Fleiri fréttir

Endeavour-skoti frestað í fimmta skipti

Fresta þurfti skoti geimferjunnar Endeavour í gær, þriðja daginn í röð og allt í allt í fimmta skiptið frá því að hefja átti leiðangurinn. Þrumuveður geisaði í innan við 20 sjómílna fjarlægð frá skotpallinum og banna öryggisreglur NASA skot við þær aðstæður.

Ferðaskrifstofur bjóða sólskinstryggingu

Fréttastofan greindi frá því á föstudaginn að franskir ferðamenn þættu samkvæmt könnun þeir verstu í heimi. Hins vegar virðast franskar ferðaskrifstofur standa sig öllu betur.

Skjálfti upp á 6,3 á Taiwan

Snarpur jarðskjálfti upp á 6,3 stig á Richter skók Taiwan snemma í morgun. Að sögn bandarísku jarðskjálftavaktarinnar átti hann upptök sín um 135 kílómetra suð-suðaustur af höfuðborginni Taipei og á 25 kílómetra dýpi.

Nauðlenti eftir að gat kom á farþegaþotu

Boeing 737-farþegaþota frá Southwest Airlines nauðlenti í Charleston í Vestur-Virginíu í gær eftir að gat á stærð við fótbolta kom skyndilega á skrokk hennar.

Hleypti óvart af byssu í miðju ráni

Þrír menn, sem gerðu tilraun til að ræna verðmætaflutningabíl í Tåstrup í Danmörku í gærkvöldi, höfðu ekkert upp úr krafsinu.

Flugmenn BA samþykkja kauplækkun

Flugmenn breska flugfélagsins British Airways hafa samþykkt að taka á sig kauplækkun sem ætlað er að spara félaginu 26 milljónir punda, jafnvirði rúmra fimm milljarða króna, á ársgrundvelli.

Kortleggja glæpastarfsemi í Bretlandi

Að minnsta kosti 30.000 afbrotamenn í Bretlandi tilheyra einhvers konar skipulögðum glæpahópum. Þetta er niðurstaða rannsóknar þarlendrar lögreglu sem hefur nú í fyrsta sinn kortlagt glæpastarfsemi á Englandi og í Wales.

Innbrot í skartgripaverslun

Brotist var inn í skartgripaverslun í Hafnarfirði í nótt og þaðan stolið verðmætum. Ekki er enn ljóst hversu miklu var stolið.

Segja verksmiðjubændur brjóta rétt á kúm

Dýraverndarsamband Íslands grunar að bændur, sem reka stór og sjálfvirk kúabú, fari á svig við reglur um útivist og hagbeit kúa á sumrin, og hefur sent Matvælastofnun fyrirspurn um málið.

Vilja að framsóknarmenn hafni ESB-umsókn

Ungir framsóknarmenn í Skagafirði skora á þingmenn Framsóknarflokksins að greiða atkvæði gegn þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Vegurinn yfir Spengisand skraufþurr

Vegurinn yfir Sprengisand er orðinn svo þurr að mikill rykmökkur stígur upp í kjölfar bíla sem aka þar um. Kveður svo rammt að rykinu að þar drapst á bíl í gær því loftsían að vélinni var orðin mettuð af ryki.

Hlaut brunasár um borð í skipi

Maður brenndist um borð í íslensku skipi djúpt út af Faxaflóa í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send eftir honum og flutti hún hann á slysadeild Landspítalans.

Kveikt í hjólabrettapalli við Árbæjarskóla

Kveikt var í hjólabrettapalli við Árbæjarskóla á tíunda tímanum í gærkvöldi og logaði þar eldur þegar slökkviliðið kom á vettvang. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og nálæg mannvirki voru ekki í hættu.

Birkir Jón kýs með tillögu stjórnarinnar

Alþingi Þriðji þingmaður Framsóknarflokksins hefur bæst í hóp þeirra sem hyggjast greiða atkvæði með tillögu meirihluta utanríkismálanefndar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Birkir Jón Jónsson, varaformaður flokksins, upplýsti samflokksmenn sína um það í gær að hann hygðist fylgja fordæmi Guðmundar Steingrímssonar og Sivjar Friðleifsdóttur í þeim efnum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Segir áhættuna óhjákvæmilega

Bob Ainsworth, varnarmálaráðherra Bretlands, varði í gær aðgerðir breska hersins í Afganistan, sem hafa kostað 15 breska hermenn lífið það sem af er þessum mánuði.

Fékk blóðeitrun eftir leik á lóð borgarinnar

Mikil slysahætta hefur myndast á stórri lóð í Norðlingaholti. Miklu byggingarusli hefur verið komið fyrir á lóðinni sem er í eigu Reykjavíkur­borgar. Þá stendur hálfkláruð blokk með stillönsum á svæðinu. Nokkur börn í hverfinu hafa slasast á svæðinu, meðal annars lá ungur drengur á spítala í nokkra daga með blóð­eitrun eftir að hafa stigið þar á nagla.

Gengur vel þrátt fyrir álag

Mikið álag er á embætti ríkissaksóknara. Fjöldi ákærumála tvöfaldaðist á árunum 2005 til 2008. Þau voru 243 árið 2005 en 486 árið 2008. Fjöldi starfsmanna við embættið, fjórtán, hefur verið nánast óbreyttur síðastliðin tíu ár, þrátt fyrir þetta aukna álag.

Hótelkeðja hefur áhuga á Þingvöllum

Fosshótel hefði mikinn áhuga á því að reisa hótel á Þingvöllum ef það stæði til boða, að sögn Þórðar B. Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Fosshótela.

Íslenskt nautakjöt selst betur

Alls seldust 320 tonn af íslensku nautakjöti í síðasta mánuði. Það er tæpum sex prósentum meira en á sama tíma í fyrra.

Sotomayor spurð út úr

Sonia Sotomayor sat fyrir svörum í Öldungadeild Bandaríkjaþings í gær. Þingmenn þurfa að staðfesta skipun hennar í embætti Hæstaréttardómara.

Menntun í loftslagsmálum

Efnt verður til samkeppni um athyglisverð verkefni á sviði loftslagsmála hjá leik- og grunnskólabörnum á Norðurlöndunum í tengslum við Norræna loftslagsdaginn sem haldinn verður 10. október.

Mikilvægt að kjósa

Samkvæmt könnun Capacent Gallup þá skiptir það miklu máli fyrir 76,3 prósent landsmanna að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um að sækja um aðild að Evrópusambandinu, 17,4 prósentum fannst það skipta litlu máli og 5,8 prósent svöruðu hvorki né.

Minnst áhrif af 2+1 vegi

Skipulagsstofnun hefur gefið það út að minnst umhverfisáhrif verði vegna breikkunar Suðurlandsvegar, verði vegurinn þrjár akreinar; svokallaður 2+1 vegur. Þetta kemur fram í mati stofnunarinnar sem kom út í gær.

Talinn glíma við krabbamein

Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, er talinn veikur af krabbameini í brisi. Reynist það rétt þykir ólíklegt að hann eigi nema nokkur ár ólifuð. Suðurkóresk sjónvarpsstöð hélt þessu fram og vitnar í ónafngreinda heimildarmenn í leyniþjónustu Suður-Kóreu. Leyniþjónustan vildi þó ekki staðfesta upplýsingarnar.

Sjálfboðaliðar fegra Hverfisgötu

Um fjörutíu manna hópur sjálfboðaliða vinnur þessa dagana að því að taka húsin við Hverfisgötu 88 í gegn, að innan sem utan. Það eru samtökin Veraldarvinir sem hafa tekið húsin, sem eru þrjú talsins, á leigu og standsetja þau nú.

Nýjum banka fagnað með veisluhöldum

Nýr banki hefur tekið við Kaupþingi í Lúxemborg. Bankinn mun bera nafnið Banque Havilland. Bankinn er í eigu Rowland-fjölskyldunnar sem á meðal annars fjármálafyrirtækið Blackfish Group. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá hinum nýstofnaða banka.

Slitastjórn greiðir launin í dag

Slitastjórn SPRON er nú heimilt að borga laun starfsmanna sinna á uppsagnarfresti. Þetta var samþykkt á Alþingi í gær með öllum greiddum atkvæðum viðstaddra þingmanna. Frumvarpið, sem flutt var af viðskiptanefnd Alþingis, var afgreitt á mettíma. Var það tekið til þriggja umræðna og samþykkt á aðeins tuttugu mínútum.

Evrópuríki semja um gas við Tyrki

Fjögur Evrópusambandsríki undirrituðu í gær samning við Tyrkland um nýja gasleiðslu frá Kákasuslöndunum til Evrópu. Með þessu opnast sá möguleiki að Evrópuríki verði ekki jafn háð Rússlandi um gas og verið hefur.

Sakaður um skjalaleynd

Leon Panetta, yfirmaður CIA, sakar Dick Cheney, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, um að hafa leynt bandaríska þingið mikilvægum skjölum um aðgerðir eftir 11. september.

Arabaríki geta ekki gagnrýnt

Tveir Úígúrar létu lífið í gær og sá þriðji særðist af völdum byssuskota frá lögreglunni, sem sagðist hafa verið að verjast árás. Kínversk vitni segja að mennirnir þrír hafi hlaupið í áttina að hópi lögreglumanna vopnaðir hnífum í Urumqi, höfuðborg Xinjiang-héraðs.

Óeirðir í Belfast - lögreglumenn slasaðir

Fimm breskir lögregluþjónar eru meiddir eftir óeirðir í norður-Belfast í dag. Upptök óeirðanna má rekja til skrúðgöngu þar sem fylgismenn frjáls Írlands gengu.

Svínaflensubarn dó vegna læknamistaka

Ungabarn lést vegna læknamistaka á spítala á Spáni. Það athyglisverða við það var hinsvegar að móðir þess, tuttugu ára gömul kona sem var innflytjandi frá Maraokkó lést aðeins nokkrum klukkustundum eftir fæðingu úr svínaflensu.

Líbýskur hryðjuverkamaður vill deyja heima

Skoski dómsmálaráðherrann Kenny MacAskill hefur ákveðið að hitta líbýska hryðjuverkamanninn Abdelbaset Ali Al-Megrahi sem var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir Lockerbie-sprenginguna svo kölluðu en þá sprengdi Megrahi sprengju um borð í flugvélinni Pan Am Flight 103 en 270 manns létu lífið við sprenginguna árið 1988.

Herforingjastjórn Búrma sleppir pólitískum föngum

Herforingjastjórnin í Búrma hefur ákveðið að sleppa hluta af pólitískum föngum sínum en alls eru rétt rúmlega tvö þúsund manns í fangelsum þar í landi vegna stjórnarandstöðu sinnar.

Lét fjórtán ára stúlku fróa sér

Tuttugu og þrigga ára karlmaður var í dag dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi norðurlands eystra fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku. Hann var einnig dæmdur til greiðslu 200.000 króna í miskabætur til fórnarlambsins.

Danir vilja hátekjuskatt

Meirihluti Dana er hlynntur því að þeir sem þéni meira en eina milljón danskra króna á ári, eða 24 milljónir íslenskra króna, greiði hátekjuskatt. Þetta sýnir rannsókn sem Capacent hefur gert fyrir TV Avisen.

Viðgerð lokið á Álftanesi

Viðgerð er lokið á kaldavatnslögn á Álftanesi sem bilaði um tvöleytið í dag og hefur vatni verið hleypt aftur á, samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur.

Fékk að kaupa krónur sem Svíi en ekki sem Íslendingur

Íslendingur skipti í dag erlendum gjaldeyri í íslenskar krónur án nokkurrar fyrirhafnar þar sem hann talaði sænsku en átti í meiri vandræðum með það sem Íslendingur. Í hvert sinn sem Íslendingar kaupa gjaldeyri, þurfa þeir að framvísa flugmiða og viðskipti þeirra eru umsvifalaust skráð niður á viðkomandi einstakling með því að tengja kennitölu hans við viðskiptin.

Forsætisráðherra brýndi mikilvægi ESB fyrir þingheimi

„Mér heyrist að háttvirtur þingmaður beri mikla virðingu fyrir áframhaldandi stjórnarsamstarf þannig að við skulum vona að atkvæðagreiðslan verði með þeim hætti að þessi stjórn sitji áfram," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í dag.

Búast við mikilvægum áfanga á föstudag

Enn er stefnt að því að kröfuhafar í gömlu bönkunum eignist hluti í nýju ríkisbönkunum eða eignist þá alla. Þetta sagði Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra í upphafi þingfundar í dag. Gylfi gerir ráð fyrir að töluverður áfangi náist við endurreisn bankakerfisins í vikulok.

ASÍ staðfestir stöðugleikasáttmálann

Víðtæk samstaða er innan Alþýðusambands Íslands um bæði niðurstöðu samningsaðila sem og gerð stöðuleikasáttmálans milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar sem gerður var 25. júní síðastliðinn.

Sjá næstu 50 fréttir