Innlent

Slasaðist í bílveltu við Litlu Kaffistofuna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karlmaður slasaðist töluvert þegar að fólksbíll valt rétt austan við Litlu Kaffistofuna um tvöleytið í dag. Bíllinn fór tvær veltur og hafnaði á hjólunum utan vegar. Klippa þurfti bílinn í sundur til að ná ökumanninum úr honum. Tveir menn voru með manninum í bíl en meiðsl þeirra reyndust vera minniháttar.

Þá fór slökkviliðið í útkall í íbúð við Írabakka þar sem eldhústæki hafði brunnið yfir. Þá var slökkviliðið kallað að íbúð í Mosfellsbæ í dag þar sem brauðvél hafði skemmst og mikinn reyk lagði frá henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×