Innlent

Mótmæla hernaðarumsvifum

Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla fyrirhuguðum hugmyndum um æfingasvæði herflugmanna á Keflavíkurflugvelli.
fréttablaðið/valli
Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla fyrirhuguðum hugmyndum um æfingasvæði herflugmanna á Keflavíkurflugvelli. fréttablaðið/valli
Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla fyrirhuguðum hugmyndum um hergagnageymslu og æfingasvæði fyrir Nató-heri á Keflavíkurflugvelli.

Í ályktun samtakanna segir að enginn munur sé á því að þjónusta herþotur og þjálfa herflugmenn eða varpa sprengjum í fjarlægum löndum með sömu vélum.

Mikið hafi verið rætt um þau störf sem hér skapist með starfseminni, en minna hafi farið fyrir umræðu um hve margir láti lífið vegna hennar. Þá segja samtökin einkennilegt að ríkisstjórnin íhugi þetta á sama tíma og hún vill gera Ísland að vettvangi friðarumræðu.- kóp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×