Ættleiðingum fjölgaði töluvert milli ára 15. október 2009 09:24
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands voru 69 einstaklingar ættleiddir á Íslandi árið 2008. Þetta er talsvert hærri tala en árið á undan, en þá voru ættleiðingar 51, en það ár áttu sér stað mun færri ættleiðingar en árin á undan. Árið 2008 voru stjúpættleiðingar 46 en frumættleiðingar 23. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að frumættleiðingum frá útlöndum hefur fækkað umtalsvert síðustu þrjú ár, eða síðan þær náðu hámarki árið 2005. Það ár voru frumættleiðingar frá útlöndum fleiri en nokkurt annað ár, alls 41. Af þeim voru 35 börn frá Kína. Árið 2007 voru frumættleiðingar frá útlöndum 18 og 13 árið 2008. Fara þarf aftur til ársins 1998 til að finna færri frumættleiðingar frá útlöndum en árið 2008, en þá voru þær alls 12. Undanfarin ár hafa langflest ættleidd börn verið frá Kína og árið 2008 eru allar 13 frumættleiðingarnar þaðan. Stjúpættleiðingar árið 2008 voru 46. Það eru fleiri stjúpættleiðingar á einu ári en nokkru sinni fyrr. Líkt og áður var kjörforeldri oftast stjúpfaðir, eða í 34 tilvikum. Í einu tilviki var stjúpmóðir kjörforeldri og 11 einstaklingar í staðfestri samvist ættleiddu barn maka síns. Með hugtakinu stjúpættleiðing er átt við ættleiðingu á barni (eða kjörbarni) maka umsækjanda. Með hugtakinu frumættleiðing er átt við ættleiðingu á barni sem ekki er barn maka umsækjanda.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira