Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slá pólitískar keilur í stað þess að gæta hagsmuna Íslendinga Íslenskir stjórnmálamenn hafa frekar haft áhuga fyrir því að slá pólitískar keilur í Icesave málinu heima fyrir en að gæta hagsmuna Íslendinga á erlendum vettvangi segir dósent. Hann bendir á að eðli EES-samstarfsins sé þannig að Íslendingar hefðu átt að fá sambærileg lánskjör á Icesave skuldbindingunum og þau sem Bretar og Hollendingar fjármagni sig á. 23.11.2009 12:44
Sitjandi landlæknir ekki meðal umsækjenda Fimm sækja um embætti landlæknis sem auglýst var fyrir skemmstu, fjórir karlar og eina kona. Matthías Halldórsson, sitjandi landlæknir, er ekki meðal umsækjenda. 23.11.2009 12:20
Kári kannast ekki við uppsagnir hjá deCode Kári Stefánsson, forstjóri deCode, segist ekki kannast við að uppsagnir séu yfirvofandi hjá fyrirtækinu né heldur að nokkrar ákvarðanir þar að lútandi hafi verið teknar. Fullyrt er í DV í dag að listi með nöfnum þeirra starfsmanna fyrirtækisins sem halda starfinu eftir væntanleg eigendaskipti megi finna á Netinu. 23.11.2009 12:13
Telja stöðu heimilanna afar slæma Talsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna segja að sá fjöldi heimila sem farið hafi í greiðslujöfnun, sýni að staða heimilanna sé mun verri en talið hafi verið. Hjá um helmingi heimila nái fólk ekki endum saman eða sjái fram á að ná ekki endum saman á næstu mánuðum. 23.11.2009 12:10
Leit að Íslendingi í Noregi - lík fannst í stöðuvatni Tugir manna leita að tæplega fimmtugum Íslendingi í norska bænum Noresund. Hann hefur ekki sést síðan aðfaranótt sunnudags. 23.11.2009 11:57
Vinir Húgós Hugo Chaves forseti Venesúela hefur tekið upp hanskann fyrir hryðjuverkamanninn Carlos sem þekktastur er undir nafninu Sjakalinn. 23.11.2009 11:36
Ökumenn hvattir til að draga úr hraðanum Undanfarna daga hafa orðið margar bílveltur, árekstrar og annarskonar slys af völdum þess að ökumenn eiga erfitt með að greina hálku á vegum, að fram kemur í tilkynningu frá Umferðarstofu. 23.11.2009 11:27
Dagur: Sjálfstæðisflokkurinn stefnulaus í skipulagsmálum Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir ljóst að yfirstandi kjörtímabil sé að líða án þess að nokkurt markvert skref hafi verið stigið í skipulagsmálum. Engin leið virðist vera til að festa hendur á stefnu Sjálfstæðisflokksins í skipulagsmálum borgarinnar sem hann segir að sé klofinn og stefnulaus. 23.11.2009 11:03
Féll á steypustyrktarjárn: Ástand mannsins stöðugt Fertugum karlmanni sem féll ofan í húsgrunn við sumarbústað við Flúðir í fyrrinótt með þeim afleiðngum að sjö steypustyrktarjárn stungust inn í hann er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild, alvarlega slösuðum. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni nú í morgun er ástand hans stöðugt. 23.11.2009 10:53
Pólitíkusum boðið á stefnumót með ungu fólki „Við erum að bjóða upp á vettvang þar sem stjórnmálamenn og ungt fólk ræðir saman um málefni sem snerta fyrst og fremst ungt fólk," segir Sindri Snær Einarsson, varaformaður Landssambands æskulýðsfélaga. Í dag fer fram á vegum sambandsins og Æskulýðs vettvangsins svokallað stefnumót ungs fólks og stjórnmálmanna. Þrír ráðherrar og tveir þingmenn hafa boðað komu sína. 23.11.2009 10:28
Norska lögreglan leitar Íslendings Leit stendur nú yfir í norska bænum Noresund að 48 ára gömlum Íslendingi. Norska blaðið Verdens Gang segir frá málinu en manninum var vísað út úr rútu um klukkan eitt aðfararnótt Sunnudagsins. 23.11.2009 08:58
Páfi gerist listhneigður Benedikt páfi sagði listamönnum heimsins um helgina að hann vildi gjarnan blása lífi í vináttu kirkjunnar og listanna. 23.11.2009 08:45
Segir sjóræningja halda tólf ára stúlku Spænskur skipstjóri, sem sómalskir sjóræningjar slepptu nýlega úr haldi, segist vita til þess að tólf ára gömul úkraínsk stúlka sé í haldi sjóræningjanna. 23.11.2009 08:43
Yfir 100 látnir í námuslysinu í Kína Tala látinna eftir að gassprenging varð í kolanámu í Heilongjiang-héraðinu í norðausturhluta Kína á laugardagsmorguninn er komin yfir 100 manns. 23.11.2009 08:40
Teknir á leið úr ránsferð í Úthlíð Lögreglan í Reykjavík stöðvaði för bifreiðar í nótt. Þrír menn voru í bílnum og þótti lögreglu farangur þeirra nokkuð grunsamlegur. Grunur kviknaði um að mennirnir væru að koma úr ránsferð og voru þeir handteknir. Síðar kom í ljós að þeir höfðu brotist inn í verslunina í Úthlíð í Biskupstungum. Mennirnir verða yfirheyrðir síðar í dag. 23.11.2009 08:10
Lyftari brann í Kópavogi Skotbómulyftari brann í Urðarhvarfi í Kópavogi í nótt. Slökkvilið var kvatt á vettvang og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Í fyrstu leit þó út fyrir að um mikinn eld væri að ræða þar sem mikill reykur hafði gosið upp við íkveikjuna. Ekkert er vitað um eldsupptök að svo stöddu en líkur eru á að kveikt hafi verið í lyftaranum. 23.11.2009 07:49
Innbrotstilraun í Hólabrekkuskóla Nokkrir ungir drengir gerðu tilraun til þess að brjótast inn í Hólabrekkuskóla í Suðurhólum í Breiðholti í nótt. Lögreglan kom að drengjunum sem eru barnungir, við iðju sína áður en þeir komust inn í húsið og voru þeir færðir á lögreglustöð. Þá voru einar fimm rúður brotnar í Hlíðaskóla í Reykjavík og að sögn lögreglu er um skemmdarverk að ræða en ekki innbrotstilraun. Skemmdarvargarnir voru á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. 23.11.2009 07:48
Segir Radcliffe ekki hasshaus Leikarinn Tom Felton, sem leikur Draco Malfoy, andstæðing og skólabróður Harry Potter í samnefndum kvikmyndum, hefur tekið upp hanskann fyrir mótleikara sinn Daniel Radcliffe, sem leikur Harry Potter, og fullyrðir að Radcliffe noti ekki kannabisefni en háværar sögusagnir hafa verið í umferð þar að lútandi. 23.11.2009 07:05
Bílsprengja í Belfast Bílsprengja, sem talið er að hafi vegið um 200 kílógrömm, sprakk fyrir utan lögreglustöðina í Belfast á Norður-Írlandi um kvöldmatarleytið á laugardag. 23.11.2009 07:03
Niðurskurður mestur hérlendis Áhersla kann að aukast á rafræna stjórnsýslu vegna áhrifa frá efnahagskreppunni, segir í nýrri úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD. 23.11.2009 07:00
Sjómanni komið undir læknishendur Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti um klukkan sjö í morgun á Reykjavíkurflugvelli með sjómann sem fékk botnlangabólgu um borð í hollensku flutningaskipi sem var á leið yfir Atlantshafið. Skipið sendi í gær út beiðni um aðstoð og varð að ráði að snúa skipinu í átt til Vestmannaeyja. 23.11.2009 06:54
Lýst eftir pilti Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni sem fór frá heimili sínu síðastliðinn föstudag klukkan hálfsex síðdegis. Jón Helgi er 16 ára gamall, 176 cm á hæð, grannvaxinn, svarthærður og með brúnleit augu. Hann var síðast klæddur í hvítar gallabuxur, svarta skó, hvíta og fjólubláa úlpu og með hvíta derhúfu. 23.11.2009 06:09
Ný flugstöð byggð í borginni Fulltrúar samgönguyfirvalda hafa viðrað hugmyndir við borgaryfirvöld og lífeyrissjóðina um að byggð verði ný flugstöð á Reykjavíkurflugvelli, á svæði Flugfélags Íslands. Fallið verði frá hugmyndum um stóra samgöngumiðstöð. Umferðarmiðstöðin, eða BSÍ, yrði áfram á sínum stað. 23.11.2009 06:00
Náttúruval speglast í mannætum Aflagðir helgisiðir ættbálks á Papúa Nýju-Gíneu tengdir mannáti urðu kveikjan að einhverju greinilegasta dæmi sem þekkt er um hraða þróun mannsins, samkvæmt nýrri uppgötvun vísindamanna. Breska dagblaðið The Times fjallaði fyrir helgi um uppgötvunina. 23.11.2009 06:00
Hafa áhyggjur af börnunum Foreldrar í Reykjavík hafa verulegar áhyggjur af fyrirhuguðum niðurskurði upp á 580 milljónir hjá leikskólum borgarinnar, að sögn Eddu Bjarkar Þórðardóttur sem situr í foreldraráði leikskólans Hamra. 23.11.2009 05:00
Nær enginn öruggur gegn óværunum „Það hefur orðið algjör sprenging í vel gerðum spilliforritum. Óprúttnir aðilar úti í heimi eru farnir að ráða til sín hæfileikaríkt fólk sem getur búið til óværur og spilliforrit sem laumast nær óhindrað inn í tölvur. 23.11.2009 05:00
Fallið frá safnskólahugmynd Menntaráð hefur fallið frá hugmyndum um að koma upp safnskóla á unglingastigi í norðurhluta Grafarvogs. 23.11.2009 04:00
Leyfir honum að njóta vafans Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Hamid Karzai verði að standa við stóru orðin, nú þegar hann hefur annað kjörtímabil sitt í embætti forseta Afganistans. 23.11.2009 04:00
Spreyttu sig á háþrýstisprautu Það hljóp heldur betur á snærið hjá krökkunum í þriðja bekk Ísaksskóla þegar slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins kom með fríðu föruneyti og kynnti þeim eldvarnir. 23.11.2009 04:00
Segir að svíkja eigi Leikfélagssamning „Það stendur til að svíkja samninginn við Borgarleikhúsið,“ segir Dofri Hermannsson, fulltrúi Samfylkingar í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur. 23.11.2009 04:00
Ekki rætt að ryðja hindrunum úr vegi Aldrei hefur verið rætt um það innan ríkisstjórnarinnar að öllum hindrunum verði rutt úr vegi fyrir lagningu Suðvesturlínu. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. 23.11.2009 04:00
Almenn bólusetning hefst Um 20 þúsund skammtar af bóluefni gegn svínaflensu komu til landsins um helgina. Verður þeim dreift strax til heilsugæslustöðva. Bólusetning almennings ætti því að geta hafist víðast hvar í vikunni, eins og ráð var fyrir gert, að því er segir í frétt frá heilbrigðisyfirvöldum. 23.11.2009 03:15
Landeyjahöfn skapar ný tækifæri Rangæingar sjá fram á geta teflt fram sameiginlegu fótboltaliði með Vestmannaeyingum og sótt skóla út í Eyjar með tilkomu Landeyjahafnar næsta sumar. Til að skoða betur tækifærin sem gefast með nýju höfninni hafa sveitarfélög á fastalandinu nú sett á stofn samráðsnefnd með Eyjamönnum. 22.11.2009 19:30
Uppboði Sjálfstæðisflokksins frestað Uppboð sem málfundafélagið Óðinn og Sjálfstæðisflokkurinn boðuðu til í Vallhöll á verðmætum munum í eigu flokksins var blásið af í dag vegna lítillar þátttöku. 22.11.2009 19:25
Ögmundur vildi að bankinn héti Búnaðarbankinn „Mikið liði mér betur sem viðskiptavini hjá Búnaðarbankanum en Arion group. Hef grun um að það eigi við um fleiri,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, á vefsíðu sinni. Eins og kunnugt er var tilkynnt á föstudag um að Nýi Kaupþing skyldi heita Arion banki hér eftir. 22.11.2009 17:19
Fleiri hjálparþurfi í Danmörku Það er ekki einungis hér á Íslandi sem óskum eftir aðstoð frá hjálparsamtökum eykst. 22.11.2009 16:48
Fangar skemmtu sér vel yfir Fangavaktinni „Þeir komu hérna allir leikararnir og frumsýndu fyrir okkur fyrstu tvo þættina áður en þetta var sýnt,“ segir Árni Ásbjörnsson, fangi á Litla Hrauni og formaður Afstöðu, félags fanga. 22.11.2009 15:49
Kominn í öndunarvél eftir fall á steypustyrktarjárn Karlmaður á fertugsaldri sem féll ofan í húsgrunn við sumarbústað við Flúðir í nótt með þeim afleiðingum að sjö steypustyrktarjárn stungust inn í hann er kominn á gjörgæsludeild. Þar er honum haldið sofandi í öndunarvél, alvarlega slösuðum. 22.11.2009 14:53
Hafró verður skipt upp vegna breytinga á Stjórnarráðinu Hafrannsóknarstofnun verður skipt upp þegar sameinað atvinnuvegaráðuneyti tekur til starfa og umhverfisráðuneytið verður að umhverfis- og auðlindaráðuneyti. 22.11.2009 13:47
Össur Skarphéðinsson sótti Spánverja heim Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur undanfarna daga verið í vinnuheimsókn á Spáni, þar sem hann fundaði með spænskum ráðamönnum og kynnti sér spænskan sjávarútveg. Spánverjar taka við formennsku í Evrópusambandinu af Svíum nú um áramót. 22.11.2009 12:01
Enn í aðgerð eftir fall á steypustyrktarjárn Maðurinn sem féll ofan í byggingagrunn með þeim afleiðingum að sjö steypustyrktarjárn stungust inn í hann er enn í aðgerð, samkvæmt upplýsingum frá gjörgæsludeild Landspítalans. Hann er alvarlega slasaður. Maðurinn var í sumarbústað á Flúðum þegar óhappið varð. Það tókst að losa manninn af steypustyrktarjárninu og var hann fluttur með þyrlu á Landspítalann. 22.11.2009 10:39
Öldungadeild tekur heilbrigðisfrumvarp Obama fyrir Byltingarkennt frumvarp Obama um breytingar á bandarísku heilbrigðiskerfi verður tekið til formlegrar umræðu í Öldungadeild bandaríska þingsins eftir að deildin samþykkti slíka umræðu með naumum meirihluta. 22.11.2009 10:10
Sakar ríkisstjórnina um lýðskrum Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra vísar þeim ummælum fjármálaráðherra til föðurhúsanna að bylta þurfi skattkerfinu því það gamla sé reist á flötum tekjuskatti frjálshyggjuhagfræðinnar. 22.11.2009 10:05
Tvö bílslys á Vesturlandsvegi Tvö bílslys urðu á Vesturlandsvegi skammt norðan við Borgarnes vegna mikillar hálku á vegum í gærkvöld og í nótt. Ökumenn bílanna tveggja, jeppa og fólksbíls misstu stjórn á þeim með þeim afleiðingum að þeir fóru útaf veginum. Sá í jeppanum slasaðist minniháttar en hinn slapp ómeiddur. Báðir bílarnir voru óökuhæfir á eftir. 22.11.2009 10:02
Áttatíu munir úr eigu MJ seldir á uppboði Yfir áttatíu munir í eigu poppsöngvarans Michael Jacksons voru seldir á uppboði í New York í gærkvöldi fyrir samtals um 250 milljónir króna. Hæsta verðið fékkst fyrir hvítan hanska sem söngvarinn hafði á vinstri hönd, þegar hann í fyrsta sinn sýndi dansspor í sjónvarpsþætti árið 1983 sem áttu eftir að verða hans helsta einkennistákn. Hanskinn seldist á rúmar 50 milljónir króna og kaupandinn var maður búsettur í Hong Kong. 22.11.2009 09:57