Segir að svíkja eigi Leikfélagssamning 23. nóvember 2009 04:00 Góð aðsókn var á sýningar á árinu og reksturinn skilaði afgangi þrátt fyrir lækkað framlag frá Reykjavíkurborg. „
Það stendur til að svíkja samninginn við Borgarleikhúsið,“ segir Dofri Hermannsson, fulltrúi Samfylkingar í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur. Dofri vísar til samnings Leikfélags Reykjavíkur við Reykjavíkurborg um framlag til rekstursins í Borgarleikhúsinu. Í ljósi breyttra aðstæðna var í desember í fyrra gerð breyting á samningum þannig að framlag borgarinnar lækkaði á þessu ári um 50 milljónir frá því sem það ella yrði með verðbótum á árinu 2009. Með breytingunni varð framlagið í ár um 380 milljónir króna. Samningurinn gildir út 2012. Af umræðum í menningarráði að dæma segir Dofri blasa við að Borgarleikhúsið fái ekki það fé sem um hafi verið samið. Skerðingin verði umtalsverð og komi sér afar illa því að í leikhúsinu hafi verið gerðar áætlanir og aðgangskort seld. Mikið beri á milli þess sem borgin ætli Borgarleikhúsinu og þess sem stjórnendur leikhússins telji að á þurfi að halda. Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu, ítrekar að engin tillaga hafi borist um breytingar á samningum við Reykjavíkurborg. „Það er í gildi samningur milli Leikfélagsins og borgarinnar um starfsemina og sá samningur stendur. Það hefur engin tillaga komið um annað,“ segir Magnús sem kveður stöðugt og gott samband milli borgarinnar og leikfélagsins. Aðspurður segir Magnús erfitt að segja til um hver áhrifin yrðu á leikhúsreksturinn ef umsamið framlag frá borginni skilar sér ekki. „En reksturinn er þröngur þrátt fyrir gott gengi þannig að Borgarleikhúsið má við mjög litlu,“ segir leikhússtjórinn. Áslaug Friðriksdóttir, formaður menningar- og ferðamálaráðs, kveðst telja ótímabært að ræða þetta mál í fjölmiðlum. Engin ákvörðun hafi verið tekin. Ekki kom í ljós fyrr en 1. desember – þegar meirihlutinn í borgarstjórn hafi lagt fram fjárlagafrumvarp næsta árs – hvaða tillögur verða gerðar í þessum efnum. „Það vita náttúrlega allir að við erum að hagræða,“ segir Áslaug. „Það er eðlilegt að við skoðum allar glufur og allt sem við getum gert. Það erum við að gera í góðu samráði við þau. Borgarleikhúsið veit hvað við erum að hugsa og er ekkert að kvarta undan því hvernig við erum að vinna þetta.“ Áslaug hafnar því að brjóta eigi samninginn. „Í fyrra var samningnum breytt í samvinnu við leikhúsið – það þurfti ekki að brjóta hann.“ gar@frettabladid.is Dofri HermannssonMagnús Geir ÞórðarsonÁslaug Friðriksdóttir
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Erlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Fleiri fréttir „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Sjá meira