Síðasti söludagur bleiku slaufunnar á morgun 14. október 2009 14:45 Bleika slaufan.
Nú eru síðustu forvöð að fjárfesta í bleiku slaufunni og styrkja þar með Krabbameinsfélag Íslands í baráttunni gegn brjóstakrabbameini eins og segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélagi Íslands. Þar segir ennfremur að þrátt fyrir að árveknisátak um brjóstakrabbamein standi út októbermánuð rennur söluátakið út á morgun, fimmtudag. Salan hefur gengið vel, en þó má enn kaupa slaufur víða um land. „Við erum komin langleiðina með að nálgast takmark okkar að selja 45.000 slaufur, en vantar þó herslumuninn! Við vonumst til að ná því í dag og á morgun, og hvetjum því karla og konur um allt land að kaupa sér slaufu og styrkja þannig leitarstarf Krabbameinsfélags Íslands," segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. Það er skartgripahönnuðurinn Sif Jakobs sem hannaði slaufuna. Sif rekur eigin skartgripalínu í Danmörku og selur hönnun sína víða um heim. Þá hefur hún unnið fyrir heimsþekkta hönnuði og er aðalhönnuður eins stærsta skargripafyrirtækis Kína. Regluleg leit að krabbameini er ein besta forvörn sem til er og er stór þáttur í þeim góða árangri sem Íslendingar hafa notið í baráttunni við brjósta- og leghálskrabbamein. Leitarstarf Krabbameinsfélags teygir arma sína hringinn í kringum landið. Skipuleg leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum er á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum í Reykjavík, að jafnaði tvo daga í mánuði á Akureyri en á flestum öðrum stöðum á landinu er skoðað einu sinni á ári eða annað hvert ár.
Mest lesið Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Veður Tekist á um Evrópumálin Innlent Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Erlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Fleiri fréttir Tekist á um Evrópumálin Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Sjá meira