúka verkinu fyrir 1. september næsta haust. 9.11.2009 19:11
Ný flugstöð við hlið afgreiðslu Flugfélagsins til skoðunar Sá valkostur að reisa nýja innanlandsflugstöð í Reykjavík við hlið núverandi Flugfélagsafgreiðslu, í stað samgöngumiðstöðvar norðan Loftleiðahótels, er til skoðunar hjá verkefnisstjórn. Samgönguráðherra vonast til að niðurstaða fáist sem fyrst svo framkvæmdir geti hafist í vetur. 9.11.2009 18:51
Ólíklegt að reyni á efnahagslegu fyrirvarana Fulltrúar Seðlabankans sem mættu á fund fjárlaganefndar Alþingis í morgun telja litlar líkur á að nokkru sinni reyni á efnahagslega fyrirvara í Icsave samkomulaginu, þannig að greiðslur Íslands lækki vegna bágrar stöðu efnahagsmála. 9.11.2009 18:34
Meintur fíkniefnasmyglari áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Gunnari Viðari Árnasyni en hann er í haldi lögreglunnar grunaður um að hafa smyglað rúmu sex kílóum af amfetamíni frá Hollandi til Íslands. 9.11.2009 16:56
Tugir minka dauðir úr lungnasjúkdómi „Þetta er nú örugglega ekki tengt,“ segir minkabóndinn Sveinn Úlfarsson á Ingveldarstöðum í Skagafirði en 50-60 minnkar hafa drepist úr lungnasjúkdómi hjá honum. Stutt er síðan 3000 minnkar drápust á Skörðugili sem er í sömu sveit. 9.11.2009 16:05
Svínaflensa í svínum staðfest Tilraunastöð HÍ að Keldum hefur nú staðfest að sýking í svínum á svínabúinu á Hraukbæ í Eyjafirði er af völdum inflúensuveirunnar A (H1N1). Þetta kemur fram a vefsíðu Matvælastofnunnar. 9.11.2009 15:47
Nazisti velkomin í lífvörð Danadrottningar Lesendum danska Extra blaðsins finnst allt í lagi að yfirlýstur nazisti sé í lífverði Margrétar Þórhildar drottningar. Umræddur nazisti heitir Daniel Carlsen. 9.11.2009 15:44
Minniháttar eldur í mannlausu húsi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tikynningu um eld í mannlausu húsi við Granaskjól 57 í vesturbænum fyrir um hálftíma síðan. Að sögn slökkviliðsins var um minniháttar eld að ræða sem var slökktur með einni gosflösku. 9.11.2009 15:25
Leita að sendibíl frá Ísafirði Fimmtudaginn síðastliðinn var sendiferðabifreið í eigu Ísafjarðarhafnar stolið á Ísafirði. Þrátt fyrir eftirgrennslan lögreglunnar á Vestfjörðum á Ísafirði og nágrenni hefur bifreiðin ekki fundist. 9.11.2009 15:02
Æskuheimili Hitlers til sölu Íbúarnir í smábænum Braunau am Inn í Austurríki hafa nokkrar áhyggjur af húsi sem þar er nú til sölu. 9.11.2009 14:34
Hvítabjörn í hægri umferð Hvítabirnir eru algeng sjón í smábænum Churchill í Manitoba í Kanada. Hvítabjörninn á þessari mynd virðist vera svo kunnugur á þessum slóðum að hann veit að það er hægri umferð í Churchill. 9.11.2009 13:59
Ísland gjörspillt samkvæmt nýrri könnun Könnun Háskólans við Bifröst hefur leitt í ljós að 67 prósent þeirra sem tóku þátt í henni og tóku afstöðu telja að spilling í íslenskri stjórnsýsu sé mikil eða mjög mikil. 9.11.2009 13:55
Saudar berja á skæruliðum í Jemen Saudi-Arabiskar hersveitir hafa hrakið skæruliða sjía múslima úr fjallavirkjum sínum á landamærunum að Jemen. 9.11.2009 13:46
Nokia innkallar hleðslutæki Farsímaframleiðandinn Nokia hefur ákveðið að innkalla hleðslutæki vegna framleiðslugalla. Tækin sem eru gölluð voru framleidd á tímabilinu 13. apríl til 25. október á þessu ári og eru með skráningarnúmerin AC-3E, AC-3U og AC-4U. 9.11.2009 12:13
Búist við nýjum síldarkvóta í dag Búist er við að sjávarútvegsráðherra tilkynni síðar í dag um kvóta á íslensku sumargotssíldina. Hafrannsóknastofnunin mælti fyrir helgi með fjörutíu þúsund tonna kvóta, sem er mun meira en menn bjuggust við í ljósi alvarlegrar sýkingar, sem hrjáir síldarstofninn. 9.11.2009 12:02
Morðið í Hafnarfirði: Breskur blóðferlasérfræðingur bar vitni Breskur blóðferlasérfræðingur var fenginn til að aðstoða við rannsóknina á morðinu á Braga Friðþjófssyni í Hafnarfirði fyrr á þessu ári. Morðinginn lýsti því í morgun hvernig áfengi og sjóveikistöflur gera verkum að hann man lítið eftir kvöldinu sem Bragi lést. Aðalmeðferð í málinu stendur nú yfir í Héraðsdómi Reykjaness. 9.11.2009 12:00
Færri atvinnulausir á Íslandi en að meðaltali í iðnríkjum Atvinnuleysi á Íslandi mælist undir meðaltali atvinnuleysis í iðnríkjum Vesturlanda, samkvæmt nýjustu tölum frá Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD. Hlutfall atvinnulausra á þriðja ársfjórðungi var 7,1 prósent á Íslandi, en til samanburðar var meðaltalið í öllum þrjátíu ríkjum OECD 8,5 prósent, samkvæmt samræmdum mælingum. Innan Evrópusambandsins var atvinnuleysið enn hærra, eða 9,1 prósent. Mest mælist atvinnuleysi á Spáni, eða 18,9 prósent og næstmest á Írlandi, eða 12,6 prósent. Á hinum Norðurlöndunum er atvinnuleysið meira bæði í Svíþjóð og í Finnlandi en á Íslandi, um 8.5 prósent í hvoru landi, en minnst er það í Noregi, um þrjú prósent. Í Bandaríkjunum voru 9,6 prósent vinnufærra manna án atvinnu. 9.11.2009 11:57
Tveir flýðu og tveir veiddu innan þjóðgarðsins Tveir veiðimenn lögðu á flótta þegar lögreglan á Selfossi nálgaðist þá á sunnudaginn. Lögreglan gerir ráð fyrir að mennirnir hafi ekki verið með góða samvisku og rannsakar málið. 9.11.2009 11:54
Ungbarnadauði fátíðastur á Íslandi Hvergi í heiminum var ungbarnadauði fátíðari en á Íslandi árið 2007 eða 1,5 af 1.000 lifandi fæddum samkvæmt vef Hagstofunnar. Í Evrópu var ungbarnadauði tíðastur í Tyrklandi eða 16,7 af 1.000 lifandi fæddum árið 2007. 9.11.2009 10:20
Ingibjörg Sólrún: Á erfitt með að fyrirgefa sér sjálfri Fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, segist eiga erfitt með að fyrirgefa sjálfri sér í kringum hrunið og það að að hafa kallað fram þá reiði sem varð í samfélaginu á þeim tíma. Þetta kemur fram í viðtali sem sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason tók við Ingibjörgu og verður sýnt á miðvikudagskvöldinu. 9.11.2009 10:11
Réttað yfir morðingja Aðalmeðferð í morðmáli gegn Bjarka Frey Sigurgeirssyni, sem er á fertugsaldrinum, hófst í morgun og verður fram eftir hádegi. Bjarki Freyr varð manni að bana í ágúst síðastliðnum. Við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjaness játaði Bjarki að hafa myrt manninn sem var á svipuðum aldri og hann sjálfur. Hann var hinsvegar ekki tilbúinn til þess að játa að hann hefði notað vöfflujárn við verknaðinn eins og talið var. 9.11.2009 09:39
Falli múrsins fagnað Leiðtogar heimsins munu koma saman í Berlín í dag til þess að fagna því að tuttugu ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins. Aðalhátíðarhöldin verða við Brandenborgarhliðið en þar verður risastórum dómínókubbum velt og eiga þeir að tákna hvernig kommúnistastjórnir austan járntjalds féllu ein af annari í kjölfar fregnanna frá Berlín. 9.11.2009 07:57
Afi Hasans segir árásina með ólíkindum Afi Nidals Malik Hasan, geðlæknisins sem skaut 13 hermenn til bana og særði yfir 30 í Fort Hood, stærstu herstöð Bandaríkjanna, í síðustu viku, segir það með ólíkindum að barnabarn hans hafi getað framið slíkt ódæði. 9.11.2009 07:35
Sviðin jörð í El Salvador eftir Ídu Níutíu og einn er látinn og 60 saknað eftir flóð og aurskriður sem herjuðu á íbúa El Salvador þegar fellibylurinn Ída fór yfir landið um helgina. 9.11.2009 07:22
Tuttugu ár síðan múrinn féll Í dag eru 20 ár liðin síðan landamærahlið Berlínarmúrsins voru opnuð og þetta 43 kílómetra langa tákna kalda stríðsins varð að sögulegum minnisvarða. 9.11.2009 07:13
Allur vindur úr veðrinu Óverulegt tjón varð af völdum vindsins sem blés í borginni í nótt. Lögregla fékk tilkynningu um lítinn stillans sem fór á hliðina um miðnættið og þá var óskað eftir aðstoð við að festa niður trampólín sem gerði sig líklegt til þess að takast á loft. Að öðru leyti olli veðrið ekki vandræðum. 9.11.2009 07:12
Innbrotstilraun í Ármúla Tilkynnt var um innbrot í Ármúlaskóla um klukkan hálffimm í nótt. Öryggisverðir komu að innbrotsþjófinum sem náði að forða sér. Verðirnir eltu manninn nokkurn spöl en hann komst undan að lokum. Ekki er talið að hann hafi haft nokkuð upp úr krafsinu. 9.11.2009 07:08
Gripinn glóðvolgur Lögreglan á Suðurnesjum greip innbrotsþjóf glóðvolgan inni á skemmtistað í bænum rétt fyrir miðnættið í gær. Hann var búinn að safna áfengisflöskum af barnum saman og var að gera sig líklegan til þess að hverfa af vettvangi þegar lögreglumenn mættu á svæðið. 9.11.2009 07:06
Bíður enn milli vonar og ótta Hælisleitandinn Paul Ramses hefur ekki fengið svar frá Útlendingastofnun um hvort hann fái að vera áfram á landinu eða ekki. Hann sótti fyrst um hæli hér í febrúar 2008. 9.11.2009 06:00
Bókaútgáfur í bæklingastríði Titringur er meðal smærri bókaútgefenda vegna auglýsingabæklings sem Forlagið hefur sent frá sér og ber heitið Bókatíðindi Forlagsins. „Félags íslenskra bókaútgefenda gefur úr Bókatíðindi á hverju ári og það hefur verið sátt um að allir bókaútgefendur landsins kynni sínar bækur þar og geti svo auglýst eins og þeim sýnist,“ segir Tómas Hermannsson hjá Sögum útgáfu, sem telur hættu á að fólk ruglist á bókatíðindum Forlagsins og hinum eiginlegu Bókatíðindum sem væntanleg eru innan skamms. 9.11.2009 06:00
Chavez býr her sinn undir stríð Hugo Chavez, forseti Venesúela, sagði her landsins að búa sig undir stríð við Kólumbíu. Hann sagði hættu á að Bandaríkin myndu reyna að etja Kólumbíu út í hernað gegn Venesúela. 9.11.2009 06:00
Þingvallanefnd vill opna veg um risalóð „Ég á von á því að þessum sumarbústaðaeiganda verði skrifað og hann beðinn að fjarlægja þetta skilti og þessa keðju því það samrýmist ekki lögum um þjóðgarðinn að hefta för um hann með þessum hætti,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, um lokaðan veg um sumarbústaðalönd í Gjábakkalandi. 9.11.2009 05:30
Lögreglan óttast um öryggi vegfarenda eftir niðurskurð „Hingað til hefur það dugað að hringja í Vegagerðina þegar svona skilyrði koma upp. Þá hefur bíll verið sendur um hæl,“ segir Theodór Þórðarson, yfirlögregluþjónn í Borgarnesi. 9.11.2009 05:30
Kosningar haldnar í janúar Íraska þingið samþykkti í gær nýja kosningalöggjöf, sem ætti að geta tryggt að fyrirhugaðar þingkosningar þar verði haldnar í janúar. 9.11.2009 04:30
Nærri hundrað manns látnir Nærri hundrað manns létu lífið og tuga var saknað í viðbót eftir flóð og aurskriður í El Salvador. Þriggja daga úrhelli hefur verið í landinu. 9.11.2009 04:00
Borgarstjórn hættir ekki veiði í Elliðaám Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn vísaði frá tillögu fulltrúa Vinstri grænna um að fimm veiðidagar Reykjavíkurborgar í Elliðaánum yrðu leigðir Stangaveiðifélagi Reykjavíkur eins og aðrir veiðidagar í ánum. 9.11.2009 04:00
Vilja ekki samning við Alþjóðahús Reykjavíkurborg Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar vill ekki að borgarráð semji við Alþjóðahús á næsta ári um þjónustu við innflytjendur. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. Borgarráð á eftir að taka afstöðu til tillögunnar. 9.11.2009 03:30
Samkomulag að engu orðið Manuel Zelaya, hinn brottrekni forseti Hondúras, segir að samkomulag um stjórn landsins sé að engu orðið. 9.11.2009 03:15
Bjóða Afríku ódýrt lánsfé Egyptaland, AP Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, segir að Afríkuríki fái á næstu þremur árum jafnvirði tíu milljarða Bandaríkjadala að láni á lágum vöxtum. 9.11.2009 03:00
Fórnuðu fóstureyðingum til að ná fram nýju frumvarpi Heilbrigðisfrumvarpið sem neðri deild Bandaríkjaþings samþykkti seint á laugardag er eitt flóknasta frumvarp sem nokkru sinni hefur komið til afgreiðslu þingsins. 9.11.2009 03:00
Risatertunum skipt út fyrir litríkari rakettur í millistærð Ein aðaltekjulind björgunarsveitanna, flugeldasalan, brást í fyrra samkvæmt Kristni Ólafssyni, framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Kristinn segir að í ár sé búið að laga vöruúrvalið að ástandi, fara vel ofan í reksturinn og skera allan óþarfa í burtu. 9.11.2009 03:00
Djúpt snortinn af vinarbragði „Þetta var alveg ofboðslega góður dagur, ég get ekki neitað því,“ segir Sigurður Hallvarðsson, fyrrverandi knattspyrnumaður í Þrótti, eftir að um átta hundruð manns mættu á styrktarleik sem haldinn var í gær fyrir Sigurð og fjölskyldu hans. 9.11.2009 03:00
Vill síðbúna fyrirgefningu Sebastian Marroquin, sonur kólumbíska eiturlyfjabarónsins Pablo Escobar, biður fórnarlömb föður síns um að veita honum síðbúna fyrirgefningu. 9.11.2009 02:30