Innlent

Féll fram af svölum í annarlegu ástandi

Karl á fimmtugsaldri var fluttur á slysadeild eftir að hafa fallið 2-3 metra af svölum íbúðarhúss í Reykjavík í nótt.

Samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var maðurinn í annarlegu ástandi en hann er ekki búsettur þar sem óhappið varð.

þá var karlmaður á sextugsaldri sömuleiðis fluttur á slysadeild í nótt en sá hafði dottið í miðborginni og fengið skurð á ennið. Maðurinn var ölvaður.

Í gærkvöld rotaðist svo tæplega tvítugur piltur á íþróttaæfingu á höfuðborgarsvæðinu en hann var kominn til meðvitundar þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang.

Og í gærmorgun slasaðist drengur á hendi í Reykjavík en hann klemmdist á heimili sínu og þurfti að sauma nokkur spor vegna þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×