Erlent

Sautján látnir eftir árás í Pakistan

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Sautján manns eru látnir eftir árás uppreisnarmanna í Lahore, höfuðborg Punjabi-héraðsins í Pakistan, í morgun. Talið er að hópur manna, sem vopnaðir voru byssum, hafi ráðist á aðalstöðvar lögreglunnar í Lahore og skotið á allt sem fyrir varð. Að minnsta kosti fjórir hinna látnu eru lögreglumenn. Fyrir ári varð sjálfsmorðssprengjumaður 21 að bana þegar árás var gerð á sömu lögreglustöð. Það að auki var mannskæð árás gerð á tvo lögregluskóla í Punjabi-héraðinu í fyrra en enginn lést í því tilræði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×