Telja stöðu heimilanna afar slæma 23. nóvember 2009 12:10 Hagsmunasamtök heimilanna segja að sá fjöldi heimila sem farið hafi í greiðslujöfnun, sýni að staða heimilanna sé mun verri en talið hafi verið. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Talsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna segja að sá fjöldi heimila sem farið hafi í greiðslujöfnun, sýni að staða heimilanna sé mun verri en talið hafi verið. Hjá um helmingi heimila nái fólk ekki endum saman eða sjái fram á að ná ekki endum saman á næstu mánuðum. Í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna er vitnað í fréttir um að helmingur lántakenda hjá Íbúðalánasjóði og um 70% lántakenda með verðtryggð íbúðalán hjá bönkunum, hafi ákveðið að fara í greiðslujöfnun. Þetta geri fólk þrátt fyrir að ljóst sé að þetta muni kosta lántakendur meira í verðbótum og vöxtum þegar upp sé staðið. Ef tölur um fjölda þeirra sem ákveðið hafi að fara þessa leið séu réttar, nái fólk á ríflega helming heimila landsins ekki endum saman eða sjá fram að ná ekki endum saman á næstu mánuðum. Þá sé spurning hvort lántakendur skilji alltaf hvað felist í að fara greiðslujöfnunarleiðina, að lækkun greiðslubyrðarinnar sé aðeins til skamms tíma og hvort lántakendur séu þá að láta skammtímahagsmuni ráða för eða treysti því einfaldlega að stjórnvöld grípi til ráðstafana þegar greiðslubyrðin hækki aftur. Í tilkynningu Hagsmunasamtakanna segir að staða heimilanna sé mjög þröng eins og samtökin hafi ítrekað bent á og það stefni í óefni hjá meirihluta heimila landsins innan skamms tíma, verði skaðinn sem heimilin hafi orðið fyrir ekki leiðréttur með raunverulegum aðgerðum á forsendum heimilanna. Ríki og bankar hafi ekki haldið á lofti ókostum greiðslujöfnunarinnar, eignarhlutur í húsnæði rýrni með beinni eignatilfærslu frá lántakanda til lánastofnana og heildargreiðslur aukist. En staða fyrirtækjanna virðist líka vera vanmetin, því í fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka íslands frá því á fimmtudag kemur fram að um fjórðungur fyrirtækja sé í vanskilum. Þetta sé þó sennilega vanmat því þriðjungur lána fyrirtækja séu kúlulán og vanskil þeirra komi sjaldnast í ljós fyrr en þau falli á gjalddaga, því venjulega þurfi ekki að greiða vexti af slíkum lánum fyrr en þá.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira