Fleiri fréttir

Ættleiðingum fjölgaði töluvert milli ára

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands voru 69 einstaklingar ættleiddir á Íslandi árið 2008. Þetta er talsvert hærri tala en árið á undan, en þá voru ættleiðingar 51, en það ár áttu sér stað mun færri ættleiðingar en árin á undan. Árið 2008 voru stjúpættleiðingar 46 en frumættleiðingar 23.

Björgunarsveitin aðstoðaði ökumann í nótt

Björgunarsveitir á Dalvík og Tindur Ólafsfirði voru kallaðar út um klukkan hálf átta í morgun þegar tilkynning barst um bíl utan vegar við Ytri-Vík milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur.

Réttarhöld yfir Karadzic að hefjast

Dómarar við stríðsglæpadómstól Júgoslavíu hafa ákveðið að réttarhöld yfir fyrrverandi leiðtoga Bosníu Serba, Radovan Karadzic og hefjist þann 26. október næstkomandi. Karadzic, sem er 64 ára gamall, fór fram á að réttarhöldunum yrði frestað um tíu mánuði en á það var ekki fallist.

Lét karlinn róa fyrir krókódíl

Áströlsk kona á sextugsaldri heimtaði skilnað þegar eiginmaður hennar krafðist þess að hún losaði sig við krókódíl sem hún heldur sem gæludýr.

Stunginn til bana í Glyngøre

Tuttugu og fimm ára gamall maður lést eftir að hann var lagður eggvopni í brjóstið í bænum Glyngøre á Vestur-Jótlandi í gærkvöldi.

Milljónafjárdráttur af söfnunarreikningi

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, hefur verið ákærður fyrir milljónafjárdrátt, þar á meðal af tveimur söfnunarreikningum til styrktar Byrginu. Þá hefur Guðmundur, ásamt Jóni Arnari Einarssyni, fyrrverandi stjórnarmanni í Byrginu, verið ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald.

Mikilvægt að horfa yfir flokkslínur

Illugi Gunnarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, kveðst bjartsýnn á að tillögur flokksins nái eyrum stjórnarliða á þingi. „Þetta er þannig verkefni að stjórnmálamenn verða að horfa yfir flokkslínur.“

Með íslenskan banka í sigtinu

Rannsóknarteymi bresku efnahagsbrotaskrifstofunnar (Serious Fraud Office, SFO) er með íslenskan banka til skoðunar, og bráðlega verður ljóst hvort formleg rannsókn á mögulegum lögbrotum verður hafin.

Stórbruni í Vestmannaeyjum

Lifrarsamlagið í Vestmannaeyjum er alelda og berst allt tiltækt slökkvilið í eyjunum við brunann. Eldurinn kom upp um klukkan fjögur í nótt og er þakið af elsta húsinu hrunið og eldur er í öðrum húsum fyrirtækisins að sögn lögreglu. Um margar viðbyggingar er að ræða sem gerir slökkvistarf nokkuð erfitt að sögn lögreglu en veðuraðstæður eru sæmilegar.

Lamprecht vill eiga allan Geithellnadal

Félagið Heiðarlax hyggur á fiskirækt í Geithellnadal í Álftafirði og hefur í því skyni fest kaup á öllum jörðum sem falar hafa reynst í dalnum.

OR og lífeyrissjóðir ræða um Hellisheiði

Stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur og forsvarsmenn stórra lífeyrissjóða hafa rætt aðkomu sjóðanna að fjármögnun við stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Orkuveitan þarf að fjármagna fimm milljarða veituframkvæmdir á Vesturlandi. Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, segir að fyrirtækið sé með skuldabréfaútboð í gangi á innlendum markaði sem meðal annarra sé v

Stjórnlagaþingið verði 2011

Til álita kemur að fresta fyrirhuguðu stjórnlagaþingi til ársins 2011. Fram til þessa hefur ríkisstjórnin stefnt að því að halda slíkt þing á næsta ári.

Makedónía tilbúin í viðræður

Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir að Makedónía uppfylli nú öll skilyrði sem þarf til þess að aðildarviðræður geti hafist.

Fékk silfurverðlaun fyrir gifstappa

Hugvitskonan Guðrún Guðrúnardóttir hlaut á dögunum viðurkenningu fyrir gifstappa sína frá Samtökum evrópskra hugvitskvenna, (European women inventors and innovators network, EUWIIN). Auk Guðrúnar voru sex aðrar íslenskar konur verðlaunaðar fyrir nýsköpun sína við hátíðlega athöfn í Helsinki.

Mótmæla hernaðarumsvifum

Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla fyrirhuguðum hugmyndum um hergagnageymslu og æfingasvæði fyrir Nató-heri á Keflavíkurflugvelli. Í ályktun samtakanna segir að enginn munur sé á því að þjónusta herþotur og þjálfa herflugmenn eða varpa sprengjum í fjarlægum löndum með sömu vélum.

Átján á spítala vegna svínaflensu

Átján einstaklingar lágu á Landspítala síðdegis í gær af völdum svínaflensunnar. Þrír voru á gjörgæslu, hinir sömu og legið hafa þar undanfarna daga. Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnasviði landlæknisembættisins, sagði að einn sjúklingur hefði verið útskrifaður og sex nýir bæst við.

Ríkið eða kröfuhafar munu ákveða afskriftir starfsfólks

Nýir eigendur Íslandsbanka taka ákvörðun um hugsanlega afskrift lána sem Glitnir veitti starfsmönnum til hlutabréfakaupa í bankanum á sínum tíma. Stjórn Íslandsbanka hefur fram til þessa látið málið vera og beðið eigendaskipta, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Jóhanna talin áhrifamikil

Bretland Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er í 48. sæti á lista tímaritsins New Statesman yfir fimmtíu áhrifamestu einstaklinga veraldar þessa dagana.

Aðkeyrsla að bænum vöktuð

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, vill auka öryggiseftirlit í bænum með því að „kannaðir verði möguleikar á rafrænni vöktun á innkeyrslum Hveragerðisbæjar með það fyrir augum að auka öryggiskennd bæjarbúa og fækka afbrotum í Hveragerði og enn fremur að markaður verði farvegur fyrir öfluga nágrannagæslu í bæjarfélaginu“.

23 þúsund geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu

Frumvarp fimm þingmanna um þjóðaratkvæðagreiðslur gerir ráð fyrir að tíu prósent kosningabærra manna geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekið mál. Við þingkosningarnar í apríl höfðu rúmlega 227 þúsund atkvæðisrétt. Flutningsmenn eru þingmenn Hreyfingarinnar, Þráinn Bertelsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson Samfylkingunni.

Slasaðist í bílveltu við Litlu Kaffistofuna

Karlmaður slasaðist töluvert þegar að fólksbíll valt rétt austan við Litlu Kaffistofuna um tvöleytið í dag. Bíllinn fór tvær veltur og hafnaði á hjólunum utan vegar. Klippa þurfti bílinn í sundur til að ná ökumanninum úr honum.Tveir menn voru með manninum í bíl en meiðsl þeirra reyndust vera minniháttar.

Rær hundrað kílómetra til að safna fyrir röntgentæki

Íþróttafræðinemi hyggst róa hundrað kílómetra til að safna fyrir röntgentæki handa konum sem fara í fleygskurðsaðgerðir vegna brjóstakrabbameins á Landspítalanum. Konum í slíkum aðgerðum er haldið sofandi rúmlega hálftíma lengur en þörf krefur á meðan krabbameinssýnið er sent með leigubíl til greiningar í krabbameinsfélaginu.

Sendiráðsþjófurinn þjáist af alvarlegri spilafíkn

Forgangsröðum og skortur á mannafla kom í veg fyrir að Ríkisendurskoðun færi yfir bókhald sendiráðanna í fyrra. Konan sem gegndi starfi bókara í sendiráðinu í Vín og grunuð er um að hafa dregið sér rúmlega fimmtíu milljónir króna er talin þjást af alvarlegri spilafíkn sem hafi farið úr böndunum.

Rússar vilja ekki lána Íslendingum

Rússland hefur synjað Íslendingum um lán en til stóð að þeir myndu lána Íslandi allt að 500 milljón dollara lán samkvæmt Reuters.

Ríkið þarf að greiða Kaupþingi tæpar 6 milljónir

Íslenska ríkið var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til þess að endurgreiða Kaupþingi banka hf. tæpar 6 milljónir króna vegna oftekinna stimpilgjalda sem hefur verið innheimt ólöglega síðustu þrjátíu ár. Bankinn stefndi ríkinu vegna málsins en ríkið þarf einnig að greiða bankanum 1.700.000 krónur í málskostnað.

Rifist um gröf Móður Teresu

Indverjar og Albanar eru komnir í harða deilu um jarðneskar leifar Móður Teresu sem lést árið 1997.

Partípinni fær skilorð og sekt

Veitingamaðurinn Andrés Pétur Rúnarsson var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir skattsvik. Hann er ennfremur dæmdur til þess að greiða tæpar tíu milljónir í sekt til ríkissjóðs.

Sena og Hagar brotlegir: Þurfa að borga samanlagt 35 milljónir

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest að annars vegar Hagar og hins vegar Sena hafi brotið gegn banni samkeppnislaga við því að samruni komi til framkvæmda áður en Samkeppniseftirlitið hafi heimilað hann. Jafnframt er staðfest 20 milljón króna sekt á Haga og 15 milljón króna sekt á Senu vegna þessara brota. Þetta kemur fram á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.

Með amfetamín í leggöngum á Litla-Hrauni

Tuttugu og þriggja ára gömul stúlka var dæmd í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Stúlkan reyndi að smygla amfetamíni og öðrum sjö óþekktum töflum inn á Litla-Hraun í mars á síðasta ári. Efnin hafði stúlkan falið í leggöngum sínum en það var árvökull fíkniefnahundur fangelsins sem „merkti" stúlkuna. Hún játaði verknaðinn fyrir dómi og varði sig sjálf.

Alvarlegt vinnuslys í Fjarðaráli

Vinnuslys varð á ellefta tímanum í morgun í álveri Fjarðaáls í Reyðarfirði, þegar maður klemmdist við vinnu sína við víravél í steypuskála álversins samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu.

Vill ekki lofa gjaldfrjálsum máltíðum í grunnskólum

Birkir Jón Jónsson þingmaður Framsóknarflokksins spurði Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra hvort til stæði að bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum landsins á Alþingi fyrir stundu. Hann sagðist telja mikilvægt að hlúa að þessum hópi nú þegar margar fjölskyldur standa illa fjárhagslega. Hann minnti Katrínu á að þetta hefði verið eitt af kosningaloforðum Vinstri grænna og spurði hvort til stæði að ríkið kæmi að þessu máli.

Kannabis í heimahúsi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fundu fíkniefni við húsleit í miðborginni í gærkvöld.

Síðasti söludagur bleiku slaufunnar á morgun

Nú eru síðustu forvöð að fjárfesta í bleiku slaufunni og styrkja þar með Krabbameinsfélag Íslands í baráttunni gegn brjóstakrabbameini eins og segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélagi Íslands.

Norðmönnum slétt sama um mengunarkvóta

Norðmönnum virðist standa nokkuð á sama um loftslagskvóta í einkalífi sínu. Í Noregi geta einstaklingar keypt sér kvóta ef þeir ferðast flugleiðis milli landa.

Koffínmiklir orkudrykkir ekki ætlaðir börnum

Nokkur umræða hefur orðið um svokallaða orkudrykki í ljósi þess að nýjar tegundir sem innihalda mikið koffín hafa nú numið land. Ástæðan fyrir þessu er breyting á reglum en nú eru ekki lengur nein takmörk á magni viðbætts koffíns í drykkjum eins og áður var.

Staða okkar verður sterkari 23.október

Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins bað Guðbjart Hannesson formann fjárlaganefndar að leiðrétta þann misskilning og hræðsluáróður sem hann telur hafa verið uppi í fjölmiðlum undanfarið er snúa að 23.október. Hann sagði að í ljós hefði verið látið að þann dag yrði íslenska ríkið hugsanlega gjaldþrota ef Icesavemálið yrði ekki klárað. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi fyrir stundu.

Skýrslu rannsóknarnefdnarinnar frestað til 1.febrúar

Forsætisnefnd og formenn þingflokkanna áttu fund með rannsóknarnefnd Alþingis í morgun. Fram kom að gagnaöflun hefur reynst tímafrekari og yfirgripsmeiri en reiknað var með í fyrstu. Nefndin hefur enn undir höndum upplýsingar sem þarfnast frekari úrvinnslu. Því er einsýnt að ekki verður unnt að láta Alþingi í té fullburða skýrslu um niðurstöðu rannsóknarinnar 1. nóvember eins og stefnt hefur verið að og segir í lögunum. Er við það miðað að skýrslan komi fram eigi síðar en 1. febrúar.

Sjá næstu 50 fréttir