Borgarstjórn hættir ekki veiði í Elliðaám 9. nóvember 2009 04:00 Ólafur F. Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Á einum veiðidaga borgarinnar í júlí í fyrra.Fréttablaðið/Auðunn
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn vísaði frá tillögu fulltrúa Vinstri grænna um að fimm veiðidagar Reykjavíkurborgar í Elliðaánum yrðu leigðir Stangaveiðifélagi Reykjavíkur eins og aðrir veiðidagar í ánum. Að því er fram kemur í bókun Þorleifs Gunnlaugssonar, borgarfulltrúa VG, áskilur Reykjavíkurborg, sem eigandi Elliðaánna, sér rétt til að ráðstafa veiði í ánum í fimm daga á hverju sumri. Það jafngildi sextíu veiðileyfum í ánum á besta tíma. Orkuveita Reykjavíkur hefur umsjón með Elliðaánum, sem eru leigðar út til Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Stjórn Orkuveitunnar fyrir sitt leyti vísaði á Reykjavíkurborg þegar þar var lagt til að leggja af umrædda veiðidaga. Meirihlutinn í borgarstjórn vísaði í samkomulag Orkuveitunnar og Stangaveiðifélags Reykjavíkur. „Borgarfulltrúum er í sjálfsvald sett hvort þeir þiggja umrætt boð um veiði í Elliðaánum. Með hliðsjón af því og þeirri umsögn sem borist hefur frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur er tillögunni vísað frá,“ sagði í frávísunartillögu meirihlutans sem samþykkt var með átta atkvæðum gegn sex. Fulltrúi VG sagði frávísun meirihlutans óskiljanlega þar sem meirihluti stjórnar Orkuveitunnar hefði vísað til samnings Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar frá 2001 þar sem borgin áskildi sér rétt til að ráðstafa fimm veiðidögum í Elliðaánum. „Þarna vísar hver á annan í þeim augljósa tilgangi að þæfa málið og firra sig ábyrgð,“ segir í bókun Þorleifs, sem kveður veiðar borgarfulltrúa og embættismanna í Elliðaánum vera barn síns tíma og sjálfsagt eiga rætur að rekja til þess tíma þegar borgarfulltrúar fengu mun lægri laun en í dag. „Nú er öldin önnur og enginn borgarfulltrúi er með laun undir 500 þúsund krónur á mánuði og ættu þeir því að geta borgað fyrir sín veiðileyfi sjálfir. Í svari Stangaveiðifélagsins segir að undanfarin ár hafi mun færri fengið en viljað veiðileyfi í ánum vegna mikillar eftirspurnar,“ bókar Þorleifur og bendir á að sala veiðileyfanna myndi færa borginni peninga á tímum mikilla fjárhagsþrenginga og niðurskurðar. Miðað við verð Stangaveiðifélagsins á veiðileyfum til félagsmanna á besta tíma í fyrra kostuðu fimm dagar alls um 800 þúsund krónur. gar@frettabladid.is
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjá meira