Innlent

Fékk silfurverðlaun fyrir gifstappa

Guðrún Guðrúnardóttir hugvitskona og Elínóra Inga Sigurðardóttir, formaður KVENN.
Guðrún Guðrúnardóttir hugvitskona og Elínóra Inga Sigurðardóttir, formaður KVENN.
Hugvitskonan Guðrún Guðrúnardóttir hlaut á dögunum viðurkenningu fyrir gifstappa sína frá Samtökum evrópskra hugvitskvenna, (European women inventors and innovators network, EUWIIN). Auk Guðrúnar voru sex aðrar íslenskar konur verðlaunaðar fyrir nýsköpun sína við hátíðlega athöfn í Helsinki.

Það voru þær Herdís Egilsdóttir, sem hlaut verðlaun fyrir ævistarf sitt, óvenjulega mikla sköpunargáfu og kennsluaðferðina Landnámsaðferðin – samþætting námsgreina í grunnskóla, Margrét Pála Ólafsdóttir sem fékk viðurkenningu fyrir Hjallastefnuna, Rósa Helgadóttir fyrir hönnun og endurnýtingu, Alexandra Argunova fyrir nýsköpun í menningartengslum, Hulda Sveinsdóttir fyrir hönnun á heilsukoddanum Keili og Ágústína Ingvarsdóttir fyrir nýsköpun í sjálfshjálparaðferð.- sbt



Fleiri fréttir

Sjá meira


×