Ríkið eða kröfuhafar munu ákveða afskriftir starfsfólks 15. október 2009 05:00 Nýir eigendur taka senn við Íslandsbanka. Þeir munu taka ákvörðun um afdrif kúlulána til starfsmanna Glitnis.
Nýir eigendur Íslandsbanka taka ákvörðun um hugsanlega afskrift lána sem Glitnir veitti starfsmönnum til hlutabréfakaupa í bankanum á sínum tíma. Stjórn Íslandsbanka hefur fram til þessa látið málið vera og beðið eigendaskipta, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Lán Glitnis til fyrrverandi og núverandi starfsmanna bankans hleypur á milljörðum króna. Frá því hefur áður verið greint að þrír framkvæmdastjórar bankans fengu í maí í fyrra lán upp á átta hundruð milljónir hver til kaupa á hlutabréfum í bankanum. Lán starfsmanna bankans eru flest í einkahlutafélögum sem standa illa í dag og teljast því sem næst glötuð. Vitað er að einhverjir starfsmenn Íslandsbanka hafa í samræmi við samninga nýtt sér söluréttarákvæði sem viðkomandi höfðu. Í þeim tilvikum sem lántakar áttu samningsbundinn rétt til að falla frá kaupunum eða sölurétti hafa þeir almennt nýtt sér hann á gjalddaga lánanna, samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka. Í dag skýrist hverjir eignast Íslandsbanka en þá rennur út frestur kröfuhafa Glitnis til að ákveða hvort þeir vilja fá 95 prósenta hlut í honum eða skuldabréf. Verði seinni leiðin valin eignast ríkið Íslandsbanka að fullu en bankinn mun gefa út þrjú skuldabréf stíluð á kröfuhafa. Fyrsta skuldabréfið er upp á 52 milljarða króna. Hin tvö eru árangurstengd og geta aldrei orðið hærri en áttatíu milljarðar króna. Ásamt því fá kröfuhafar kauprétt á níutíu prósenta hlut í bankanum. Verði fyrri leiðin valin mun skilanefnd Glitnis taka yfir stjórn bankans fyrir hönd kröfuhafa og setja fjóra menn í bankaráð til móts við einn sem ríkið tilnefnir. „Við erum að fara í gegnum lokaatriðin,“ segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, og bætir við að enn sé ekki vitað hverjir kröfuhafar Glitnis eru. Hann vísar til þess að líflegur markaður hafi verið með kröfur bankans frá því hann féll fyrir rúmu ári. Sama máli gegnir um kröfur Kaupþings. Kröfulýsingafresti í bú Glitnis lýkur 26. nóvember næstkomandi en 30. desember í bú Kaupþings. Á þeim degi mun koma í ljós hverjir eigendur bankans eru. - jab
Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Fleiri fréttir Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Sjá meira