Niðurskurður mestur hérlendis 23. nóvember 2009 07:00 Rafræn stjórnsýsla er sögð auka afköst hjá hinu opinbera og auðvelda samskipti við almenning. Þá nota sum ríki tækifærið og auka gagnsæi stjórnsýslunnar. Nordicphotos/AFP
Áhersla kann að aukast á rafræna stjórnsýslu vegna áhrifa frá efnahagskreppunni, segir í nýrri úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD. „Þrýstingur á opinber útgjöld í kjölfar efnahagskrísunnar rekur ríkisstjórnir til að endurmeta nálgun sína hvað varðar opinbera þjónustu á netinu sem hluta af viðleitni stjórnvalda til að auka afköst,“ segir í tilkynningu OECD. Fram kemur að mörg aðildarríkja samtakanna noti nú tækifærið í kreppunni til að skerpa á áherslum og hraða áætlunum sem snúa að rafrænni stjórnsýslu. Flest lönd haldi þó óbreyttum útgjöldum. Þýskaland, Japan, Holland, Sviss og Bandaríkin hafa aukið útgjöld í málaflokknum. „Austurríki, Ungverjaland, Ísland og Bretland draga úr útgjöldum tengdum rafrænni stjórnsýslu árið 2009 og stefna á frekara aðhald,“ segir í tilkynningu OECD, en fram kemur að hér á landi hafi niðurskurðurinn verið einna mestur. Á þessu ári hafi fjárheimildir tengdar rafrænni stjórnsýslu verið skornar niður um 16,5 prósent og viðbúinn sé 18 prósenta niðurskurður til viðbótar árið 2010. Kreppan er einnig sögð stuðla að breyttum áherslum ríkja í málaflokknum. „Bandaríkin nota til dæmis tækni og internetið til að auðvelda fólki að sjá á sem gleggstan og fljótlegastan máta hvernig skattpeningar þess eru notaðir í tengslum við aðstoð ríkisins við fjármálageirann.“ - óká
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Innlent Fleiri fréttir Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Sjá meira