Morðið í Hafnarfirði: Breskur blóðferlasérfræðingur bar vitni Andri Ólafsson skrifar 9. nóvember 2009 12:00
Breskur blóðferlasérfræðingur var fenginn til að aðstoða við rannsóknina á morðinu á Braga Friðþjófssyni í Hafnarfirði fyrr á þessu ári. Morðinginn lýsti því í morgun hvernig áfengi og sjóveikistöflur gera verkum að hann man lítið eftir kvöldinu sem Bragi lést. Aðalmeðferð í málinu stendur nú yfir í Héraðsdómi Reykjaness. Maðurinn sem er ákærður fyrir morðið á Braga heitir Bjarki Freyr Ásgeirsson. Hann var sá fyrsti sem kallaður var til vitnis þegar réttarhöldin hófust klukkan níu í morgun. Hann lýsti samskiptum sýnum við Braga kvöldið sem hann lést en frásögn hans er ansi gloppótt. Bjarki man lítið frá kvöldinu örlagaríka og skýrir það með því að hann hafi byrjað að drekka á hádegi og tekið sjóveikistöflur með. Um klukkan átta um kvöldið fór Bjarki yfir til Braga að sækja úlpu sem hann átti þar. Bjarki segir að þeim hafi sinnast sem leiddi til þess að Bjarki sló Braga í höfuðið með borðplötu fimm sinnum. Hann segir lögreglu hafi svo komið á staðinn undir eins og fundið Braga látinn. Saksóknarinn gerir aðallega tvær athugasemdir við þessa frásögn Bjarka. Í fyrsta lagi er þriggja og hálfs tíma gloppa í tímalínunni. Vitni bera að átök hans og Braga hafi átt sér stað upp úr klukkan átta. En lögregla kom ekki á svæðið fyrr en rétt fyrir tólf. Bjarki hefur ekki getað skýrt hvað gerðist í millitíðinni. Í öðru lagi neitar Bjarki að hafa slegið Braga með vöfflujárni. En blóðferlasérfræðingur lögreglunnar bar í morgun að allt benti til þess að það hefði verið notað til að veita Braga mikla höfuðáverka. Blóðferlasérfræðingurinn sagði frá því að breskur sérfræðingur hefði verið fenginn til að fara yfir gögn málsins og að hann væri sömu skoðunar. Bjarki segir sjálfur að blóð sem fannst á vöfflujárninu hafi slest á það í átökum. Sérfræðingar sem rannsökuðu blóðið segja hins vegar að járnið hafi verið á hreyfingu þegar blóðið komst á það og því bendi allt til þess að það hafi verið notað sem barefli. Nú er hádegishlé í réttarhöldunum en þegar þau hefjast aftur verður kallaður til geðlæknir sem fenginn var til að meta sakhæfi Bjarka Freys og andlegt ástand.
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Viðvaranir vegna hvassviðris Veður Fleiri fréttir Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Sjá meira