Milljónafjárdráttur af söfnunarreikningi 15. október 2009 07:00 Saksóknari efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra hefur ákært Guðmund Jónsson, fyrrum forstöðumann í Byrginu, fyrir stórfelldan fjárdrátt og meiri háttar brot á skattalögum og lögum um bókhald. Guðmundur afplánar dóm á Litla-Hrauni.
Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, hefur verið ákærður fyrir milljónafjárdrátt, þar á meðal af tveimur söfnunarreikningum til styrktar Byrginu. Þá hefur Guðmundur, ásamt Jóni Arnari Einarssyni, fyrrverandi stjórnarmanni í Byrginu, verið ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald. Guðmundi er gefið að sök að hafa dregið sér ríflega 3,3 milljónir króna þegar hann notaði kreditkort Eignarhaldsfélagsins Byrgisins og greiddi persónuleg útgjöld í 209 skipti á árunum 2005 og 2006. Þá er honum gefið að sök að hafa á ofangreindum árum dregið sér rúmar 1,6 milljónir frá eignarhaldsfélaginu Byrginu og líknarfélaginu Byrginu þegar hann lét félögin greiða kreditkortareikninga sína í 109 skipti. Guðmundur er einnig ákærður fyrir að hafa dregið sér 96.500 krónur með tólf millifærslum af söfnunarreikningi aðstandenda Hauks Freys Ágústssonar til styrktar Byrginu. Einnig að hafa dregið sér 4,3 milljónir af söfnunarreikningi sem Svavar Dalmann safnaði í þágu Byrgisins líknarfélags. Guðmundur bæði millifærði og tók út af söfnunarreikningunum. Samtals nemur fjárdrátturinn ríflega 9,3 milljónum króna. Þá eru Guðmundur og Jón Arnar ákærðir fyrir vantaldar launagreiðslur að upphæð 9,6 milljónir króna og vangoldna staðgreiðslu opinberra gjalda að upphæð 3,6 milljónir. Guðmundur er svo ákærður fyrir að telja ekki fram á skattskýrslu bifreiðahlunnindi sín árin 2004 og 2005, að upphæð 1,5 milljónir og hafa með því komið sér undan því að greiða tekjuskatt og útsvar upp á tæpar 600 þúsund krónur. Jón Arnar er ákærður fyrir að hafa komið sér undan greiðslu tekjuskatts og útsvars að upphæð 1,4 milljónir með vantalningu á skattaframtali sínu. Þá eru báðir ákærðir fyrir meiri háttar bókhaldsbrot í störfum sínum fyrir Byrgið með því að varðveita ekki fylgiskjöl með fullnægjandi hætti. Guðmundur afplánar nú tveggja og hálfs árs fangelsisdóm á Litla- Hrauni. Hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn skjólstæðingum sínum í Byrginu. jss@frettabladid.is
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja Sjá meira